Beđiđ eftir strćtó í kulda og trekki

Í borgarstjórn hef ég lagt fram nokkur mál í gegnum tíđina sem lúta ađ almenningssamgöngum. Ef ţeim er ekki vísađ frá samstundis hefur ţeim stundum veriđ vísađ til stjórnar Strćtó bs. til umsagnar. Ţar hafa sum ţeirra einfaldlega dagađ uppi eđa strandađ á borđi stjórnarinnar.
Ţetta er afar hvimleitt, ekki síst ţegar ekki hefur frést af málinu t.d. í meira en ár. Einnig er ţetta slćmt ţví ţađ er fólk sem bíđur eftir viđbrögđum og auđvitađ afgreiđslu ţessara mála.

Áriđ 2019 lagđi fulltrúi Flokks fólksins fram tillögu um ađ biđsalur Strćtó bs. í Mjódd verđi opinn eins lengi og vagnar ganga og ađ betur verđi búiđ ađ biđsalnum ţar sem margir nota hann daglega. Verst af öllu er ađ hann skuli ekki vera hafđur opinn lengur en raun ber vitni. Ţađ skýtur skökku viđ í allri ţeirri umrćđu borgarmeirihlutans ađ gera almenningssamgöngur ađ fýsilegri kosti. Ađ fólk skuli ţurfa ađ bíđa úti eftir strćtó í Mjódd eftir kl. 18 er einfaldlega ekki bođlegt hjá ţjónustufyrirtćki eins og Strćtó bs. Fyrir fjölmarga er ţađ ekki einu sinni val ađ nota almenningssamgöngur heldur eini möguleikinn sem fólk hefur. Ekki hafa  allir efni á ađ eiga bíl. Mjóddin er tengistöđ margra leiđa. Strćtó ćtti ađ hafa biđsalinn opinn eins lengi og vagnarnir ganga og bćta ađstöđuna ţar fyrir farţega Strćtó.

Tillagan var ekki lögđ fram ađ ástćđulausu. Allmargir hafa haft samband og beđiđ mig um ađ reyna ađ ná ţessum breytingum fram og hafa nú beđiđ eftir svörum í eitt ár ţví ekkert heyrist frá stjórn Strćtó bs. Bent hefur veriđ á hversu erfitt ţađ er ađ híma úti í alls kyns veđri og vindum, roki og rigningu, snjókomu og myrkri. Nú nýlega fékk ég skeyti frá konu á nírćđis aldri og sagđist hún ekki treysta sér til ađ vera á ferđinni međ strćtó eftir kl. 17. Hún hafđi tvisvar lent í ţví ađ hanga í hálftíma, eftir ađ hafa rétt misst af vagni, í svarta myrkri og kulda. Hún bađ mig ađ reyna ađ koma vitinu fyrir ţá sem hafa međ almenningssamgöngur ađ gera og fá ţá til ađ hafa biđsalinn opinn lengur en hann er harđlćstur á slaginu kl. 18 alla daga. Ţađ hvatti mig til ţess ađ reka á eftir ţessu máli og vona ég ađ ţessi pistill hjálpi einnig til viđ ţađ.

Gjaldskrá ferđaţjónustu fatlađra

Ţetta er ekki eina mál Flokks fólksins sem liggur á borđinu hjá stjórn Strćtó bs. án ţess ađ hafa fengiđ athygli stjórnarinnar. Í febrúar sl. var fulltrúi Flokks fólksins međ tillögu um ađ endurskođa  gjaldskrá fyrir ferđaţjónustu fatlađra međ ţađ ađ markmiđi ađ fólk geti keypt árskort fyrir ađgang ađ ferđaţjónustu fatlađra og ţurfi ekki ađ greiđa fyrir hverja ferđ. Lagt var til ađ Reykjavík beiti sér fyrir ţví ađ árskort fyrir ferđaţjónustu fatlađra gildi einnig til ađ ferđast međ Strćtó bs. á höfuđborgarsvćđinu. Málinu var vísađ til stjórnar Strćtó bs. ţar sem ţađ situr ţar enn.

Ferđaţjónusta fatlađra er á vegum Reykjavíkur, ekki Strćtó, og ţví gilda ólíkar verđskrár. Vegna ţessa gildir árskort fyrir öryrkja ađeins í strćtó en ekki fyrir ferđaţjónustu fatlađra, sem ţó er á vegum Strćtó bs. Verđ fyrir stakar ferđir er ţađ sama en gjaldskrá fyrir ferđaţjónustu fatlađra býđur ekki uppá magnafslátt fyrir alla, svo sem međ ţví ađ kaupa kort. Ţađ er ađ vísu bođiđ upp á nemakort fyrir fatlađa nemendur í framhalds- og háskólum en ţađ kostar 22.600 kr. á ári fyrir 16-17 ára og 52.900 kr. á ári fyrir eldri einstaklinga. 

Ţađ liggur í augum uppi ađ ţađ er nauđsynlegt ađ bjóđa upp á árskort. Jafnvel ţótt kortiđ myndi kosta heilar 100.000 kr. ţá eru samt yfir 200 einstaklingar sem myndu spara sér pening međ ţví ađ kaupa ţađ. Ţađ eru ţví yfir 200 einstaklingar sem greiđa meira en 100.000 kr. árlega í akstursţjónustuna og ţví enn frekar tilefni til ađ bođiđ yrđi upp á árskort fyrir akstursţjónustu fatlađra.

En ţessi tillaga Flokks fólksins liggur sem sagt enn á borđi stjórnar Strćtó bs. Í ljósi ţess ađ tillagan um biđskýliđ var lögđ fram fyrir ári má allt eins vćnta ţess ađ umsögn og afgreiđsla á tillögunni um ađ endurskođa  gjaldskrá fyrir ferđaţjónustu fatlađra komi ekki til afgreiđslu fyrir nćsta ár. Slíkur er oft hćgagangurinn hjá stjórn Strćtó bs. og kerfisins alls.

Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins

Grein birt á visi.is 9.10. 2020 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband