Er hugsað til barna, þeirra viðkvæmustu
19.3.2020 | 14:45
Takk Kári
13.3.2020 | 19:09
Við erum ótrúlega heppin sem einstaklingar og þjóð að eiga Kára að og þá háþróuðu vísindastöð sem hann rekur. Ég vil þakka Kára hans framlag í baráttunni við Covid-19. Hér eru engin gróðrarsjónamið í gangi heldur aðeins einskær áhugi á að nýta getu og færni í þágu almennings.
Hvassahraun?
13.3.2020 | 14:30
Hér er bókun mín:
Eins og málið horfir við í dag er óvissan um þennan stað því mikil. Ef mælingar og tilraunir reynast ekki hagstæðar þá er málið á núllreit. Það mun ekki koma í ljós fyrr en eftir nokkur ár þegar niðurstöður mælinga og flugtilrauna liggja fyrir og þá sennilega milljónir ef ekki milljarðar farnir út um gluggann. Ef til kemur að Hvassahraun stenst skoðun er ekki sanngjarnt að borgin greiði helming af hönnunarkostnaði flugvallar í Hvassahrauni. Sá flugvöllur verður ekki innan borgarmarka Reykjavíkur. Ef til kæmi þá er nær að þau sveitarfélög þar sem flugvöllurinn verður tækju þátt í hönnunarkostnaðinum.
Fræða en ekki hræða
9.3.2020 | 08:50
Um fátt annað er rætt nú en Covid-19 vírusinn. Mér verður hugsað til barnanna og hvort við, hinir fullorðnu, séum að vanda okkur hvernig við tölum ef börn eru í návist okkar. Um þennan vágest eins og annan sem kann að steðja að þurfum við að ræða af yfirvegun ef börn heyra til. Oft gleymum við fullorðna fólkið að þegar við erum að tala saman þá eru börn að hlusta. Þeirra túlkun og ályktun geta gert þau enn hræddari en ástæða er til. Þau eru jú bara börn. Okkar hlutverk er að fræða þau án þess að hræða og fullvissa þau um að þau séu örugg og að þau þurfi ekkert að óttast.
Fræðsla um erfið mál verður ávallt að markast af aldri barna og þroska og henni þarf að vera fylgt vel eftir. Það skiptir öllu máli að sníða upplýsingar og umræðu eftir aldri, þroska og persónu barnsins ef barnið á ekki að verða heltekið af áhyggjum. Mikilvægt er að kenna börnum hreinlæti og umgengnisvenjur við svona aðstæður og halda þeim nægjanlega upplýstum en ekkert er fengið með því að hræða þau eða gera þau taugaóstyrk.
Börn eru misviðkvæm að eðlisfari. Sum hugsa meira um hættur, sjúkdóma og slys á meðan önnur eru upptekin við annað. Börn með kvíðaröskun taka allt inn á sig sem er í umræðunni og líklegt er til að valda áhyggjum. Afleiðingar láta oft ekki á sér standa, kvíði, lystarleysi og svefnleysi geta fylgt í kjölfarið.
Börn eru næm á líðan foreldra og skynja fljótt ef þeirra nánustu eru með áhyggjur eða eru stressuð. Ef fullorðna fólkið sýnir taugaveiklun og stjórnlausa hræðsluhegðun í návist barna munu börnin verða skelfingu lostin. Foreldrar, afar og ömmur sem eru yfirkomin af skelfingu geta oft ekki leynt því. Börn hlusta á raddblæ og fylgjast grannt með svipbrigðum sinna nánustu til að meta kvíða- og áhyggjustig þeirra. Ef börn sjá að þeir sem eiga að gæta öryggi þeirra eru lamaðir af ótta er öryggiskennd kippt undan fótum þeirra. Fullorðnir eru haldreipi barnanna og það haldreipi þarf að vera sterkt. Þess vegna skiptir öllu máli að útskýra, fræða og svara spurningum barna af yfirvegun og öryggi.
Börn heyra fréttir og sé eftir því tekið að barn er farið að fylgjast með fréttum af Covid-19 vírusnum er mikilvægt að fullorðinn sé til staðar til að útskýra og svara spurningum. Það er mikilvægt að foreldrar geti leiðrétt mögulegar mistúlkanir og misskilning sem kann að koma upp hjá barni sem farið er að fylgjast með fjölmiðlum.
Fádæma hroki stjórnarmanns borgarinnar í Sorpu
6.3.2020 | 16:42
Við urðum bara að gera þetta sjálfar, þ.e. vísa braggamálinu áfram
4.3.2020 | 17:21
Eins og þeir vita sem hafa fylgst með borgarmálunum þá var tillögu okkar Vigdísar um að vísa skýrslum vegna Nauthólsvegar 100 braggans, til rannsóknar hjá viðeigandi aðilum vísað frá í borgarstjórn í gær. Sjálfstæðisflokkur og Sósíalistaflokkur sátu hjá við frávísunina. Það lá því beinast við að við tvær f.h. okkar flokka yrðum að gera þetta sjálfar og frá því var gengið í hádeginu í dag. Það verður að koma lúkning í þetta mál með einum eða öðrum hætti. Ef niðurstaðan verður sú að héraðssaksóknari vísi málinu frá eða komist að þeirri niðurstöðu að ekkert saknæmt hafi átt sér stað þá er það bara fínt enda er markmið okkar ekki að reyna að koma neinum illa. En sem kjörnir fulltrúar ber okkur að gera allt sem í okkar valdi stendur til að fá endanlega úr þessu máli skorið. Það skref höfum við nú tvær tekið. Auðvitað var leitt að hinir minnihlutaflokkarnir skyldu ekki standa með okkur í þessu lokaskrefi. Ég reyndi sem dæmi að fá Sjálfstæðimenn til að vera með í tillögunni en þau vildu það ekki. Þau vildu að borgarlögmaður rannsakaði málið en draga má hæfi hans alvarlega í efa vegna tengsla og fyrri ummæla og skrifa um málið. Þær niðurstöður yrðu bara aldrei trúverðugar.
Metan á kostnaðarverði og braggamálið í opinbera rannsókn var vísað frá í borgarstjórn
3.3.2020 | 20:08
Söluverð metans miðist við flutningsgjald á sölustað
2.3.2020 | 07:50
Eins og allir vita er offramboð af metani og það brennt á söfnunarstað til þess að það fari ekki út í andrúmsloftið. Þetta er mikil sóun á umhverfisvænum orkugjafa nú þegar við erum sem þjóð að hvetja til orkuskipta. Þess vegna legg ég það til á borgarstjórnarfundi 3. mars að söluverð metans miðist aðeins við flutningsgjald á sölustað.
Tillaga Flokks fólksins um að söluverð metans verði lækkað og miðist til frambúðar við kostnað Sorpu við það að flytja það frá framleiðslustað á sölustað
Flokks fólksins leggur til að borgarstjórn samþykki að fela fulltrúa sínum í stjórn Sorpu að leggja fram tillögu um að söluverð metans verði lækkað og miðist til frambúðar við kostnað Sorpu við það að flytja það frá framleiðslustað á sölustað.
Metanbílar hafa verið teknir af lista vistvænna bíla af því að ekki er hægt að tryggja að þeir aki á vistvæna orkugjafanum eins og segir í rökum. Það eru því engar ívilnanir frá borginni fyrir eigendur metanbíla lengur, en samkvæmt nýjum reglum Reykjavíkurborgar um bíla mega þeir sem teljast vistvænir leggja gjaldfrjálst í 90 mínútur í gjaldskyld stæði. Þessar reglur hvetja ekki fólk í orkuskiptin. Á sama tíma er Sorpa, sem er byggðasamlag, að brenna metani á báli í stórum stíl. Flokkur fólksins vill með þessari tillögu leggja áherslu á mikilvægi þess að nýta þennan vistvæna orkugjafa sem nóg er til af og verður enn meira þegar ný jarðgerðarstöð í Álfsnesi er komin í virkni. Til að selja metan á hinn almenna bílaflota í Reykjavík þarf það að vera samkeppnishæft við aðra orkugjafa svo bíleigendur kaupi bíla sem ganga fyrir metani. Það er betra að fá lítið fyrir það en ekki neitt og þurfa að brenna því. Að nota metan sparar auk þess innflutning á jarðefnaeldsneyti.
Greinargerð
Offramboð er af metani og þess vegna er því brennt á söfnunarstað. Mikilvægt er að koma því út fyrir lágt verð. Að öðrum kosti mun það ekki seljast. Nú er ljóst að Sorpa er á hvínandi kúpunni. Einhver umræða er komin í gang um að hefja sölu á metani og selja það dýrt, til að bjarga Sorpu. Ef reyna á að selja metan dýrt mun það hafa letjandi áhrif á fjárfestingu fólks á metanbílum. Það mun þá einfaldlega ekki seljast. Metansala mun að sjálfsögðu ekki bjarga Sorpu sem skuldar 4.1 milljarð. Ef hækka á verð á metani er það einfaldlega ávísun á að það mun ekki seljast og enn meira af því verður brennt á báli í Álfsnesi. Hver græðir á því? Flokkur fólksins vill að borgarbúar fái metan á bíla sína á eins ódýran hátt og hægt er og jafnvel gefins til að flýta fyrir orkuskiptum.
Afhendingarstöðum þarf svo að fjölga samfara aukinni notkun metans. Í þessu hefur ríkt hægagangur og menn virðast gleyma því að brennsla metans á báli er sóun. Notkun metans sparar innflutning á öðru eldsneyti sem er allra hagur. Borgarfulltrúi Flokks fólksins heyrir ekki mikið af hvatningu um að nýta metan. Að metanbílar skyldu verða undanskildir frá vistvænum flokki bíla í nýjum reglum er með óllíkindum enda líklegt að bíll sem er metanbíll aki að mestu á metani þótt hann sé einnig bensínbíll og að bensínið á metanbílunum sé fyrst og fremst notað sem varaafl.
Það sem hér um ræðir er að borgin er að sóa orkugjafa sem væri þess í stað hægt að nýta öllum til góðs. Borgarfulltrúi Flokk fólksins hefur áður bent á að skynsamlegt væri að Strætó bs. eignaðist fleiri metanvagna og nýtti gasið frá Sorpu. Hér getur borgarstjórn beitt sér og á að gera það með því að hvetja þessi fyrirtæki til samtals og samvinnu og tryggja þannig að orkugjafi sem nóg er til af nýtist. til að tryggja hagræðingu og sparnaði.
Almennt séð þá er vont til þess að vita að Sorpa skuli ekki hafa reynt að markaðssetja metanið meira og einfaldlega fundið leiðir til að borgarbúar geti notið góðs af því á bíla sína sem lið í orkuskiptum og með umhverfissjónarmið að leiðarljósi
Sorpa í rusli
29.2.2020 | 10:20
Sorpa með allt niður um sig
24.2.2020 | 17:53
Í morgun var fundur um málefni Sorpu sem okkur borgar- og bæjarfulltrúum var boðið á en eins og menn vita þá hefur minnihluti sveitastjórnar enga aðkomu að málefni byggðasamlaga eins og Sorpu og Strætó bs.
Ég hef lagt það til munnlega og skriflega í bókunum að stjórn víki og skipta þarf líka um endurskoðendur sem og alla sem áttu að hafa eftirlit. Í skýrslu innri endurskoðunar fær stjórn áfellisdóm fyrir andvaraleysi. Það er eins og stjórnin hafi bara beðið eftir að fá gögn á silfurfati í stað þess að eiga frumkvæði af því að nálgast þau. Sorpa er einfaldlega með allt niður um sig og það var ljóst í fyrra þegar milljarða bakreikningur kom vegna byggingu nýrrar jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi.
Þetta fyrirtæki er með ólíkindum. Eins og vitað er framleiðist mikið af metani í Álfsnesi og í stað þess að koma því á bíla er það brennt á báli en það verður að gera ef metan er ekki nýtt til að það fari ekki út í andrúmslofti. Það er þetta með hægri og vinstri höndina í borgarstjórnarmeirihlutanum, Sorpa brennir metani og Strætó notar jarðeldsneyti á vagnanna utan örfárra. Þessi tvö fyrirtæki eru bæði í eigu borgarinnar að stórum hluta en þau geta ekki talað saman til að annað get nýtt það sem hitt framleiðir.
Til að bíta höfuðið af skömminni hefur skipulags- og samgönguráð samþykkt að taka metanbíla af lista vistvænna bíla að því, eins og sagt er í nýjum reglum, að það er ekki hægt að tryggja að þeir aki á vistvæna orkugjafanum.
Á þriðjudaginn í næstu viku er fundur borgarstjórnar. Þá verður Flokkur fólksins með tillögu er varðar notkun metans í stað þess að brenna það á báli. Það er ekki fyrsta tillaga Flokks fólksins um notkun metans.
Tillagan hljóðar svona:
Flokkur fólksins leggur til að borgarstjórn samþykki að fela fulltrúa sínum í stjórn Sorpu að leggja fram tillögu um að söluverð metans verði lækkað og miðist til frambúðar við kostnað Sorpu við það að flytja það frá framleiðslustað á sölustað.
Metanbílar hafa verið teknir af lista vistvænna bíla af því, eins og sagt er í reglum, ekki er hægt að tryggja að þeir aki á vistvæna orkugjafanum. Það eru því engar ívilnanir frá borginni fyrir eigendur metanbíla lengur, en samkvæmt nýjum reglum Reykjavíkurborgar um bíla mega þeir sem teljast vistvænir leggja gjaldfrjálst í 90 mínútur í gjaldskyld stæði. Þetta eru reglur sem eru ekki til þess gerðar að hvetja fólk í orkuskiptin. Á sama tíma er Sorpa, sem er byggðasamlag, að brenna metani á báli í stórum stíl. Metanið er því verðlaust á söfnunarstað. Flokkur fólksins vill með þessari tillögu enn og aftur leggja áherslu á mikilvægi þess að nýta þennan vistvæna orkugjafa sem nóg er til af og verður enn meira þegar ný jarðgerðarstöð í Álfsnesi er komin í fulla virkni. SORPA veit augljóslega um flesta notkunarmöguleika en metan selst ekki að sjálfu sér. Metan þarf að selja á hinn almenna bílaflota í Reykjavík. Verð á metani þarf þess vegna að vera samkeppnishæft til samaburðar við aðra orkugjafa svo bíleigendur kaupi bíla sem ganga fyrir metani.
Gagg og væl minnihlutans
21.2.2020 | 11:50
Hún nafna mín sendi okkur í minnihlutanum tóninn í vikunni í leiðara Fréttablaðsins. Það er bara gaman af því. Hún talar eins og við hötum göngugötur en svo einfalt er málið ekki.
Hef ekkert á móti göngugötum per se. Ég vil bara að haft sé samráð við rekstraraðila á svæðinu, að aðgengi fyrir fatlaða sé gott (og í samræmi við lög), að borin sé virðing fyrir þeim sem búa ekki í miðbænum heldur koma lengra að til að sinna erindum og sækja vinnu og sem þurfa og vilja nota bíl sinn. Leysa þarf jafnframt umferðarhnúta og hafa klár bílastæði fyrir þennan hóp sem og utanbæjarfólk. Einnig þarf að horfast í augu við þá staðreynd að eldri borgarar, margir hverjir, eru ekki hrifnir af bílastæðahúsum. Það er ekki þannig að flestir búi við hlið vinnustaðar síns og öll þekkjum við hvernig almenningssamgöngur virka hér eða öllu heldur virka ekki. Flóknara gagg og væl er það nú ekki hjá okkur í Flokki fólksins
Börn aftur tekin að veikjast í Fossvogsskóla
20.2.2020 | 11:57
Skjalaskandallinn til borgarlögmanns? Hvort á maður að gráta eða hlægja?
16.2.2020 | 20:35
Frístundakortið ekki fyrir börn fátækra foreldra
14.2.2020 | 16:20
Á næsta fundi borgarstjórnar 18. febrúar vil ég ræða enn meira um afbökun reglna frístundakortsins og minna aftur á upphaflegan tilgang þess. Ég mun tengja umræðuna við tillögu mína um að fjölga stöðugildum hjá Leikni sem er lítið íþróttafélag í Efra Breiðholti. Félagið berst í bökkum og er að reyna að halda úti fótboltadeild með aðeins einn starfsmann. Í hverfi 111 býr hæsta hlutfall fjölskyldna með fjárhagsaðstoð og hæsta hlutfall borgara af erlendum uppruna. Þar er einnig lægsta hlutfall barna sem stunda íþróttir en í þessu hverfi er jafnframt Frístundakortið minnst nýtt af öllum hverfum eða innan við 70%. Í sumum öðrum hverfum er notkun Kortsins yfir 90%. Ef horft er á íþróttir einungis þá er notkun þess einnig minnst í hverfi 111 í samanburði við önnur hverfi(aðeins 21% stúlkna og 43% drengja).
Ég tel að ein af ástæðum þess að börnin eru ekki að nota Frístundakortið í hverfi 111 sé sú að foreldrar sem eru í fjárhagserfiðleikum eru tilneyddir til að nota rétt barna sinn til frístundakortsins til að greiða frístundaheimilið eða tungumálakennslu auk þess sem gefa þarf upp rétt Frístundakortsins til að hægt sé að sækja um fjárhagsaðstoð, skuldaskjól eða afskriftir skulda hjá borginni. Svona er nú komið fyrir Frístundakorti barnanna.
Haustið 2018 voru 6.298 börn í 1.-4. bekk. Frístundakortið var nýtt upp í greiðslu fyrir dvöl 1.503 barna á frístundaheimili eða 23,9% þeirra.
Upphaflegur tilgangur Frístundakortin var að öll börn án tillits til efnahags foreldra geti lagt stund á íþróttir. Árið 2009 var af tilstuðlan VG reglum um Frístundakortið breytt, fyrst þannig að hægt var að nota það til að greiða frístundaheimili en svo var haldið áfram að gengisfella Kortið með því að tengja það við fjárhagsaðstoð og skuldir foreldra. Þar með gat barnið ekki notað það til að greiða með æfingagjöld t.d. til að leggja stund á fótboltaiðkun hjá Leikni.
Hægt er að fara aðrar leiðir til að hjálpa fólki í fjárhagsvanda en að hrifsa af börnunum rétt þeirra til að nota Frístundakortið. Ég hef bent á styrki á grundvelli 16. gr. A. Eins og staðan er nú er ekki hægt að sækja um styrk samkv. þeirri grein nema uppfylla skilyrði um fjárhagsaðstoð og til að uppfylla skilyrði um fjárhagsaðstoð þarf að gefa eftir rétt barnsins til Frístundakortsins. Svona ganga nú kaupin á eyrinni fyrir sig í borginni.
Börn eru á Frístundaheimili til þess að foreldrar geti unnið úti. Eins og þessum málum er háttað í dag er verið að beita börn efnaminni foreldra órétti. Það er verið að gefa þeim tækifæri með hægri hendi en hrifsa það til baka með þeirri vinstri.
Skepnurnar í skjól áður en óveðrið skellur á!
13.2.2020 | 19:31
Speak English?
6.2.2020 | 19:47
Ég er alin upp í vesturbæ Reykjavíkur og miðbærinn var leiksvæðið mitt. Í hálfa öld hef ég fylgst með miðbænum sem hefur verið í alls kyns birtingarmyndum. Nú er hann að taka á sig mynd sem ekki hefur sést fyrr. Íslendingum hefur fækkað í bænum og nánast hvert sem litið er, á veitingahús eða í verslun er spurt hvort maður tali ensku? "Já ég tala ensku" svo langar mig mjög oft að bæta við, "en þegar ég heimsæki miðbæinn minn langar mig bara helst að tala Íslensku".
Þegar ég kem inn í rammgerða Íslenska verslun eins og Rammagerðina langar mig helst alls ekki að tala ensku við afgreiðslufólkið. En ég verð að gera það því annars skilja þau mig ekki.
Ég vil að miðbærinn sé fyrir alla borgarbúa og að utanbæjarfólki sé boðið velkomið að heimsækja hann með því að auðvelda aðgengi. Til þess að aðkoma að miðbænum sé eftirsóknarverð þarf að létta á umferðinni með því að breyta ljósastýringum og hafa bílastæði tiltæk. Bílastæðahús eru ekki að gera sig fyrir alla.
Það væri líka voða gaman að geta talað móðurmálið í bænum svona alla vega sem oftast.
Umræða um lokanir gatna: Laugavegar, Bankastrætis og Skólavörðustígs og þá bláköldu staðreynd að fjöldi fyrirtækja hafa yfirgefið bæinn hefur verið hávær. Verslanir þrífast ekki nema inn í þær komi viðskiptavinir. Eftir að þessum götum lokaði fyrir umferð allt árið um kring hurfu kúnnar og þar með tugir verslana sem nú gera það gott annars staðar þar sem aðgengi er betra fyrir alla.
Í bænum er vissulega fólk á ferð. Þar býr fólk sem er eðli málsins samkvæmt á ferð um bæinn og svo eru það ferðamennirnir sem hefur reyndar fækkað og munu sennilega fækka enn meira t.d. vegna uppkominnar skaðlegrar veiru, sem vonandi verður ekki að faraldri.
Um fækkun Íslendinga í bæinn er varla lengur deilt. Meirihlutinn í borgarstjórn mótmælir því ekki einu sinni lengur þegar á þetta er minnt. Hann situr bara og þegir. Í borgarstjórn er ég fulltrúi flokks sem var stofnaður til að gæta m.a. hagsmuna öryrkja og eldri borgara. Áhersla mín sem borgarfulltrúi er á aðgengi þeirra sem eiga erfitt um gang að einhverjum orsökum.
Ég og við í Flokki fólksins leggjum mikla áherslu á að haft sé gott samráð við fólkið en því er ekki að skipta í þessum máli. Þeir flokkar sem eru við stjórn lögðu áherslu á lýðræði og samráð í kosningabaráttunni en það voru og eru bara orð og hafa í raun aldrei verið annað en orð.
Borgaryfirvöld eru ekki enn farin að virða ný umferðarlög sem tóku gildi 1. janúar 2020. Í þeim kveður á um að heimilt er fyrir P-merkta bíla að aka og leggja á göngugötu. Vegna hindrana komast engir P-merktir bílar niður neðri hluta Laugavegar eða Bankastrætis sem dæmi.
Flokkur fólksins vill einnig hugsa um eldra fólk í þessu sambandi því stundum er það einfaldlega þannig að þegar fólk er komið yfir sjötugt þá treystir það sér ekki að ganga langt.
Miðbærinn hefur á hálfri öld verið alla vega og alls konar, allt frá því að vera galtómur og kuldalegur yfir í að vera um tíma hlýlegur og fullur af lífi og fjöri. Undanfarið ár hefur sigið á ógæfuhliðina og það fyrst og fremst vegna þess að borgaryfirvöld telja að lokanir gatna og breytingar á þeim yfir í að vera alfarið göngugötur allt árið um kring sé málið. Þetta halda þau af því að svona er þetta t.d. í Osló.
Ef rekstraraðilar finna að þetta hefur haft skaðleg áhrif á viðskipti þeirra og viðskiptavinir segjast ekki treysta sér lengur í bæinn vegna aðgengisvanda hljóta borgaryfirvöld að verða að staldra við og hlusta. Hvers lags yfirvöld eru það sem hlusta ekki á hvar og hvernig hjarta borgarbúa slær?
Eftir sitja einsleitar verslanir, veitinga- og skemmtistaðir og auðvitað nokkrar aðrar verslanir, misvel settar, sumar sem rétt svo skrimta. Lengi getur vont versnað. Nú standa framkvæmdir fyrir dyrum að breyta Laugavegi í göngugötu. Ég velti því fyrir mér hvort það bíði Laugavegar það sama og Hverfisgötunnar en þar töfðust framkvæmdir út í hið óendanlega með tilheyrandi alvarlegum afleiðingum fyrir rekstraraðila eins og við hljótum öll að muna.
Borgarmeirihlutinn háður SSH með allar ákvarðanir
5.2.2020 | 22:15
Það voru heitar umræður um skýrslu innri endurskoðunar um Sorpu á fundi borgarstjórnar í gær. Stjórn ætlar ekki að axla ábyrgð nema í orðum í mesta lagi.
Bókun Flokks fólksins við umræðu um Skýrslu innri endurskoðunar um Sorpu:
Borgarfulltrúi Flokks fólksins vill ítreka þá tillögu sína úr borgarráði að stjórnarmaður borgarinnar axli ábyrgð og víki og helst á öll stjórnin að gera það einnig. Niðurstöður skýrslunnar eru afgerandi, stjórnunarhættir eru ámælisverðir, segir í skýrslunni. Skuld er skellt á framkvæmdarstjórann. Hann hefur vissulega mikla ábyrgð en hún er fyrst og fremst að halda utan um daglegan rekstur og vissulega að halda stjórn upplýstri um málefni sem tengjast Sorpu. En stjórnarmenn bera stærstu ábyrgðina. Stjórnarmenn skulu, eins og segir í skýrslu innri endurskoðunar, óska eftir og kynna sér öll þau gögn og allar þær upplýsingar sem stjórn telur sig þurfa til að stýra fyrirtækinu. Byggðasamlagskerfið er gallað kerfi eins og það er núna ef stjórn stendur sig ekki þá er varla von á góðu. Ekki er langt síða að á fundi borgarstjórnar var leitað samþykkis fyrir ábyrgð á láni til að mæta framúrkeyrslu Sorpu. Nú neyðist meirihlutinn til að skoða málið og treystir sér aðeins til að gera það undir verndarvæng SSH. Það hefði þurft að grípa fyrr í taumanna. Ef borgin ætlar að taka þátt í byggðasamlagi þá þarf hún sem stærsti eigandinn að hafa stjórnunarheimildir í samræmi við ábyrgð og eignarhald og skipa þarf stjórn sem hefur einhverjar þekkingu á málefnum Sorpu.
Bókun Flokks fólksins við tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og breytingatillögu meirihlutans sem meirihlutinn og Sjálfstæðismenn samþykktu:
Tillaga Sjálfstæðisflokksins er út af borðinu enda náði hún ekki nógu langt. Að því leyti er tillaga meirihlutans sem nú er lögð fram skárri enda meira í takt við tillögu Flokks fólksins frá í september 2019 þess efnis að borgarstjórn samþykki að aðild borgarinnar að byggðasamlögum verði skoðað með tilliti til þess að auka lýðræðislega aðkomu borgarbúa að þeim. Flokkur fólksins hefur ítrekað sagt allt frá upphafi kjörtímabils að byggðasamlög eins og þau starfa nú eru ólýðræðisleg og fjarlæg hinum almenna borgara. Tillaga Flokks fólksins var felld í september og Sjálfstæðisflokkur sat þá hjá. Sá hluti breytingartillögu meirihlutans sem er ásættanlegur er: að farið verði yfir skipulag og stjórnarhætti byggðasamlaganna til að tryggja hagsmuni eigenda þeirra. En það sem hugnast ekki Flokki fólksins er samkrull með utanaðkomandi ráðgjöfum og Samtökum Sveitarfélaga. Flokkur fólksins getur því ekki stutt þessa tillögu meirihlutans. Flokkur fólksins telur borgarmeirihlutann of háðan Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu með hin ýmsu mál. Reykjavík er sjálfstætt sveitarfélag, lang stærst og að á gæta fyrst og fremst hagsmuna borgarbúa. Ef byggðasamlag á að vera lýðræðislegt þurfa stjórnunarheimildir að vera í samræmi við ábyrgð en svo eru byggðasamlög náttúrulega ekkert lögmál.
Stjórn Sorpu á að víkja
2.2.2020 | 20:08
Stýrihópur um þjónustu borgarinnar við gæludýr
25.1.2020 | 15:01
Færum dýrahald í borginni til nútímans
Gæludýr, þar með taldir hundar og kettir, eru hluti af lífi fjölmargra og skipa stóran tilfinninga- og félagslegan sess í hjörtu eigenda þeirra. Öll þekkjum við ýmist persónulega eða hjá vinum og vandamönnum hvernig gæludýr geta dimmu í dagsljós breytt, ekki síst hjá þeim sem eru einmana. Margar rannsóknir hafa sýnt fram á góð áhrif af umgengni manna við dýr. Rannsóknir sýna að umgengni við dýr eykur tilfinningalega og líkamlega vellíðan og eykur m.a. sjálfstraust, einbeitingu, athygli sem og minnkar streituviðbrögð. Dýr veita einstaklingnum vinskap, líkamlega snertingu og sýna áhuga og væntumþykju án nokkurra skilyrða. Ást til gæludýrs getur verið djúpstæð. Hundar og kettir eru til dæmis oft hluti af fjölskyldunni. Sú sorg sem nístir þegar gæludýr fellur frá eða er aðskilið frá eiganda sínum þekkjum við mörg, ef ekki af eigin reynslu þá annarra.