Tímabært að hefja táknmálstúlkun á fundum borgarstjórnar

Í fyrra lagði ég fram tillögu (sjá neðar) um að fundir borgarstórnar verði táknmálstúlkaðir. Tillögunni var vísað til forsætisnefndar og þaðan í umsagnarferli (sjá neðar) en eftir það hefur ekkert heyrst. ÖBI kannast ekki við að hafa fengið málið til umsagnar. Ég hef spurt Félag heyrnalausra en ekki fengið svar. Það er mikilvægt að koma þessu á núna. Eins og sjá má á síðustu dögum hefur færst í vöxt að fréttir og fundir ýmis konar séu táknmálstúlkaðar enda tíðindi válynd um þessar mundir og margt að gerast sem allir verða að fá upplýsingar um. Ég vil ýta við þessu máli núna, reyna að koma þessu á.

Hér er um mannréttindamál að ræða og með því að táknmálstúlka fundi borgarstjórnar er borgarstjórn að framfylgja lögum. Tillagan er liður í að rjúfa enn frekar einangrun heyrnarskertra og heyrnarlausra einstaklinga. Þessi hópur á rétt á því að fá upplýsingar úr samfélaginu og þ.m.t. að geta fylgst með umræðu á sviði stjórnmálanna og annað er snýr að störfum þeirra. Í 5. grein laganna um íslenska táknmálið sem fyrsta mál heyrnarlausra, heyrnarskertra og daufblindra segir: Notendur íslenska táknmálsins eiga rétt á að upplýsingar sem birtar eru opinberlega samkv. Samning Sameinuðu þjóðanna sem brátt verður lögfestur.  

BORGARSTJÓRN 3. september 2019: Tillaga borgarfulltrúa Flokks fólksins um táknmálstúlkun á fundum borgarstjórnar 

Borgarfulltrúi Flokks fólksins leggur til að borgarstjórn samþykki að borgarstjórnarfundir verði túlkaðir á táknmáli. Borgarstjórnarfundir eru tvisvar í mánuði að meðaltali 6-7 klukkustundir hver. Hér er um mannréttindamál að ræða og með því að táknmálstúlka fundi borgarstjórnar er borgarstjórn að framfylgja lögum. 
Tillagan er liður í að rjúfa enn frekar einangrun heyrnarskertra og heyrnarlausra einstaklinga. Þessi hópur á rétt á því að fá upplýsingar úr samfélaginu og þ.m.t. að geta fylgst með umræðu á sviði stjórnmálanna. Íslenska og táknmál heyrnarlausra eru jafn rétthá. Talið er að um 350-400 einstaklingar reiða sig á íslenskt táknmál til tjáningar og samskipta. Að táknmálstúlka fundi borgarstjórnar er vel gerlegt. Hægt er að sjá fyrir sér að túlkunin yrði í útsendingunni frá fundinum,þ.e. sér myndavél væri á túlkinum og túlkunin í glugga á skjánum. Þá getur fólk farið inn á útsendinguna hvar sem það er statt í borginni. Kostnað við að táknmálstúlka borgarstjórnarfundi er lagt til að verði tekið af liðnum „ófyrirséð“. Verkið yrði boðið út samkvæmt útboðsreglum borgarinnar. Í útboði þarf að tryggja að þeir sem gera tilboð í verkið séu með menntun á sviði táknmálstúlkunar. Þær tæknilegu breytingar sem þyrftu að koma til færu einnig í útboð.

Greinargerð
Í lögum um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls frá 7. júní 2011 3 gr. segir að Íslenskt táknmál er fyrsta mál þeirra sem þurfa að reiða sig á það til tjáningar og samskipta. Segir ennfremur að stjórnvöld skulu hlúa að því og styðja. Hver sem hefur þörf fyrir táknmál skal eiga þess kost að læra og nota íslenskt táknmál, jafnskjótt sem máltaka hefst eða frá þeim tíma sem heyrnarleysi, heyrnarskerðing eða daufblinda hefur greinst. Sama rétt eiga nánustu aðstandendur. Í 5. grein laganna um íslenska táknmálið sem fyrsta mál heyrnarlausra, heyrnarskertra og daufblindra segir:

Notendur íslenska táknmálsins eiga rétt á að upplýsingar sem birtar eru opinberlega og fræðslu- og afþreyingarefni sem ætlað er almenningi verði gert þeim aðgengilegt með textun á íslensku eða túlkun á íslenskt táknmál eftir því sem við á.
Óheimilt er að neita heyrnarlausum, heyrnarskertum eða daufblindum manni um atvinnu, skólavist,tómstundir eða aðra þjónustu á grundvelli heyrnarleysis eða þess að hann notar táknmál. Vísað er einnig í Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) en hann er alþjóðasamningur sem felur í sér skyldur aðildarríkja til þess að tryggja réttindi fatlaðs fólks. Íslensk stjórnvöld undirrituðu samninginn árið 2007, fullgiltu hann 2016 en hafa enn ekki lögfest hann. Alþingi samþykkti vorið 2019 þingsályktunartillögu sextán þingmanna að ríkisstjórninni yrði falið að undirbúa lögfestingu SRFF og að frumvarpið skuli lagt fyrir Alþingi eigi síðar en 13. desember 2020. Lögfesting samningsins mun tryggja að fatlað fólk á Íslandi geti byggt rétt sinn á samningnum með beinum hætti. Það þýðir verulega réttarbót. Í samningnum segir: Aðildarríkin skuldbinda sig til þess að tryggja og stuðla að því að öll mannréttindi og grundvallarfrelsi verði í einu og öllu að veruleika fyrir allt fatlað fólk án mismununar af nokkru tagi vegna fötlunar.

  1. desember 2019
    Fundur Aðgengis- og samráðsnefndar

Aðgengis- og samráðsnefnd leggur fram svohljóðandi bókun:

Aðgengis- og samráðsnefnd í málefnum fatlaðs fólks tekur undir það sjónarmið að það sé gott og æskilegt markmið að tryggja aðgengi að fundum borgarstjórnar fyrir heyrnaskert og heyrnarlaust fólk. Nefndin vill þó koma því á framfæri að fólk með heyrnarskerðingu notar ekki endilega táknmál og því kunni að vera að rittúlkun á fundum borgarstjórnar væri nærtækara markmið sem myndi nýtast breiðari hópi, heyrnarlausum, heyrnarskertum sem og heyrnarskertum sem nota táknmál. Aðgengis- og samráðsnefnd vill jafnframt koma því á framfæri að enginn notandi táknmáls er nú í nefndinni og telur nefndin því að Félag heyrnarlausra sé betur til þess fallið að meta hvort æskilegt sé að forgangsraða fjármunum og mannafla í táknmálstúlkun borgarstjórnarfunda frekar en í aðra viðburði á vegum Reykjavíkurborgar. Leggur nefndin jafnframt til að tillagan verði einnig send Heyrnarhjálp, félagi heyrnarskertra á Íslandi, til umsagnar.

Fylgigögn

 

 


Sumarlokanir leikskóla barn síns tíma

Sumarlokanir eða sumaropnanir öllu heldur voru ræddar í borgarstjórn í vikunni. Ég legg áherslu á að auka þjónustu leikskólanna þannig að foreldrar hafi fullt val þegar kemur að leikskólavist barna þeirra á sumrin. Nú verða aðeins 6 leikskólar opnir í ákveðnar vikur í sumar á meðan allir aðrir loka.

Einhver börn þurfa að færast á milli leikskóla. Sum börn eru viðkvæm fyrir slíku raski. Sumarlokanir leikskóla eru að verða barn síns tíma. Það að fyrirskipað sé að loka leikskólum samfellt í einhverjar ákveðnar 4 vikur á sumrin samræmist e.t.v. ekki því þjónustustigi sem væntingar standa til í dag.

Lokanir sem þessar koma illa við sumar fjölskyldur og kannski helst einstæða foreldra sem ekki allir fá frí í vinnu sinni á sama tíma og leikskóli barns lokar.

Það sumar sem nú gengur í garð verður án efa óvenjulegt vegna aðstæðna, COVID-19 og einnig vegna nýafstaðinna verkfalla. Mikilvægt er að taka sérstaklega mið af ólíkum þörfum foreldra á komandi sumri.

Gera þarf grundvallarbreytingar á þessu fyrirkomulagi fyrir sumarið 2021. Þá ætti markmiðið að vera að bjóða fjölskyldum borgarinnar upp á fulla þjónustu og sveigjanleika og að foreldrar hafi þá val um hvenær þeir taka sumarleyfi með börnum sínum. Samhliða verður mannekluvandi leikskólanna vissulega að vera leystur.


Líf og heilsa nr. 1

Blaðamannafundur er nýafstaðinn en þar stóðum við meiri- og minnihlutinn í borgarstjórn saman sem ein heild. Ekkert annað er í boði núna. Í borgarráði i morgun voru fyrstu viðbrögð kynnt. Flokkur fólksins hefur lagt fram 5 tillögur um viðbrögð til að hjálpa þeim sem minnst mega sín, minnihlutahópum eins og heimilislausum sem nú eiga sérstaklega erfitt. En hér eru tvær bókanir Flokks fólksins framlagðar í borgarráði sem snúa beint að viðbrögðum og mögulegum aðgerðum:

Fyrstu aðgerðir til viðspyrnu vegna Covid-19

Líta þarf til fjölmargra hluta í því ástandi sem nú ríkir. Líf og heilsa koma þar fyrst. Leggjast þarf á eitt að öllum verði tryggð atvinna þegar lífið kemst aftur í eðlilegt horf. Huga þarf sérstaklega að minnihlutahópum, hvernig létta megi á þeim. Allar tillögur um að vakta og afla upplýsinga til að greina þörfina eru afar mikilvægar. Tillögur að fresta greiðslum, lækka og fella niður gjöld og frysta lán munu hjálpa mörgum en þær á eftir að útfæra frekar. Aldrei má gleyma að halda samskiptaleiðum opnum á meðan á öllu þessu stendur. Meðal tillagna sem Flokkur fólksins hefur lagt fram eru:
-Að komið verði á sérstakri símsvörun vegna þess að fólk nær ekki alltaf sambandi við þjónustumiðstöðvar
-Að skóla- og velferðaryfirvöld beini þeim tilmælum til skólasamfélagsins að huga sérstaklega að líðan barna sem eiga erfitt með að tjá hugsanir og líðan.
-Að Félagsbústaðir felli niður leigu í 2 til 3 mánuð. Fordæmi eru nú þegar fyrir slíku
-Að Félagsbústaðir hætti að senda leiguskuldir til innheimtu hjá lögfræðingum og frysti þær sem nú eru í innheimtuferli
-Að skóla- og frístundaráð innheimti ekki gjöld fyrir skóla- eða frístundavist, eða annað fyrir þá daga sem börn hafa ekki getað mætt.

Líta þarf í mörg horn

Borgarfulltrúi vill nefna að ekki er vitað hvernig mál munu þróast og hversu lengi veiruástandið varir. Til dæmis er ekki vitað hversu margir missa tekjur að stórum hluta. Finna þarf fjármagn til að mæta alls kyns óvæntum útgjöldum sem þetta ástand útheimtir. Borgarfulltrúi telur að geyma ætti einhver þeirra fjárfreku verkefna t.d. endurgerð opinna svæða, torga og fleira þess háttar. Halda þarf þó úti nægum verkefnum til að allir haldi vinnu en á sama tíma að vernda borgarsjóð. Horfa þarf í hverja krónu til að geta komið inn með aukna beina aðstoð við fólkið á hinum ólíku sviðum. Sparnaðar- og hagræðingarhugmyndir eiga eftir að koma inn sem sýna hvernig hægt er að mynda rými fyrir lækkanir, frestanir og niðurfellingar gjalda og annað það sem mun hjálpa fólki sem berst í bökkum. Það er vandasamt að finna þessa fínu línu sem er fjármagn vegna óvæntra útgjalda en á sama tíma að hafa næg atvinnutækifæri. Borgarfulltrúi vill ekki að nokkur verði án atvinnu. Flýta á lækkun fasteignaskatta af atvinnuhúsnæði sem kostar 470 milljónir. Fjármögnun liggur ekki fyrir þ.e. hvort eigi að taka lán til að mæta þeirri aðgerð?

blaðam. 2


Félagsbústaðir hætti að senda skuldir í innheimtu hjá lögfræðingum

Nú senda Félagsbústaðir allar skuldir  í innheimtu hjá lögfræðingum. Ég hef lagt til að Félagsbústaðir falli frá þessu og gefi aftur fólki tækifæri til að semja um skuldir sína á skrifstofunni. Sú ákvörðun að beina öllum ógreiddum leigugjöldum til innheimtufyrirtækis var vond og sársaukafull fyrir marga.

Flokkur fólksins lagði fram tillögu 2019 í kjölfar þess að ákvörðunin var kynnt á fundi velferðarráðs að fallið yrði frá þessari ákvörðun hið snarasta. 
Vitað er að þegar skuld er komin í innheimtu hjá lögfræðingum þá leggjast innheimtugjöld ofan á skuldina.
Nú ríkir erfitt ástand hjá mörgum vegna Covid-19 og sýnt þykir að einhverjir munu missa vinnu sína eða mæta öðrum erfiðleikum sem veiruváin veldur fólki og samfélaginu. Mikilvægt er að fyrirtæki eins og Félagsbústaðir sýni sveigjanleika, lipurð og mannlegheit og umfram allt að taka mið af þessum erfiðu aðstæðum sem nú ríkja.

Áður hef ég gagnrýnt lögfræðikostnað fyrirtækisins. 
Lögfræðikostnaður Félagsbústaða á fimm ára tímabili vegna innheimtuaðgerða og útburðarmála nam alls 111, 626,386 milljónum króna á fimm ára tímabili. Þetta kemur fram í 
svari  Félagsbústaða vegna fyrirspurnar Flokks fólksins fyrir borgarráði um lögfræðikostnað Félagsbústaða frá 2013 til 2018.


Félagsbústaðir felli niður leigu í 2 til 3 mánuði

Í dag á fundi borgarráðs mun ég leggja fyrir tillögu um að Félagsbústaðir felli niður leigu í 2 til 3 mánuði  vegna kór­ónu­veirunn­ar og skoði jafnframt að veita aukna greiðslufresti í þeim erfiðu aðstæðum sem kórónuveiran hef­ur skapað. Fordæmi um aðgerðir af þessu tagi er nú þegar til. Reikna má með að fjölmargir eigi eftir að verða fyrir barðinu af veiruvánni og þá ekki síst fjárhagslega. Fólk verður fyrir tekjum­issi á næstu vik­um og mánuðum vegna ástands­ins. Hjá Félagsbústöðum leigir viðkvæmur hópur og margir berjast í bökkum fjárhagslega.Í þeim aðstæðum sem nú ríkja er mikilvægt að létt verði áhyggjum af fólki eins og hægt er.


Má ég vera með?

Sem borgarfulltrúi hefði ég haldið að núna sætum við saman meiri- og minnihlutinn í borgarstjórn og ynnum að aðgerðarplani og mótvægisaðgerðum vegna Covid-19. En því er ekki að skipta.
Ég veit svo sem ekki hvað meirihlutinn er að gera en ekki hefur verið óskað eftir aðkomu minnihlutans að þeirri vinnu eftir því sem ég best veit.

Í svona ástandi er það mín sannfæring að við séum sterkari saman en sundruð. Við getum verið sundruð en ekki á hættutímum. Ég, sem kjörinn fulltrúi ber ábyrgð og hef skyldur gagnvart borgarbúum og mitt hlutverk, á þessum fordæmalausa tíma, er að koma að hugmyndavinnu og útfærslu um hvernig huga megi að fólkinu í borginni á meðan varist er og barist gegn Covid-19. Í borgarráði, þann 19. mars lagði ég fram tvær tillögur sem beinast annars vegar að upplýsingagjöf til fólks sem er einangrað og í neyð og hins vegar að hvernig við hlúum að börnum sem eru sérlega viðkvæm vegna t.d. kvíða. Báðum þessum tillögu var hins vegar frestað og komast þar að leiðandi ekki inn í velferðarráð þar sem hægt hefði verið að ræða þær frekar. Stefnt er að fundi í velferðarráði í næstu viku. Mér finnst það blasa við að aðgerðir sem eru mótaðar í breiðri sátt og með aðkomu sem flestra er auðveldara að styðja við og fylgja eftir. Einu tillögur minnihlutans sem fengu framgang á fundinum voru tillögur Sjálfstæðismanna.

Við erum sterkari saman en sundruð og á svona tímum eigum við að vinna saman

 

  1. Borgarfulltrúi Flokks fólksins leggur til að komið verði á a.m.k. tímabundið sérstakri símsvörun hjá Reykjavíkurborg.
    Borið hefur á því að fólk nái ekki sambandi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar. Á þessum óvissutímum er fólk með alls kyns spurningar meðal annars um þjónustu á vegum borgarinnar. Fréttir hafa auk þess borist af fólki í neyð, fólki sem treystir sér ekki út og á ekki mat. Ákveðinn hópur fólks er ekki með tölvur og/eða internet og því þarf að tryggja að þessi hópur geti kallað eftir hjálp án vandræða og fengið nauðsynlegar upplýsingar um þjónustuna sem það þiggur eða annað sem tengist borginni án þess að ýmist þurfa á bíða á línunni eða ná ekki í gegn. Álagið er án efa mikið á þjónustumiðstöðvunum og hafa því ekki allir sem telja sig þurfa náð sambandi við félagsráðgjafa. Einnig getur fólk þurft á annars konar aðstoð að halda og vantar upplýsingar um hvert það geti leitað. Í rauninni er ómögulegt að vita allt um það sem mögulega gæti bjátað að hjá fólki á þessum tímapunkti. Því er lagt til að gripið verði til frekari ráðstafana til að mynda örugga samskiptaleið og það er m.a. gert með því að koma á laggirnar tryggri og öruggri símsvörun.

  2. Borgarfulltrúi Flokks fólksins leggur til að skóla- og frístundaráð sem og velferðaryfirvöld beini þeim tilmælum til starfsmanna skóla og skólaþjónustu að huga sérstaklega að andlegri líðan barna í því ástandi sem nú ríkir vegna COVID-19.
    Mestar áhyggjur þarf að hafa af þeim börnum sem eru „lokuð”, og eiga erfitt með að tjá hugsanir og líðan. Þau kunna að hafa dregið rangar og skaðlegar ályktanir af umræðu um veiruna sem brýnt er að leiðrétta hið fyrsta til að þau geti fundið til öryggis og vissu um að ekkert slæmt muni koma fyrir þau eða þeirra nánustu. Auk aldurs og þroska hafa fjölmargar aðrar breytur, ytri sem innri breytur, áhrif á hvernig börn vinna úr upplýsingum. Orðræðan um faraldinn er í fjölmörgum birtingarmyndum og eðli málsins samkvæmt oft afar tilfinningaþrungin. Útilokað er að halda börnum frá umræðunni enda snýst samfélagið allt í kringum þennan vágest. Börn eru misviðkvæm að eðlisfari. Sum hugsa meira um hættur, sjúkdóma og slys á meðan önnur eru upptekin við annað. Börn með kvíðaröskun eru, í aðstæðum sem þessum, útsettari fyrir öðrum vandamálum t.d. ofsakvíða. Þessum börnum þarf því að veita sérstaka athygli. Börn sem eru lokuð, fámál um líðan sína og hugsanir geta auðveldlega falið vandamál sín það vel að fullorðnir verði þeirra ekki auðveldlega varir.

Er hugsað til barna, þeirra viðkvæmustu

Er hugsað til barnanna.
Lagði þessa tillögu fram í morgun á fundi borgarráðs:
 
Borgarfulltrúi Flokks fólksins leggur til að skóla- og frístundaráð sem og velferðaryfirvöld beini þeim tilmælum til starfsmanna skóla og skólaþjónustu að huga sérstaklega að andlegri líðan barna í því ástandi sem nú ríkir vegna Covid-19. Mestar áhyggjur þarf að hafa af þeim börnum sem eru “lokuð”, og eiga erfitt með að tjá hugsanir og líðan. Þau kunna að hafa dregið rangar og skaðlegar ályktanir af umræðu um veiruna sem brýnt er að leiðrétta hið fyrsta til að þau geti fundið til öryggis og vissu um að ekkert slæmt muni koma fyrir þau eða þeirra nánustu. Auk aldurs og þroska hafa fjölmargar aðrar breytur ytri sem innri breytur áhrif á hvernig börn vinna úr upplýsingum. Orðræðan um faraldinn er í fjölmörgum birtingarmyndum og eðli málsins samkvæmt oft afar tilfinningaþrungin. Útilokað er að halda börnum frá umræðunni enda snýst samfélagið allt í kringum þennan vágest. Börn eru misviðkvæm að eðlisfari. Sum hugsa meira um hættur, sjúkdóma og slys á meðan önnur eru upptekin við annað. Börn með kvíðaröskun eru, í aðstæðum sem þessum, útsettari fyrir öðrum vandamálum t.d. ofsakvíða. Þessum börnum þarf því að veita sérstaka athygli. Börn sem eru lokuð, fámál um líðan sína og hugsanir geta auðveldlega falið vandamál sín það vel að fullorðnir verði þeirra ekki auðveldlega varir.

Takk Kári

Við erum ótrúlega heppin sem einstaklingar og þjóð að eiga Kára að og þá háþróuðu vísindastöð sem hann rekur. Ég vil þakka Kára hans framlag í baráttunni við  Covid-19. Hér eru engin gróðrarsjónamið í gangi heldur aðeins einskær áhugi á að nýta getu og færni í þágu almennings. 


Hvassahraun?

Málefni nýs flugvallar og Hvassahrauns kom á dagskrá borgarráðs í vikunni sökum framlagningar bréfs um tilnefningu tveggja fulltrúa í starfshóp vegna rannsókna á möguleikum á byggingu nýs flugvallar í Hvassahrauni.
Hér er bókun mín:
Fulltrúi Flokks fólksins hefur nokkrar áhyggjur af því hversu miklu fé á að verja í að rannsaka möguleika á flugvelli í Hvassahrauni. Hversu marga starfshópa á eftir að stofna? Vissulega er þetta ekki einungis málefni borgarinnar. Flokkur fólks vill nota tækifærið og nefna nokkur atriði hér í sambandi við Hvassahraunið. Veðurskilyrði þar voru mæld fyrir um 2-3 árum en engar tilraunir í flugi s.s. mælingar á kviku eða skýjahæð hafa verið gerðar. Í skýrslu frá 1970 eftir Leif Magnússon er strax komin vísbending um að þessi staðsetning verði líklega ekki vænleg fyrir flugvöll. Hvassahraun sem möguleg staðsetning fyrir nýjan innanlandsflugvöll hefur verið lengi í umræðunni.

Eins og málið horfir við í dag er óvissan um þennan stað því mikil. Ef mælingar og tilraunir reynast ekki hagstæðar þá er málið á núllreit. Það mun ekki koma í ljós fyrr en eftir nokkur ár þegar niðurstöður mælinga og flugtilrauna liggja fyrir og þá sennilega milljónir ef ekki milljarðar farnir út um gluggann. Ef til kemur að Hvassahraun stenst skoðun er ekki sanngjarnt að borgin greiði helming af hönnunarkostnaði flugvallar í Hvassahrauni. Sá flugvöllur verður ekki innan borgarmarka Reykjavíkur. Ef til kæmi þá er nær að þau sveitarfélög þar sem flugvöllurinn verður tækju þátt í hönnunarkostnaðinum.

Fræða en ekki hræða

Um fátt annað er rætt nú en Covid-19 vírusinn. Mér verður hugsað til barnanna og hvort við, hinir fullorðnu, séum að vanda okkur hvernig við tölum ef börn eru í návist okkar. Um þennan vágest eins og annan sem kann að steðja að þurfum við að ræða af yfirvegun ef börn heyra til. Oft gleymum við fullorðna fólkið að þegar við erum að tala saman þá eru börn að hlusta. Þeirra túlkun og ályktun geta gert þau enn hræddari en ástæða er til. Þau eru jú bara börn. Okkar hlutverk er að fræða þau án þess að hræða og fullvissa þau um að þau séu örugg og að þau þurfi ekkert að óttast.

Fræðsla um erfið mál verður ávallt að markast af aldri barna og þroska og henni þarf að vera fylgt vel eftir. Það skiptir öllu máli að sníða upplýsingar og umræðu eftir aldri, þroska og persónu barnsins ef barnið á ekki að verða heltekið af áhyggjum. Mikilvægt er að kenna börnum hreinlæti og umgengnisvenjur við svona aðstæður og halda þeim nægjanlega upplýstum en ekkert er fengið með því að hræða þau eða gera þau taugaóstyrk.
Börn eru misviðkvæm að eðlisfari. Sum hugsa meira um hættur, sjúkdóma og slys á meðan önnur eru upptekin við annað. Börn með kvíðaröskun taka allt inn á sig sem er í umræðunni og líklegt er til að valda áhyggjum. Afleiðingar láta oft ekki á sér standa, kvíði, lystarleysi og svefnleysi geta fylgt í kjölfarið.

Börn eru næm á líðan foreldra og skynja fljótt ef þeirra nánustu eru með áhyggjur eða eru stressuð. Ef fullorðna fólkið sýnir taugaveiklun og stjórnlausa hræðsluhegðun í návist barna munu börnin verða skelfingu lostin. Foreldrar, afar og ömmur sem eru yfirkomin af skelfingu geta oft ekki leynt því. Börn hlusta á raddblæ og fylgjast grannt með svipbrigðum sinna nánustu til að meta kvíða- og áhyggjustig þeirra. Ef börn sjá að þeir sem eiga að gæta öryggi þeirra eru lamaðir af ótta er öryggiskennd kippt undan fótum þeirra. Fullorðnir eru haldreipi barnanna og það haldreipi þarf að vera sterkt. Þess vegna skiptir öllu máli að útskýra, fræða og svara spurningum barna af yfirvegun og öryggi.
Börn heyra fréttir og sé eftir því tekið að barn er farið að fylgjast með fréttum af Covid-19 vírusnum er mikilvægt að fullorðinn sé til staðar til að útskýra og svara spurningum. Það er mikilvægt að foreldrar geti leiðrétt mögulegar mistúlkanir og misskilning sem kann að koma upp hjá barni sem farið er að fylgjast með fjölmiðlum.


Fádæma hroki stjórnarmanns borgarinnar í Sorpu

Í borgarstjórn á þriðjudag lagði ég fram tillögu um að metan sem er offramboð af yrði selt á kostnaðarverði m.a. til að flýta fyrir orkuskiptum. Metani er brennt á báli í stórum stíl þar sem það er ekki nýtt og það er auðvitað hrein og klár sóun. Ég vil sýna ykkur hér bókun meirihlutans eða Lífar Magneudóttur, stjórnarmanns í Sorpu. Í þessari bókun skín eindæma hroki stjórnarmannsins finnst mér en meti hver fyrir sig:
 
Bókun meirihlutans við tillögu Flokks fólksins um að selja metan á kostnaðarverði.
Tillagan er vanhugsuð. Með henni er borgarfulltrúi Flokks fólksins að leggja til að SORPA bs. gefi metan þar sem aðeins væri rukkað fyrir flutning. Það er engan veginn kostnaðarlaust að framleiða metan og geyma og koma upp viðeigandi yfirbyggingu í kringum starfsemina. Þar fyrir utan gæti tillagan, ef hún næði fram að ganga, brotið í bága við samkeppnislög sem banna fyrirtækjum í markaðsráðandi stöðu að selja vörur undir kostnaðarverði og raska þannig samkeppni.
 
Hér er tillagan í heild með greinargerð og bókun Flokks fólksins:

Flokks fólksins leggur til að borgarstjórn samþykki að fela fulltrúa sínum í stjórn Sorpu að leggja fram tillögu um að söluverð metans verði lækkað og miðist til frambúðar við kostnað Sorpu við það að flytja það frá framleiðslustað á sölustað.
Metanbílar hafa verið teknir af lista vistvænna bíla af því að ekki er hægt að tryggja að þeir aki á vistvæna orkugjafanum eins og segir í rökum. Það eru því engar ívilnanir frá borginni fyrir eigendur metanbíla lengur, en samkvæmt nýjum reglum Reykjavíkurborgar um bíla mega þeir sem teljast vistvænir leggja gjaldfrjálst í 90 mínútur í gjaldskyld stæði. Þessar reglur hvetja ekki fólk í orkuskiptin. Á sama tíma er Sorpa, sem er byggðasamlag, að brenna metani á báli í stórum stíl.
 
Flokkur fólksins vill með þessari tillögu leggja áherslu á mikilvægi þess að nýta þennan vistvæna orkugjafa sem nóg er til af og verður enn meira þegar ný jarðgerðarstöð í Álfsnesi er komin í virkni. Til að selja metan á hinn almenna bílaflota í Reykjavík þarf það að vera samkeppnishæft við aðra orkugjafa svo bíleigendur kaupi bíla sem ganga fyrir metani. Það er betra að fá lítið fyrir það en ekki neitt og þurfa að brenna því. Að nota metan sparar auk þess innflutning á jarðefnaeldsneyti.
 
Greinargerð

Offramboð er af metani og þess vegna er því brennt á söfnunarstað. Mikilvægt er að koma því út fyrir lágt verð. Að öðrum kosti mun það ekki seljast. Nú er ljóst að Sorpa er á hvínandi kúpunni. Einhver umræða er komin í gang um að hefja sölu á metani og selja það dýrt, „til að bjarga Sorpu“. Ef reyna á að selja metan dýrt mun það hafa letjandi áhrif á fjárfestingu fólks á metanbílum. Það mun þá einfaldlega ekki seljast. Metansala mun að sjálfsögðu ekki bjarga Sorpu sem skuldar 4.1 milljarð. Ef hækka á verð á metani er það einfaldlega ávísun á að það mun ekki seljast og enn meira af því verður brennt á báli í Álfsnesi. Hver græðir á því? Flokkur fólksins vill að borgarbúar fái metan á bíla sína á eins ódýran hátt og hægt er og jafnvel gefins til að flýta fyrir orkuskiptum.
Afhendingarstöðum þarf svo að fjölga samfara aukinni notkun metans. Í þessu hefur ríkt hægagangur og menn virðast gleyma því að brennsla metans á báli er sóun. Notkun metans sparar innflutning á öðru eldsneyti sem er allra hagur. Borgarfulltrúi Flokks fólksins heyrir ekki mikið af hvatningu um að nýta metan. Að metanbílar skyldu verða undanskildir frá vistvænum flokki bíla í nýjum reglum er með óllíkindum enda líklegt að bíll sem er metanbíll aki að mestu á metani þótt hann sé einnig bensínbíll og að bensínið á metanbílunum sé fyrst og fremst notað sem varaafl.
Það sem hér um ræðir er að borgin er að sóa orkugjafa sem væri þess í stað hægt að nýta öllum til góðs. Borgarfulltrúi Flokk fólksins hefur áður bent á að skynsamlegt væri að Strætó bs. eignaðist fleiri metanvagna og nýtti gasið frá Sorpu. Hér getur borgarstjórn beitt sér og á að gera það með því að hvetja þessi fyrirtæki til samtals og samvinnu og tryggja þannig að orkugjafi sem nóg er til af nýtist. til að tryggja hagræðingu og sparnaði.
Almennt séð þá er vont til þess að vita að Sorpa skuli ekki hafa reynt að markaðssetja metanið meira og einfaldlega fundið leiðir til að borgarbúar geti notið góðs af því á bíla sína sem lið í orkuskiptum og með umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
 
Bókun Flokks fólksins
Tillagan um að söluverð metans verði lækkað og miðist við flutningsverð hefur verið felld. Ofgnótt er af metani, á því er offramleiðsla. Hvað varðar þennan orkugjafa hefur borgarmeirihlutinn þessi og síðasti haldið einstaklega illa á málum. Í stað þess að finna leiðir til að nýta metan hefur því verið brennt á báli til að menga ekki andrúmsloftið. Hvar er forsjálni og fyrirhyggja þeirra sem stýrt hafa borginni og SORPU. Í engu tilliti hefur verið reynt að markaðssetja metan nema síður sé. Nú vill borgarfulltrúi Flokks fólksins að það sé selt á flutningsverði í þeirri von að það leiði til fjölgunar metanbíla á götum. Með þessari aðgerð er vel hugsanlegt að stórt stökk verði tekið í orkuskiptaferlinu. Nú blasir við að SORPA er í slæmum fjárhagsvanda sem rekja má til lélegrar stjórnunar. Hvorki metan né molta mun bjarga SORPU sem skuldar 4.1 milljarð. Það yrði en ein vond ákvörðunin að ætla að fara að verðleggja metan hátt, það mun einfaldlega þýða að engin mun kaupa það. Betra er að nánast gefa það en sóa því á báli. Hugsa þarf út fyrir boxið og muna að SORPA er í eigu borgarinnar að stórum hluta og það er Strætó bs. líka sem gæti haft einungis metanvagna og nýtt metanið frá SORPU.

Við urðum bara að gera þetta sjálfar, þ.e. vísa braggamálinu áfram

Eins og þeir vita sem hafa fylgst með borgarmálunum þá var tillögu okkar Vigdísar um að vísa skýrslum vegna Nauthólsvegar 100 – braggans, til rannsóknar hjá viðeigandi aðilum vísað frá í borgarstjórn í gær. Sjálfstæðisflokkur og Sósíalistaflokkur sátu hjá við frávísunina. Það lá því beinast við að við tvær f.h. okkar flokka yrðum að gera þetta sjálfar og frá því var gengið í hádeginu í dag. Það verður að koma lúkning í þetta mál með einum eða öðrum hætti. Ef niðurstaðan verður sú að héraðssaksóknari vísi málinu frá eða komist að þeirri niðurstöðu að ekkert saknæmt hafi átt sér stað þá er það bara fínt enda er markmið okkar ekki að reyna að koma neinum illa. En sem kjörnir fulltrúar ber okkur að gera allt sem í okkar valdi stendur til að fá endanlega úr þessu máli skorið. Það skref höfum við nú tvær tekið. Auðvitað var leitt að hinir minnihlutaflokkarnir skyldu ekki standa með okkur í þessu lokaskrefi. Ég reyndi sem dæmi að fá Sjálfstæðimenn til að vera með í tillögunni en þau vildu það ekki. Þau vildu að borgarlögmaður rannsakaði málið en draga má hæfi hans alvarlega í efa vegna tengsla og fyrri ummæla og skrifa um málið. Þær niðurstöður yrðu bara aldrei trúverðugar.

tillaga send

skeyti til héraðs og lögr


Metan á kostnaðarverði og braggamálið í opinbera rannsókn var vísað frá í borgarstjórn

Á fundi borgarstjórnar var þessum tveimur tillögum Flokks fólksins vísað frá og því miður studdu tveir minnihlutaflokkar þær heldur ekki
 
1. Tillaga Flokks fólksins um að söluverð metans verði lækkað og miðist til frambúðar við kostnað Sorpu við það að flytja það frá framleiðslustað á sölustað
 
2. Miðflokkurinn og Flokkur fólksins leggja það til að borgarstjórn samþykki að vísa skýrslu innri endurskoðunar vegna Nauthólsvegar 100 og Skýrslu borgarskjalavarðar um sama efni til héraðssaksóknara og lögreglu annars vegar til að rannsaka hvort embættisbrot hafi verið framið (héraðssaksóknari) og hins vegar hvort brot í opinberu starf hafi verið framið (lögregla).
 
Hér koma bókanir Flokks fólksins í þessum málum:
 
Metan:
Tillagan um að söluverð metans verði lækkað og miðist við flutningsverð hefur verið felld. Ofgnótt er af metani, á því er offramleiðsla. Hvað varðar þennan orkugjafa hefur borgarmeirihlutinn þessi og síðasti haldið einstaklega illa á málum. Í stað þess að finna leiðir til að nýta metan hefur því verið brennt á báli til að menga ekki andrúmsloftið. Hvar er forsjálni og fyrirhyggja þeirra sem stýrt hefur borginni og Sorpu. Í engu tilliti hefur verið reynt að markaðssetja metan nema síður sé. Nú vill borgarfulltrúi Flokks fólksins að það sé selt á flutningsverði í þeirri von að það leiði til fjölgunar metanbíla á götum. Með þessari aðgerð er vel hugsanlegt að stórt stökk verði tekið í orkuskiptaferlinu. Nú blasir við að Sorpa er í slæmum fjárhagsvanda sem leiða má til lélegrar stjórnunar. Hvorki metan né molta mun bjarga Sorpu sem skuldar. 4.1 milljarð. Það yrði en ein vond ákvörðunin að ætla að fara að verðleggja metan hátt, það mun einfaldlega þýða að engin mun kaupa það. Betra er að nánast gefa það en sóa því á báli. Hugsa þarf út fyrir boxið og muna að Sorpa er í eigu borgarinnar að stórum hluta og það er Strætó bs. líka sem gæti haft einungis metanvagna og nýtt metnið frá Sorpu.
 
Vísa bragganum:
Flokkur fólksins telur það sérstakt að borgarstjórn hafi ekki áhuga á að fá lúkningu í braggamálið en til þess að svo megi verða þarf að vísa því til héraðssaksóknara og lögreglu eftir atvikum. Málinu er vísað frá. Flokkur fólksins og Miðflokkurinn lögðu fram sambærilega tillögu árið 2019 og var sú tillaga þá felld. Þá lá skýrsla borgarskjalavarðar ekki fyrir. Sú skýrsla kom út nýlega og segir í niðurstöðum að eftir að Innri endurskoðun hefði fjallað um málið í fyrra, hefðu starfsmenn Reykjavíkurborgar gerst sekir um að brjóta lög um skjalavörslu. Með tilkomu seinni skýrslunnar er enn ríkari ástæða til að fá málið í heild sinni fullrannsakað og fullupplýst. Óumdeilt er að málið allt er klúður og illa hefur verið farið með fé skattgreiðenda. Á þessu vill meirihlutinn ekki axla ábyrgð. Það er mjög mikilvægt að báðar þessar skýrslur fari í opinbera rannsókn annars vegar til héraðssaksókna og hins vegar lögreglu til að rannsaka hvort framið hefur verið embættisbrot og/eða brot í opinberu starfi. Það er eins og borgarstjóri og skipulagsyfirvöld vilji helst að þetta mál gleymist sem fyrst, segja það einstakt tilvik. En er það einstakt tilvik? Borgarstjóri vill að borgarlögmaður rannsaki málið en sú rannsókn og niðurstöður munu aldrei geta orðið trúverðugar.
 
 

Söluverð metans miðist við flutningsgjald á sölustað

Eins og allir vita er offramboð af metani og það brennt á söfnunarstað til þess að það fari ekki út í andrúmsloftið. Þetta er mikil sóun á umhverfisvænum orkugjafa nú þegar við erum sem þjóð að hvetja til orkuskipta. Þess vegna legg ég það til á borgarstjórnarfundi 3. mars að söluverð metans miðist aðeins við flutningsgjald á sölustað.

Tillaga Flokks fólksins um að söluverð metans verði lækkað og miðist til frambúðar við kostnað Sorpu við það að flytja það frá framleiðslustað á sölustað

Flokks fólksins leggur til að borgarstjórn samþykki að fela fulltrúa sínum í stjórn Sorpu að leggja fram tillögu um að söluverð metans verði lækkað og miðist til frambúðar við kostnað Sorpu við það að flytja það frá framleiðslustað á sölustað.
Metanbílar hafa verið teknir af lista vistvænna bíla af því að ekki er hægt að tryggja að þeir aki á vistvæna orkugjafanum eins og segir í rökum. Það eru því engar ívilnanir frá borginni fyrir eigendur metanbíla lengur, en samkvæmt nýjum reglum Reykjavíkurborgar um bíla mega þeir sem teljast vistvænir leggja gjaldfrjálst í 90 mínútur í gjaldskyld stæði. Þessar reglur hvetja ekki fólk í orkuskiptin. Á sama tíma er Sorpa, sem er byggðasamlag, að brenna metani á báli í stórum stíl. Flokkur fólksins vill með þessari tillögu leggja áherslu á mikilvægi þess að nýta þennan vistvæna orkugjafa sem nóg er til af og verður enn meira þegar ný jarðgerðarstöð í Álfsnesi er komin í virkni. Til að selja metan á hinn almenna bílaflota í Reykjavík þarf það að vera samkeppnishæft við aðra orkugjafa svo bíleigendur kaupi bíla sem ganga fyrir metani. Það er betra að fá lítið fyrir það en ekki neitt og þurfa að brenna því. Að nota metan sparar auk þess innflutning á jarðefnaeldsneyti.

Greinargerð

Offramboð er af metani og þess vegna er því brennt á söfnunarstað. Mikilvægt er að koma því út fyrir lágt verð. Að öðrum kosti mun það ekki seljast. Nú er ljóst að Sorpa er á hvínandi kúpunni. Einhver umræða er komin í gang um að hefja sölu á metani og selja það dýrt, „til að bjarga Sorpu“. Ef reyna á að selja metan dýrt mun það hafa letjandi áhrif á fjárfestingu fólks á metanbílum. Það mun þá einfaldlega ekki seljast. Metansala mun að sjálfsögðu ekki bjarga Sorpu sem skuldar 4.1 milljarð. Ef hækka á verð á metani er það einfaldlega ávísun á að það mun ekki seljast og enn meira af því verður brennt á báli í Álfsnesi. Hver græðir á því? Flokkur fólksins vill að borgarbúar fái metan á bíla sína á eins ódýran hátt og hægt er og jafnvel gefins til að flýta fyrir orkuskiptum.

Afhendingarstöðum þarf svo að fjölga samfara aukinni notkun metans. Í þessu hefur ríkt hægagangur og menn virðast gleyma því að brennsla metans á báli er sóun. Notkun metans sparar innflutning á öðru eldsneyti sem er allra hagur. Borgarfulltrúi Flokks fólksins heyrir ekki mikið af hvatningu um að nýta metan. Að metanbílar skyldu verða undanskildir frá vistvænum flokki bíla í nýjum reglum er með óllíkindum enda líklegt að bíll sem er metanbíll aki að mestu á metani þótt hann sé einnig bensínbíll og að bensínið á metanbílunum sé fyrst og fremst notað sem varaafl.

Það sem hér um ræðir er að borgin er að sóa orkugjafa sem væri þess í stað hægt að nýta öllum til góðs. Borgarfulltrúi Flokk fólksins hefur áður bent á að skynsamlegt væri að Strætó bs. eignaðist fleiri metanvagna og nýtti gasið frá Sorpu. Hér getur borgarstjórn beitt sér og á að gera það með því að hvetja þessi fyrirtæki til samtals og samvinnu og tryggja þannig að orkugjafi sem nóg er til af nýtist. til að tryggja hagræðingu og sparnaði.

Almennt séð þá er vont til þess að vita að Sorpa skuli ekki hafa reynt að markaðssetja metanið meira og einfaldlega fundið leiðir til að borgarbúar geti notið góðs af því á bíla sína sem lið í orkuskiptum og með umhverfissjónarmið að leiðarljósi

metan mynd


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband