Að heyra barnið sitt vaxa

naerverusalarkr152.jpgHversu sjálfgefið finnst manni ekki að geta séð og heyrt, já og hafa öll helstu skynfæri virk. En auðvitað er það ekkert sjálfgefið. Það veit sá best sem er ekki með sjón eða heyrn.

Ungur faðir, Bergvin Oddsson, sem hefur verið blindur frá 15 ára aldri lýsir í nýútkominni bók sinni hvernig honum leið þegar í ljós kom að hann og unnusta hans ættu von á barni.  Í fögnuðinum og eftirvæntingunni fólst einnig kvíði, kvíði fyrir því að geta ekki, vegna blindunnar, annast barnið sitt á þeim sviðum þar sem máli skiptir að hafa sjón.

Að heyra barnið sitt vaxa er titill bókarinnar. Sonurinn Oddur Bjarni er nú rúmlega ársgamall. Í bókinni má jafnframt finna hagkvæmar leiðbeiningar sem varða undirbúning komu barns í fjölskyldu og ýmsar ráðleggingar sem snúa að uppeldi og uppeldisfræðum. 

Félag langveikra ungmenna á Akureyri gefa bókina út og mun allur ágóði renna til Félagsins.  Í þessari afar persónulegu bók Bergvins leiðir hann lesendur inn í heim blindunnar. Bókin er bæði með háalvarlegu ívafi en bregður auk þess upp kómískum myndum af hvernig Bergvini hefur tekist að mæta þeim vandamálum sem blindra foreldra bíður öllu jafnan.

Meðal þess sem Bergvin ræðir um er hvernig fötlun hans kom til og hvernig honum gekk að aðlagast þegar ljóst var að hann fengi aldrei sjónina aftur. Bergvin lýsir á einlægan hátt óttablöndnum hugsunum sínum þegar hann velti fyrir sér hvernig honum myndi ganga að annast barnið sitt eins og t.d. að skipta á bleyju. Ógnvænlegasta hugsunin var þó sú að honum tækist ekki að gæta barnsins sín nægjanlega vel utandyra ef sá litli tæki sem dæmi upp á því að hlaupa frá honum.

Blindir foreldrar og samfélagið
Bergvin hefur lent í ýmsu þegar hann er á ferð með Odd Bjarna. Hann hefur oft upplifað höfnun og fundið að margir eiga það til að vanmeta blint fólk. Bergvin bendir á að blindir hafa iðulega þróað með sér sterkt lyktarskyn, heyrn, næmni og innsæi sem vegur upp á móti blindunni. Eins hefur blint fólk þurft að leggja sérstaka áherslu á að skipuleggja sig, sýna fyrirhyggju og vera helst alltaf skrefi á undan í huganum til að geta verið viðbúið hindrunum sem kunna að verða á vegi þeirra. Bergvin segir frá einum erfiðasta degi lífs síns sem tengist samskiptum hans við flugáhöfn í einni af ferðum hans með Odd Bjarna til Reykjavíkur. Við ákveðnar aðstæður hefur Bergvin þannig orðið að sýna sérstakleg fram á að hann geti, þrátt fyrir blindu, gætt öryggis barns síns komi eitthvað upp á.

Fylgist með viðtalinu við þennan hugrakka, jákvæða föður sem segir frá  lífi sínu og tilveru Í nærveru sálar mánudaginn 19. apríl.

Bókina HEYRA BARNIÐ SITT VAXA er hægt að fá í öllum Hagkaupsverslunum að undaskilinni Hagkaup á Seltjarnarnesi.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband