Einn brauðmoli í borgarstjórn í gær

Tillögu Flokks fólksins um að borgin ræði við Landspítala um að innleiða bifreiðastæðaklukkur við inngang bráðamóttöku og fæðingardeild var hvorki vísað frá né felld í borgarstjórn eins og vaninn er heldur vísað áfram. Tillagan fær sem sagt að lifa aðeins lengur en örlög hennar eru þó ráðin eins við öll vitum af reynslu. Þakklæti er engu að síður mikið þegar kastað er til manns svona einum brauðmola. Hér er lítil "þakklætisbókun":
 
Borgarfulltrúi Flokks fólksins er þakklát yfir að þessari tillögu var hvorki vísað frá né var hún felld heldur vísað áfram. Borgarfulltrúi vill ítreka að það hefur sýnt sig þar sem þetta fyrirkomulag er í gildi að það er gott. Þess utan hefur það sýnt sig að bifreiðastæðaklukkur er mun kostnaðarminni leið en aðrar leiðir við að innheimta bílastæðagjöld og er hægt að framkvæma strax. Allar mögulegar hindranir sem hægt er að hugsa sé í þessu sambandi er hægt að yfirstíga. Þessi tillaga er tilkomin af ástæðu svo mikið er víst. Við getum öll fundið okkur í þeim aðstæðum að þurfa að komast í flýti undir læknishendur. Þá er gott að geta lagt nálægt inngangi, stillt bifreiðastæðaklukkuna og hlaupið inn stundum með annan en okkur sjálf sem þarfnast aðhlynningu í hvelli. Borgarfulltrúi Flokks fólksins hvetur meirihlutann og þá nefnd sem fær tillöguna til umfjöllunar að meðhöndla hana með opnum huga og freista þess að ræða við forsvarsaðila Landspítala -háskólasjúkrahús.

Vinnuvikan mín í grófum dráttum í borgarmálunum

Ný vika er hafin, hún verður krefjandi en vonandi líka gefandi. Það er borgarstjórn á morgun, velferðarráð á miðvikudaginn og borgarráð á fimmtudaginn.

Á fundi forsætisnefndar á föstudaginn sl. lagði ég til að allir fundir verði opnir. Ástæðan er tvíþætt: Ég held að fundirnir fari betur fram og það eykur einnig gegnsæi, gerir t.d. almenningi og fjölmiðlum kleift að fylgjast betur með störfum borgarfulltrúa í borgarstjórn. Þessari tillögu fylgir greinargerð með frekari skýringu á þessum rökum sem má sjá í fundargerð eða á kolbrunbaldurs.is

Í velferðarmálum erum við Þór Þór Elís Pálsson, varaborgarfulltrúi að vinna að tillögum er varða eldri borgarar annars vegar sem lýtur að félagslegu starfi og virkni og hins vegar möguleika þeirra á sveigjanlegri vinnulokum.

Á fundi borgarráðs í vikunni verð ég með tillögu að dregið verði í sæti á fundi borgarráðs.

Einnig mun ég óska eftir upplýsingum um allar auglýsingar borgarinnar á síðasta kjörtímabili og óska eftir að kostnaður verði sundurliðaður eftir mánuðum, árum og eftir því hvaða fjölmiðla er að ræða. Ég mun einnig óska eftir upplýsingum um magnafslætti ef einhverjir eru.

Í borgarstjórn á morgun er tillaga Flokks Fólksins eftirfarandi:

Lagt er til að borgarstjórn samþykki að fela Reykjavíkurborg í samstarfi við Landspítala – háskólasjúkrahús að innleiða bifreiðastæðaklukkur í ákveðin stæði næst inngangi fyrir þá sem

þurfa að leggja bíl sínum í skyndi vegna neyðartilfellis. Hér er um að ræða framrúðuskífu í stað gjaldmæla.

Framrúðuskífan er notuð mjög víða á meginlandinu, jafnt í miðborgum sem og við aðstæður eins og hér um ræðir. Þessi möguleiki yrði í boði við innganga a.m.k. við bráðamóttökur og fæðingardeild og aðrar deildir þangað sem fólk kann að þurfa að leita í slíkum flýti að það getur ekki tafið við að finna stæði og greiða stöðugjald.

Bílastæðin skulu merkt til umræddra nota. Leyfilegur tími væri tilgreindur á skiltum við stæðin. Sé bifreið lagt lengur en heimilt er er lagt á stöðugjald skv. ákveðinni gjaldskrá.

Hér er ekki meiningin að vera með nákvæma útfærslu á fyrirkomulaginu en sem dæmi mætti nálgast bifreiðaklukkuna í afgreiðslu t.d. bráðavaktar eða í móttöku í anddyri spítalans og á bensínstöðvum.

Greinargerð má sjá bæði á kolbrunblaldurs.is undir borgarmál og einnig á vefnum: borgarstjornibeinni. Málið er síðast á dagskrá.

Utan þessara funda er ýmislegt annað á döfinni, fundur með varaborgarfullrúanum, fundur í stýrihóp um heimilisleysi og fleira

 


TÍMAMÓT hjá þjóðkirkjunni

Ég hef setið á framhaldskirkjuþingi um helgina og í morgun var samþykkt tillaga að nýrri stefnu þjóðkirkjunnar um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni, ofbeldi og meðferð kynferðisbrota innan þjóðkirkjunnar ásamt fylgiskjali með ítarlegu verkferli. Þessi vinna mín, ásamt tveimur öðrum, hefur staðið síðan í nóvember en á kirkjuþingi 2018 var samþykkt tillaga mín og nokkurra annarra að skipa nefnd þriggja fulltrúa til að móta stefnu og verklag. Einnig var lagt til og það samþykkt að setja á laggirnar teymi utanaðkomandi sérfróðra aðilar um þessi mál. Teymið tekur á móti kvörtunum sem upp kunna að koma á starfsstöðvum þjóðkirkjunnar og er varða ofbeldi af hvers lags tagi. Teymið kannar málið eftir ákveðnu verklagi og skilar áliti sínu í greinargerð. Allt starfsfólk kirkjunnar og aðrir þeir sem hagsmuna eiga að gæta og sem telja sig hafa orðið fyrir ofbeldi, einelti eða kynferðislegri áreitni geta vísað máli sínu til Teymis þjóðkirkjunnar. Teymið mun taka til starfa í sumar. Samþykkt þessarar tillögu eru tímamót hjá þjóðkirkjunni og fyrir hönd hennar og starfsmanna er ég afar ánægð með þennan áfanga.

bjalla-kirkjuþings2


Að allir fundir í borginn verði opnir fundir

Var að koma af forsætisnefndarfundi og lagði fram tillögu um að allir fundir borgarráðs, ráða og nefnda verði opnir. Ástæðan er tvíþætt, annars vegar að ég tel að fundirnir fari þá betur fram og hins vegar til að auka gegnsæi.

Svona hljóðar tillagan:

Lagt er til að fundir borgarráðs auk funda nefnda og ráða á vegum Reykjavíkurborgar verði opnir almenningi. Á því verði sú undantekning að fundir verði lokað þegar trúnaðarmál eru til umfjöllunar. Ástæða fyrir að þessi tillaga er lögð fram er að borgarfulltrúi Flokks fólksins telur að með því að hafa fundina opna er líklegra að þeir fari betur fram og að samskipti á þeim verði betri en áður. Markmiðið er einnig að með því að hafa fundina opna eykur það gegnsæi og gerir almenningi og fjölmiðlum þannig kleift að fylgjast betur með störfum borgarstjórnar.

Greinargerð
Borgarfulltrúi Flokks fólksins hefur oft þótt fundir borgarráðs, ráða og nefnda erfiðir og hefur rætt það bæði við valdhafa borgarinnar einstaklingslega og einnig opinberlega. Það er mjög líklegt að með því að hafa fundi opna í þeirri merkingu að þeir séu sendir út á vefinn fari þeir betur fram en áður.

Hvað varðar gegnsæi þá er það þannig að langstærsti hluti af störfum borgarstjórnar fer fram á vettvangi borgarráðs, ráða og nefnda sem starfa í umboði og á ábyrgð hennar. Í flestum tilvikum eru ákvarðanir teknar á þessum fundum og þær síðan staðfestar af borgarstjórn oft án mikillar umræðna. Á meðan fundir ráða og nefnda eru lokaðir hefur almenningur litla sem enga möguleika á að fylgjast með umræðum á þeim vettvangi þar sem málinu er í raun ráðið til lykta. 
Borgarfulltrúi Flokks fólksins telur ekki nauðsynlegt að umræddir fundir verði sendir út í mynd heldur einungis í hljóði í gegnum vefinn. Finna má í 55. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar leyfi fyrir fyrirkomulagi sem þessu um einstaka fundi. Hér er lagt til að samþykktin um opna fundi verði virkjuð þannig að fundir séu almennt opnir nema þegar fjallað er um trúnaðarmál. Umrætt ákvæði í samþykktinni hljóðar svo:

Samkvæmt 55. gr. samþykktar segir: 
Nefndir borgarstjórnar geta ákveðið að efna til opinna funda með borgarbúum, íbúum einstakra hverfa, félögum eða öðrum hagsmunahópum þegar þær hafa til meðferðar mál sem eðlilegt þykir að fjalla um á þann hátt áður en þau eru afgreidd í viðkomandi nefnd. Fagráð sem kosin eru skv. B-lið 63. gr. skulu að jafnaði halda einn opinn fund árlega.


Mikið lagt á starfsmenn borgarinnar. Það er komið nóg!

Borgarritari og borgarstjóri ættu að biðja starfsfólk borgarinnar afsökunar á að hafa brugðist skyldum sínum. Ekkert af þessum andstyggðarmálum hefðu komið upp hefðu þeir sinnt starfi sínu og viðhaft sem dæmi eftirlit eins og þeim bar. Þá hefðum við ekki setið uppi með þetta braggamál. Og hefði borgarritari geta tekið á starfsmannamálum fjármálastjórans og skrifstofustjórans hefði þessi dómur Héraðsdóms aldrei falli sem kostar borgarbúa 5 milljónir. Svo er það jafnréttisbrotið og brot á persónuverndarlögum. Fleira er hægt að telja til. Ég segi eins og borgarritari, það er komið nóg! Það er komið nóg af ábyrgðarleysi, þöggun og að kenna öðrum um. Við vonum innilega að ekki fleiri skítamál eigi eftir að mokast upp. 

Þrátt fyrir allt þetta hefur sennilega enginn minnihluti lagt fram eins mörg góð mál í þágu fólksins í borginni (sjá hér). Við höfum ekki látið þessi skandalmál trufla okkur í því sem við vorum kosin til að gera og lofuðum fólkinu. Alla vega ekki Flokkur fólksins

Ég segi að þessir valdhafar skulda starfsfólki borgarinnar afsökunarbeiðni, að hafa lagt öll þessi ósköp á það. Að ráðast á borgarfulltrúa minnihlutans og kenna þeim um að valda vanlíðan hjá starfsfólki borgarinnar er undirbeltisstað skot til að dreifa athyglinni frá eigin mistökum. Til að toppa þetta segir borgarritari, " þeir sem bregðast við taka þetta greinilega til sín". En þetta stemmir ekki. Ég tek þetta ekki til mín enda hef ekki hallmælt neinum starfsmanni borgarinnar sem sinnir sínu starfi að heiðarleika og alúð en ég ætla samt að bregðast við þessu!!


Síminn er stundum besti vinurinn

Snjalltæki, snjallsíminn og börn eru nokkuð í umræðunni núna. Það versta sem getur hent suma unglinga er að síminn þeirra verði tekinn af þeim. Að gleyma eða týna farsímanum er mörgum fullorðnum hin versta martröð. Síminn er ómissandi hluti af daglegu lífi okkar og er allt að því fastgróinn í lófa margra. Það breytir ekki því að margir eru uggandi yfir börnum þessa lands og hversu háð þau eru orðin snjalltækjum. Á meðan börnin eru í skólanum viljum við að þau sinni náminu af óskertri athygli. Með símann í vasanum, í kjöltunni, í töskunni eða jafnvel undir stílabókinni á borðinu getur verið erfitt að einbeita sér að samfélagsfræði, íslensku eða stærðfræði. Þegar síminn lýsist upp eða gefur frá sér veikt píp þá bara verður maður að gá hvaða skilaboð eru komin á skjáinn. Við þekkjum þetta allflest.

Snjallsíminn og skólinn
Eðlileg spurning er hvort ekki eigi að hvíla símann á meðan börnin eru í skólanum. Einstaka skólar hafa gengið svo langt að banna snjallsímanotkun á skólatíma. Í þeim tilfellum er nemendum heimilt að koma með snjallsíma í skólann en þeir verði settir í vörslu skólaritara á meðan á skólastarfi stendur og ekki afhentir aftur fyrr en í lok skóladags.

Frakkar hafa t.d bannað snjallsíma í grunnskólum með þeim rökum að skólinn eigi að vera sá vettvangur þar sem börn og unglingar eiga félagsleg samskipti sín á milli án truflana frá símtækjum. En það er aldrei gaman að leggja til boð og bönn. Stundum er því brugðið á það ráð að fara mildari leið og vera frekar með vinsamleg tilmæli um að hinir fullorðnu sammælist um að börnin skilji símann eftir fyrir utan skólastofuna á skólatíma.

Börn og samfélagsmiðlar
Eins og vitað er verja börn og unglingar umtalsverðum tíma á samfélagsmiðlum og þá oftast í gegnum snjallsíma. Börn sem hafa einangrað sig frá skóla og félögum vegna kvíða eru líklegri til að „hanga“ meira í símanum og  tölvunni. Rannsóknir hafa sýnt að tengsl eru á milli streitu og kvíða og mikillar netnotkunar sem er einna helst í gegnum símann. Margt af því sem börn gera í tölvu og síma getur auðveldlega valdið spennu, streitu og pirringi. Fyrst má nefna tölvuleiki. Í verstu tilfellum stjórnar gengi barnsins í tölvuleiknum líðan þess. Gangi illa í leiknum verður barnið reitt og pirrað en gangi vel er barnið glatt og kátt. Tölvuleikir og skjánotkun almennt séð hefur aðdráttarafl. Þegar barnið er ekki við skjáinn myndast stundum óþreyja og pirringur. Aðrir hlutir daglegs lífs verða grámyglulegir í augum barns sem upplifir að mestu skemmtunin sé fyrir framan skjáinn. Óhófleg og stundum stjórnlaus skjánotkun getur auðveldlega dregið úr áhuga barns á námi og skólaástundun, jafnvel tómstundum, og samvera með fjölskyldu og vinum minnkar.

Mótvægisaðgerðir/reglur
Sem sálfræðingur til 30 ára sem hefur unnið mikið með börnum, unglingum og foreldrum tel ég mikilvægt að foreldrar hafi gott aðgengi að fræðslu þegar kemur að málefnum barna sinna og þá er snjallsímanotkun engin undantekning. Barn sem eyðir allt að fjórum tímum á dag fyrir framan skjá er í hættu með að þróa með sér kvíðatengd vandamál.

Í þeim tilfellum þar sem foreldrar nefna of mikla tölvunotkun og ónógan svefn sem hluta af kvíðavandanum eru börnin ekki endilega sammála og því ekki alltaf fús til að draga úr notkuninni. Þetta er oft erfitt og reynir á allt heimilisfólkið. 

Stundum má skynja vanmátt foreldra sérstaklega ef barnið hefur lengi haft óheftan og jafnvel eftirlitslausan aðgang að nettengdum skjá. Mörgum foreldrum finnst oft óljóst hvað flokkast sem óhófleg notkun snjallsíma. Þá treysta foreldrar sér stundum ekki til að setja reglur af ótta við að barnið bregðist illa við því. Sumir foreldrar óttast jafnvel að unglingar þeirra munu bregðast við með ofsa, eigi að fara að setja þeim mörk hvað varðar skjá- og netnotkun. Það gæti því verið mjög hjálplegt ef skólinn bjóði foreldrum upp á leiðbeiningar og ráðgjöf um reglur og stuðning til að viðhalda reglunum. Kenna þarf börnunum að umgangast Netið af varúð, vanda tjáskipti sín á samfélagsmiðlum og varast allar myndsendingar sem geta valdið misskilningi eða særindum. Best er að setja viðeigandi mörk og setja reglur um tölvunotkun á heimilinu um leið og barnið kemst á þann aldur að fara að nota tölvu/síma. Reglurnar þurfa að vera í samræmi við aldur og þroska barnsins sem og félags- og námslega stöðu þess.

Börn eiga ekki að hafa eftirlitslausan aðgang að „skjá“ og neti. Ég tel tímabært  að skoða hvort ekki þurfi að stýra snjallsímanotkun í skólum hvort sem það er sett í einhvers konar „bannútgáfu“ eða tillögu um að setja símann í geymslu á skólatíma.

 


Bókunarvald minnihlutans ekki virt á fundum

Að gefnu tilefni fannst mér ég knúin til að leggja fram bókun í borgarráði um hversu langt meirihluti borgarinnar hefur stundum gengið til að hafa áhrif á hvernig borgarfulltrúar minnihlutans bóka í hinum ýmsu málum á lokuðum fundum eins og í borgarráði.

Borgarfulltrúi Flokks fólksins finnst fulltrúar meirihlutans oft hafa gengið allt of langt í að reyna að hafa áhrif á bókanir fulltrúa minnihlutans og gert það með alls kyns ráðum, bæði með því að gagnrýna efni bókanna harðlega og sýna hneykslun og jafnvel fyrirlitningu í öllu sínu viðmóti og jafnvel ákveðnu atferli í verstu tilfellum. Borgarfulltrúi vill minna á að bókunarvald borgarfulltrúa er ríkt.  Bókanir eru alla vegna eins og gengur, vissulega stundum harðorðar enda málin mörg alvarleg eins dæmin hafa sýnt undanfarna mánuði. Upp úr kafinu hafa verið að koma mörg mál sem hafa ekki einungis misboðið minnihlutanum heldur einnig mörgum borgarbúum. Mörg þessara mála hafa verið efni frétta í fjölmiðlum ítrekað, á öllum fjölmiðlum, ríkisfjölmiðlum sem öðrum, á samfélagsmiðlum og í umræðunni almennt séð. Þar hefur málum verið lýst í smáatriðum með upplýsingum um nöfn í þeim tilfellum sem þau eru opinber. Í bókunum sem hér er vísað til er einungis verið að bóka um mál sem eru á dagskrá og í engu tilfelli er verið að upplýsa um neitt nýtt sem ekki hefur verið fjallað um opinberlega. Borgarfulltrúi Flokks fólksins gerir kröfu um að meirihlutinn láti af afskiptum sínum hvað varðar efni bókana enda eiga þau þess kost að gagnbóka óski þau þess.


Reyndu að hafa áhrif á konur yfir áttrætt

Ég var að lesa skýrslu Persónuverndar um notkun Reykjavíkurborgar á persónuupplýsingum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí 2018. Reynt var að spila með konur yfir áttrætt með því að senda þeim gildishlaðin skilaboð til þess fallin að hafa áhrif á kosningahegðun þeirra! 
Hversu lágt er hægt að leggjast? Ég átti von á ýmsu en rann ekki í grun grófleikinn sem liggur að baki. Þarna var verið að misnota eldri borgara, ungt fólk, innflytjendur sem eru kannski í viðkvæmari stöðu til að sjá í gegnum dulin skilaboð. Sem sálfræðingur er ég slegin yfir siðleysinu og trúi varla hversu langt var gengið til að halda völdum.
En þetta er svo sem í takt við annað sem við í minnihlutanum höfum gagnrýnt. Þarna er hver skandallin á fætur öðrum, enn eitt stjórnsýsluhneykslið og hvernig farið er með fjármuni borgarbúa. Hvet ykkur til að lesa þetta en hér eru ákvörðunarorð Persónuverndar:


Á k v ö r ð u n a r o r ð :
Vinnsla Reykjavíkurborgar og rannsakenda við Háskóla Íslands á persónuupplýsingum frá Þjóðskrá Íslands, sem fólst í að senda mismunandi skilaboð til ungra kjósenda fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí 2018, samrýmdist ekki lögum nr. 77/2000.

Vinnsla Reykjavíkurborgar á persónuupplýsingum frá Þjóðskrá Íslands, sem fólst í að senda skilaboð til kvenna 80 ára og eldri og erlendra ríkisborgara fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí 2018, samrýmdist ekki lögum nr. 77/2000.

Vinnsla Þjóðskrár Íslands á persónuupplýsingum sem fól í sér afhendingu upplýsinga til Reykjavíkurborgar um kyn og ríkisfang erlendra ríkisborgara samrýmdist ekki lögum nr. 77/2000.

Ámælisvert er að Reykjavíkurborg hafi ekki veitt Persónuvernd upplýsingar um alla þætti málsins eftir að stofnunin óskaði sérstaklega eftir því með bréfi, dagsettu 14. maí 2018.

 


Pálmamálið er rétt að byrja. Nú á það að fara í raunsæismat

Engin er að mótmæla mikilvægi listar í almenningsrými en í morgun fengum við í borgarráði kynningu á ferlinu sem leiddi til þess að verkið Pálmar var valið. Við þessa kynningu vöknuðu ýmsar spurningar. Til dæmi kom fram að ekki var stuðst við neina staðla við val á þeim sem komust í "úrslit" en það voru listamenn af 164 umsækjendum. Nefndarmenn í forvalsnefndinni höfðu allir listrænan bakgrunn og var það látið duga.

Enn og aftur vill borgarfulltrúi Flokks fólksins benda á margskonar ómöguleika þessa verks í ljósi þess í hvaða aðstæðum því er ætlað að standa. Hæð hjúpsins eru 10 metrar. Eitt af því sem borgarfulltrúi hefur bent á varðar fugla sem setjast ætla á pálmanna með fyrirsjáanlegum afleiðingum. Alvarlegar athugasemdir eru auk þess gerðar við að borgarfulltrúar minnihluta og borgarráðs fá fyrst upplýsingar um vinningstillögunina og aðdraganda hennar í fjölmiðlum. Sýna hefði átt borgarráði þessar átta tillögur áður en tilkynnt var um vinningstillöguna opinberlega. Þá hefðu borgarfulltrúar í það minnsta fengið tækifæri til að lýsa áliti sínu og umfram allt vitað hvers var að vænta áður en tilkynningin fór í fjölmiðla. Að upplýsa minnihlutann hefði verið sjálfsögð tillitssemi og virðing við hann. Með því er ekki verið að gera neins konar kröfu um að ákvörðunin um vinningstillöguna eigi að vera pólitísk að neinu leyti.

Eftirfarandi fyrirspurnir voru lagðar fram í morgun:

Nú hefur borgarstjórn samþykkt að verkefnið Pálmar fari í raunhæfismat og vill Flokkur fólksins spyrja um nákvæmt yfirlit yfir það ferli sem tekur við og hvernig það muni fara fram, hverjir taka þátt í því mati, hvernig og hverjir muni velja þá aðila sem koma til að leggja raunhæfismat á verkið og hvað mun ferlið kosta?

Pálmamynd


Siðareglur borgarinnar í endurskoðun og ekki veitir af

Það er mikið þrasað um siðareglur í borginni núna enda er komið að endurskoðun. Eins og kunnugt er þá er ekki betur séð en að þær hafið verið brotnar t.d. í braggamálinu. Þar var ekki leitað útboða þegar velja átti fólk til ýmis konar vinnu í tengslum við braggann heldur leitað til vina eða kunningja vina sinna til að vinna verkin.

Á síðasta fundi forsætisnefndar var umræða um næstu skref í endurskoðun siðareglna borgarinnar. Okkur í Flokki fólksins finnst mikilvægt að vanda þessa vinnu og leggjum við áherslu á að fenginn verði sérfræðingur til að halda utan hana og að óháð siðanefnd verði sett á laggirnar sem taki til skoðunar meint brot. Mjög mikilvægt er að siðareglur embættismanna séu unnar samhliða siðareglum kjörinna fulltrúa. 

Lögð fram svohljóðandi tillaga Flokks fólksins:

Flokkur fólksins leggur til að fenginn verði utanaðkomandi sérfræðingur í siðareglum og siðfræði til að leiða endurskoðun siðareglna í borginni. Skoða þarf siðareglur embættismanna samhliða. Þegar talað er um að leiða endurskoðun er átt við að halda utan um þessa vinnu frá upphafi til enda. Eins og vitað er hafa þær siðareglur sem eru í gildi ekki verið að virka sem skyldi, eftir þeim hefur ekki alltaf verið farið eins og dæmi eru nýlega um. Vanda þarf til þessarar vinnu og umfram allt taka allan þann tíma sem þarf til að gera siðareglur þannig úr garði að allir sem eiga að fylgja þeim skilji þær og mikilvægi þess að fylgja þeim. „Brjóti“ einstaklingur siðareglur þarf að vera hægt að vísa málinu til utanaðkomandi siðanefndar til að fjalla um málið. Í þessu tilviki skiptir óhæði máli.


Fjöldi listaverka borgarinnar í geymslum

Í allri þessari umræðu um Pálmalistaverkið kom fram að mikill fjöldi listaverka sem borgin á er í geymslum. Þess vegna lagði ég fram svohljóðandi fyrirspurn á síðasta fundi borgarstjórnar:  

Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins óskar eftir upplýsingum um listaverkaeign borgarinnar sem eru ekki í notkun (eru geymd í geymslum). Óskað er eftir lýsingu á þeim og sundurliðun annars vegar á innanhúslistaverkum og hins vegar verkum sem ætluð eru til skreytinga utanhúss.

Hvað varðar listaverkið Pálmar þá óar manni við hæðinni á þessu. Eins og sjá má á þessari mynd er manneskjan bara lítið peð þarna:)Pálmar, listaverk


Að vatns- og fráveitugjald miðist ekki við stærð eignar heldur áætlaða notkun

Tillaga um að miða útreikninga vatns- og fráveitugjalds eignar frekar við áætlaða notkun frekar en stærð var felld. Hugsunin á bak við þessa tillögu var sú að það kemur betur út og er sanngjarnara að miða þetta gjald út frá notkun/fjölda notenda en fermetrastærð. Slík mæling gæti t. d. frekar miðast við fjölda skráðra heimilismanna í hverri íbúð, því notkun fer eftir fjölda notenda en ekki eftir stærð íbúðar.

Í greinargerð með tillögunni kom fram að borgarfulltrúa Flokks fólksins telur það vera ósanngjarnt að reikna þetta gjald út frá fermetrafjölda eignar vegna þess að það segir ekkert til um magnnotkun á vatni eða frárennslislögnum. Að gjaldstofn þessi skuli vera fermetragjald íbúðastærðar (ásamt bílskúr ef við á), kemur afar óhentugt út fyrir eldra fólk. Margt eldra fólk situr eitt eftir í stórri íbúð, eða húsi, sem áður var heimili hjónanna og barna þeirra. Þegar árin færast yfir fljúga börnin úr hreiðrinu. Í besta falli eru þá foreldrarnir eftir í íbúðinni. Ætla má að eldri borgarar noti minna vatn en yngra fólk. Eldamennska og þvottur minnkar mjög líklega. 
Þess utan er innheimtan á sérstöku reikningseyðublaði, sem spurning er hvort uppfyllir lagaskilyrði og reglur Ríkisskattstjóra um tekjuskráningu á sölureikningum. Ástæða þess er sú að á innheimtuskjali er hvorki að sjá tilgreindan einingafjölda eða einingaverð. Á reikningsformið er áritaður reitur fyrir einingaverð en enginn dálkur er fyrir fjölda keyptra eininga þó eining sé miðuð við fermetra. Einungis er tilgreint nafn gjaldsstofns og gjaldfærð upphæð hvers gjaldsstofns.

Svar með afgreiðslunni má sjá hér


Engin viðbrögð ennþá við tillögunni um hjólhýsagarð

Hverfi fyrir smáheimili er í umræðunni núna, var m.a. í fréttum ruv áðan. Enn hef ég ekki fengið svar við tillögunni um hjólhýsagarð. Borgarmeirihlutinn segir að það samræmist ekki stefnunni um þéttingu byggðar. Velferðarráð segir þetta ekki vera velferðarmál. Ég spyr er heimilisleysi ekki velferðarmál?

Tillagan var lögð fyrir í lok júlí og situr föst í meðförum velferðarsviðs:

Tillaga Flokks fólksins um hjólhýsa- og húsbílabyggð

Borgarráð 31. júlí

Lagt er til að borgin tilgreini svæði fyrir hjólhýsi og húsbíla til framtíðar í nálægð við alla helstu grunnþjónustu í Reykjavík. Það er ákveðinn hópur í Reykjavík sem óskar eftir því að búa í hjólhýsunum sínum og það ber að virða. Sem dæmi má nefna að það líður ekki öllum vel að búa í sambýli eins og í fjölbýlishúsum og finnst líka frelsi sem búseta í hjólhýsi eða húsbíl veitir henta sér. Sumir í þessum hópi sem hér um ræðir hafa átt hjólhýsi í mörg ár og hafa verið á flækingi með þau. Veturnir hafa verið sérlega erfiðir því þá loka flest tjaldstæði á landsbyggðinni. Á meðan verið er að undirbúa fullnægjandi hjólhýsa- og húsbýlagarð þar sem hjólhýsabyggð getur risið er lagt til að Laugardalurinn bjóði þennan hóp velkominn allt árið um kring þar til fundinn er hentug staðsetning þar hjólhýsabyggð getur risið í Reykjavík. Á það skal bent að í Laugardalnum er mikið og stórt autt svæði sem er ónotað. Þar er þjónustumiðstöð og sundlaug og stutt í alla aðra þjónustu.
Vísað til Velferðarráðs

Greinargerð:
Það er brýnt að Reykjavíkurborg skapi þessum hópi fullnægjandi aðstæður til að vera með sín hjólhýsi eða húsbíla á stað þar sem þau geta verið örugg til framtíðar. Eins og staðan er núna er mikill húsnæðisvandi í borginni sem er tilkominn vegna langvarandi skorts á hagkvæmu húsnæði hvort heldur er til kaups eða leigu. Með því að vanda til verka við val og umgjörð hjólhýsagarðs þar sem slík byggð getur risið er komið varanlegt og öruggt heimilisúrræði fyrir þá sem kjósa að búa í aðstæðum sem þessum. Í löndum sem við berum okkur saman við eru tjaldstæði fyrir húsbíla og hjólhýsi þar sem fólk býr árið um kring og lætur vel að því. Nútíma hjólhýsi eru ódýr og húsnæði með öllum þægindum. Ný hjólhýsi fyrir t.d. tvær manneskjur kosta um 3 milljónir á Íslandi og 10 ára gamalt hjólhýsi í góðu standi um 1,.5 milljónir. Það þarf því ekki að koma á óvart að fyrir einhverja kann þetta að vera raunhæfur kostur fáist framtíðarstaðsetning sem hentar hjólhýsi sem hugsað er sem heimili í Reykjavík. Það er ákveðinn hópur sem upplifir meira frelsi við að búa í hjólhýsi en að búa í fjölbýlishúsi. Sumum hentar það vel og segjast njóta þess að geta einungis opnað einar dyr hurð og stigið út. Þeir sem hafa reynslu af þessu búsetuformi og líkar það hafa sagt þetta sé ekkert öðruvísi en að búa í litlu einbýlishúsi. Mikilvægt er að leiga sé lág fyrir hjólhýsi eða húsbíl í hjólhýsagarðinum enda eru margir þeir sem kjósa að búa í hjólhýsi efnaminna fólk. Leiga verður að vera í takt við greiðslugetu. Þjónusta Í hjólhýsagarði þarf að vera aðgangur fyrir hjólhýsi/húsbíl að tengjast heitu og köldu vatni og rafmagni. Fullnægjandi hreinlætisaðstaða þarf að vera til staður og möguleiki á aðgangi að eldhúsi og matsal. Í hjólhýsagarði verða að sjálfsögðu að gilda fastmótaðar umgengnisreglur og eftirlit. Gæta þarf þess að þar ríki friður og ró og að enginn setjist þar að sem gerir öðrum ónæði, skapi óróa eða ógn af neinu tagi hvort heldur með hegðun, framkomu eða neikvæðum lífsstíl. Á meðan verið er finna staðsetningu og undirbúa hjólhýsagarð er lagt til að Laugardalurinn bjóði þennan hóp velkominn allt árið um kring eða allt þar til staðsetning hjólhýsagarðs hefur verið ákveðin í Reykjavík og hjólhýsabyggð geti byrjað að rísa. Staðan í dag Staðan í þessum málum er óviðunandi eins og hún er í dag.

Hjólhýsabúendur hafa margir verið í Laugardalnum í óþökk rekstraraðila og borgarinnar. Leiga þar hefur verið hækkuð óheyrilega sem hefur hrakið suma á brott. Sumir hafa sagt þá sögu að þeim hafi verið ráðlagt að fara á tjaldstæði á Laugarvatni. En hængur á því er að þetta fólk er sumt hvert í vinnu í Reykjavík. Öðrum segist hafa verið ráðlagt að leigja rándýrt rúmpláss á gistiheimili sem er með öllu óraunhæft. Enn aðrir segja að þeim hafi verið bent á að búa í tjaldi og þeim jafnvel sagt að sækja síðan um rúmpláss í Víðinesi. Í Víðinesi býr hópur með fjölbreytt vandamál sem kemur og fer auk þess sem þar eru engar almenningssamgöngur. Ekkert af þessum ráðum hentar hópnum sem hér um ræðir, fólki sem vill stöðugleika og næði til að lifa sínu lífi. Þessi hópur vill búa í sínum eigin húsbíl /eða hjólhýsi sem sjálfstæðir einstaklingar. Grunnatriðið í þessu sambandi er að vera á Reykjavíkursvæðinu eða mjög nálægt því og það verður að vera hægt að komast þangað með almenningssamgöngum.

Vísað til meðferðar velferðarráðs.


Halló borgarmeirihluti, jörð kallar

"Listaverk verða hluti af heildarhönnun hverfisins en Reykjavíkurborg og lóðareigendur munu saman verja 140 milljónum króna til kaupa á verkinu" var sagt í fréttum í kvöld. Og allir skála fyrir þessu! 

Fjárhæð sem verja á til kaupa á listaverki eða listaverkum í Vogabyggð nemur 140 milljónum króna og er verkefnið kostað sameiginlega af Reykjavíkurborg og lóðareigendum Vogabyggðar.

Hér er klár staðfesting á hvar forgangsröðun borgarinnar liggur! Og það er ekki hjá börnum og fólki sem bíður á biðlista eftir húsnæði eða nær engan veginn endum saman. Eigum við nokkuð að tala um biðlista í flest alla þjónustu fyrir börn, sálfræðiþjónustu, talmeinaþjónustu...

Ég vil minna á biðlista í húsnæði, fólk sem nær ekki endum saman. Þrá borgarbúar suðrænt loftslag? Hvar hefur það verið staðfest?

Er ekki tímabært að meirihlutinn reyni að fara að snerta jörð??

 Borgarmeirihlutinn lifir í einhverjum allt öðrum heimi en hinn almenni borgarbúi, segi ég, borgarfulltrúi Flokks fólksins sem vill að allir hafi fyrst og fremst fæði, klæði og húsnæði. Ekki étur maður pálmatré? Fólkið fyrst! svo má spá í að flytja inn pálmatré í listaverkaformi eða hvað eina sem þessu fólki kann að detta í hug að gera.

 


Íslenskur arkitekt fann 700 hundruð ára gamalt veggjakrot í Nýborgarkastala

Þórleifur Jónsson sem er íslensk­ur arki­tekt fann nokkuð hundruð ára gam­alt veggjakrot í kjall­ara turns sem til­heyr­ir Ný­borg­ar­k­astala á Fjóni í Dan­mörku. Þórleifur hefur unnið að endurgerð gamalla bygginga í Danmörk þar með talið í Amalíuborg.

Í viðtali segir hann:

„Við skoðun og skrán­ingu á aðstæðum þá sá ég þarna skrift­ir á kjall­ara­veggj­um sem þeir sem hafa verið að vinna hér síðustu ár höfðu ekki tekið eft­ir,“ seg­ir Þór­leif­ur Jóns­son, sem vinn­ur að viðgerð og end­ur­hönn­un kast­al­ans hjá teikni­stof­unni VBM-arki­tekt­er.

Þórleifur Jónsson arkitekt.
Þór­leif­ur Jóns­son arki­tekt.

Fjallað hef­ur verið um fund­inn í dönsk­um miðlum, svo sem á TV2, en rún­irn­ar voru rist­ar á tíma­bil­inu 1300 til 1550 og eru því allt að 700 ára gaml­ar. Í mynd­bandi með frétt­inni má sjá Þór­leif í ís­lenskri lopa­peysu.

„Hugs­an­lega er krotið eft­ir fanga sem geymd­ir hafa verið í turn­in­um,  en það þekk­ist frá öðrum turn­um af þess­ari gerð að kjall­ar­ar þeirra voru notaðir sem fanga­klef­ar,“ út­skýr­ir Þór­leif­ur.

„Og þar sem Ný­borg var kon­ungs­höll gætu þetta verið skrift­ir eft­ir póli­tíska and­stæðinga kon­ungs eða aðra merka menn sem dæmd­ir hafa verið á kon­ungsþingi.“

Um­rædd­an turn seg­ir Þór­leif­ur aðeins vera leif­ar af 35 metra háum vaktt­urni og hring­múr frá ár­inu 1200, þar sem hægt var að skima yfir svæðið. Í dag séu hins veg­ar aðeins varðveitt­ar neðstu þrjár hæðir turns­ins og felst skoðun VBM-arki­tekta einnig í því hvort hægt sé að byggja á hann fleiri hæðir á end­ur­reisa hann.


Borgarstjóri aðeins fulltrúi meirihlutans

Fyrir nokkru var lögð fram tillaga um að oddvitar myndu funda reglulega með þingmönnum, ráðherrum og hitta nefndir þingsins eftir atvikum í málum sem eru sameiginleg ríki og borg. Þessi tillaga var felld í fundi borgarráðs í dag. Fram hefur komið að venjan er sú að borgarfulltrúar hitti þingmenn í kjördæminu tvisvar á ári og er það gott. Í þessu tilfelli er verið að tala um oddvita flokkanna í borginni en ekki alla borgarfulltrúa. Nú er það þannig að borgarstjóri einn sækir fjölmarga fundi með þingmönnum og ráðherrum vegna ýmissa sameiginlegra mála ríkis og borgar. Þar sem borgarstjóri er fulltrúi meirihlutans finnst borgarfulltrúa Flokks fólksins ekki óeðlilegt að oddvitar minnihlutans eftir atvikum sæki einstaka fundi með borgarstjóra þegar hann hittir þingnefndir/aðrar nefndir eða hópa þingsins eða ráðherra. Borgarstjóri er ekki fulltrúi borgarstjórnarflokks Flokks fólksins út á við og getur varla verið talsmaður minnihlutaflokkanna á fundum utan borgarstjórnar.


Meirihlutinn vill ekki að rótað verði meira í þessu máli

Er braggamálið búið?

Margir spyrja nú hvort braggamálinu sé lokið. Já, segir meirihluti borgarstjórnar, málinu er lokið með skýrslu Innri endurskoðunar. Þetta hefur innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar staðfest. Eins og flestir vita sem skoðað hafa þessa skýrslu þá er enn fjölmörgum spurningum ósvarað. Tveir flokkar minnihlutans í borgarstjórn Flokkur fólksins og Miðflokkurinn freistuðu þess á síðasta fundi borgarstjórnar að fá úr nokkrum vafaatriðum skorið með því að leggja til að málinu yrði vísað til þar til bærra yfirvalda til frekari yfirferðar og rannsóknar. Vanræksla á almannafé varðar við efnahagsbrotalög og brot á skjalavörslulögum varðar við almenn hegningarlagabrot. Að sjálfsögðu var allur meirihlutinn á móti tillögunni enda vilja þau alls ekki láta róta meira í þessu máli. Auk þess greiddi fulltrúi Sósíalista mótatkvæði. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiddu tillögunni atkvæði sitt, að undanskildum tveimur þeirra, sem sátu hjá. Í röksemdafærslu þeirra var m.a. sagt að hér væri ekki verið að gæta meðalhófs og að fyrst ætti að ljúka málinu hjá borginni. 

Væri hér um barnaverndarmál að ræða væri vissulega skylda okkar að gæta meðalhófs en hér er ekki um neitt slíkt mál að ræða heldur grófa misnotkun á almannafé og brot á skjalavörslulögum auk brots á sveitarstjórnarlögum og innkaupareglum borgarinnar. Aftur skal ítrekað að ekki verður um frekari vinnslu á þessu máli þar sem því er lokið hjá Reykjavíkurborg með skýrslu Innri endurskoðunar eftir því sem næst er komist.  Við þekkjum það af reynslu hér á landi að oft fennir hratt yfir skandala. Lífið heldur áfram og aðrar fréttir berast sem hjálpa til við að gleyma leiðinlegum málum.

Mörgum íþyngjandi spurningum er enn ósvarað í braggamálinu og má þar nefna 70 m.kr. sem fóru í uppgerð á minjum. Sjá má af þessu að það eru sannarlega ekki öll kurl komin til grafar og vilja fulltrúar tveggja flokka minnihlutans þess vegna halda áfram að grafa. Í hvað fóru þessar 70 m.kr. vegna uppgerðar á minjum í braggaverkefninu? Skyldum við nokkurn tímann eiga eftir að fá svarið við þessari spurningu?

Ítrekað hefur verið vísað í framkvæmdina á braggaverkefninu ýmist sem mistök eða frávik. Hvað varðar hvort hér sé um frávik að ræða er að sjálfsögðu ekki hægt að segja fyrr en önnur framúrkeyrsluverkefni hafa verið skoðuð. Nokkur verkefni sem hafa farið fram úr kostnaðaráætlun s.s Mathöllin á Hlemmi eru á borði Innri endurskoðunar. Tillaga frá Flokki fólksins hefur einnig verið lögð fram um að Innri endurskoðun geri sambærilega úttekt og gerð var á bragganum, á Vitanum, Gröndalshúsinu og Aðalstræti 10.

Það er einkennilegt að geta fullyrt, eins og borgarstjóri hefur gert, að braggamálið séu mistök. Mistök er eitthvað sem maður gerir óvart, hugsanlega af því að maður veit ekki betur eða hefur ekki fengið nægjanlegar eða réttar upplýsingar. Ótalið er síðan ótrúlegur sofandaháttur og ámælisverð embættisafglöp æðstu valdhafa, borgarstjóra, borgarritara og yfirmanns Skrifstofu eigna og atvinnuþróunar.

Auðvitað geta allir gert mistök. Skoðum nú aðeins það sem meirihlutinn fullyrðir að sé frávikið og sem vísað er í sem MISTÖK. Í braggamálinu er staðfest að sveitarstjórnarlög og lög um skjalasöfn voru brotin og háar fjárhæðir greiddar án heimildar. Reglur borgarinnar um innkaup voru brotnar og gefnar voru upp rangar upplýsingar til borgarráðs. Tölvupóstum og afritum af þeim var eytt. Þetta er allt staðfest í skýrslu Innri endurskoðunar borgarinnar og minnisblaði sem nú liggur fyrir.

Það er mikilvægt að muna að það voru fulltrúar minnihlutans sem ráku augun í að eitthvað væri ekki í lagi með þetta braggamál þegar á fundi borgarráðs á haustdögum 2018 var verið að reyna að fá enn meira fé í það. Verkefnið var þá þegar komið langt fram úr kostnaðaráætlun. Hefði minnihlutinn ekki farið að spyrja spurninga um þetta, heimta svör og krefjast þess að staldrað yrði við þá hefði þetta stóra spillingarmál sennilega ekki komist upp á yfirborðið.

GREIN BIRT Á VISI.IS

 


Það sópast milljónirnar úr borgarsjóði til að greiða fyrir klúður

Það fljúga milljónirnar úr borgarsjóði vegna klúðurs borgaryfirvalda. Hér fara þrjár milljónir og skemmst er að minnast dóms vegna ógildingar áminningar skrifstofustjóra en hún áminnti fjármálastjóra Skrifstofu borgarstjóra. Það mál kostaði borgarbúa 6 milljónir. Hér bókun okkar Vigdís Hauksdóttir í þessu máli frá fundi borgarráðs í gær:

Þetta samkomulag Reykjavíkurborgar, annars vegar og Ástráðs Haraldssonar (ÁH) hins vegar að greiða honum 3 milljónir staðfestir skömmina að borgin skyldi hafa brotið jafnréttislög, borg sem hefur hreykt sér fyrir að jafnrétti sé í heiðri haft. Þetta var brot á jafnréttislögum, sem er háalvarlegt mál. Hér er dæmi um enn eitt málið sem útsvarsgreiðendur þurfa að standa skil á í arfaslakri stjórnsýslu í ráðningarmálum í Ráðhúsi Reykjavíkur


Aldrei að gleyma að hafa börnin með

Á síðasta fundi borgarstjórnar lagði meirihlutinn fram tillögu um mótun íþróttastefnu til ársins 2030. Tillagan var góð eins langt og hún náði. Í bókun rakti ég nokkur atriði sem mér fannst að hefði mátt ávarpa í stefnunni þ.m.t. að í þeim stýrihópi sem settur verður á laggirnar til að útfæra stefnuna á að vera fullgildur fulltrúi barna þegar rætt verður um íþróttir barna. Einnig hefði ég viljað sjá þessa stefnu heita Íþrótta- og tómstundastefna
Bókun Flokks fólksins

Þessi tillaga um íþróttastefnu til ársins 2030 er góð. Borgarfulltrúi Flokks fólksins saknar þó ákveðinna þátta og telur að taka eigi inn í stefnu þessa einnig tómstundastarfið þannig að talað sé um íþrótta- og tómstundastarf samhliða. Í þessu sambandi má nefna að víða um borgina er aðstaða fyrir tómstundir sem ekki er fullnýtt. Hér má nefna smíðastofur eða aðstöðu til að smíða, tálga og renna. Hvað varðar börnin þarf að gæta þess að raddir þeirra fái ávallt að heyrast þegar talað er um þætti í þeirra lífi og að í stýrihópnum verði fullgildir fulltrúar barna og unglinga. Loks má ekki gleyma að ávarpa brottfall unglinga úr íþróttum en það er vandamál sem kannski fer ekki alltaf hátt. Hvaða leiðir hefur borgin upp á að bjóða til að hjálpa börnum og sérstaklega unglingum að haldast í íþrótta- og tómstundastarfi? Og meira um börnin. Það er afar mikilvægt að börn fái tækifæri, óski þau þess að spreyta sig í ólíkum íþróttagreinum því eins og við vitum þá getur ein íþróttagrein hentað barni á einum tíma en önnur á öðrum tíma. Því fyrr sem barn kynnist ólíkum íþróttagreinum því minni líkur eru á brottfalli að mati borgarfulltrúa Flokks fólksins. Þetta hafa einnig fjölmargar rannsóknir sýnt.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband