Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007
Offituvandi á barnsaldri getur dregið dilk á eftir sér.
28.2.2007 | 21:04
Sálfræðilegt innlegg um offituvanda á barnsaldri.
Enda þótt offituvandinn sé án efa erfiður á öllumaldursskeiðum má álykta sem svo að neikvæð áhrif og afleiðingar hans séu alvarlegri hafi hann átt við offituvandamál að stríða strax á unga aldri.
Á aldursskeiðinu 5-18 ára er einstaklingurinn að móta sína eigin sjálfsmynd. Hann skoðar sjálfan sig, ber sig saman við jafnaldrana og speglar sig í umhverfi sínu. Hann lærir fljótt hvað það er sem þykir flott, er viðurkennt og eftirsóknarvert. Skilaboðin sem einstaklingurinn fær um sjálfan sig frá þeim aðilum sem hann umgengst er stór áhrifaþáttur á mótun sjálfsmyndar hans. Sá sem strax á barnsaldri á við offituvanda að stríða er útsettari fyrir neikvæðum athugasemdum frá umhverfi sínu, leyndum sem ljósum. Hann er auk þess í áhættuhópi þeirra sem lagðir eru í einelti; er strítt eða látinn afskiptur. Afleiðingarnar eru oftar en ekki brotin sjálfsmynd; óöryggi, tilfinningaleg vanlíðan og jafnvel þunglyndi. Í slíkri vanlíðan eru félagsleg vandamál oft ekki fjarri. Eitt leiðir af öðru og brátt, ef ekki er aðgáð, getur líf þessa einstaklings verið undirlagt af erfiðleikum sem fylgt getur honum út ævina.
Sökum þess hversu offita er persónulegt mál hefur umræðan verið viðkvæm. Sumir þora ekki að nefna vandamálið því þeir óttast að vera særandi eða skapa óþægilega nærveru með slíku tali. Foreldrar sem hafa verið að horfa upp á börn sín þyngjast óhóflega hafa stundum veigrað sér við að ræða vandamálið opinskátt af ótta við að auka enn frekar á vanlíðan þeirra. Einnig óttast þeir jafnvel að umræðan kunni að hvetja barnið til að grípa til öfgakenndra viðbragða eins og að byrja að borða óreglulega og jafnvel svelta sig. Það liggur hins vegar í augum uppi að offituvandinn verður ekki leystur án þess að horfst verði fyrst í augu við hann, vandinn skilgreindur og lausnir ræddar ekki satt? Það er eins með þetta og allt annað sem telst vera vandamál, það þarf að ræða það!
Offita barna
27.2.2007 | 20:00
Er sinubrennsla enn siður? Ef svo er, þá er það vondur siður!
27.2.2007 | 19:33
Bændur hafa löngum staðið í þeirri trú að sinubrennsla sé til góðs. Þeir sjá að landið grænkar fyrr að vori eftir brunann því að fyrr sést í strá sem vex á nakinni jörð en strá sem fyrst þarf að vaxa upp í gegnum sinu. En við brunann hljóta að tapast mikilvæg næringarefni úr sverðinum og mikið af lífrænu efni tapast einnig. Það er augljóst að fæða fyrir milljónir smárra lífvera fer forgörðum þegar sinueldar brenna, orka tapast úr vistkerfinu og er ekki lengur tiltæk lífríkinu. Með sinubruna má því gera ráð fyrir að gróðurfarið breytist, því að trjágróður þrýfst ekki þar sem brennt er
Sinubrennsla tengist þannig skógrækt. Ef skógrækt á að gefa af sér, verður það ekki fyrr en áratugum seinna eftir að plantað er. Getur sá sem plantar verið öruggur um að svæðið fái að vera í friði fyrir sinubruna svo lengi?Hver er lausnin á biðlistavandamálinu t.d. á Bugl?
26.2.2007 | 20:18
Ljóst er að hér er um uppsafnaðan vanda að ræða. Undanfarin ár hafa læknar og sérfræðingar LSH sent Heilbrigðis- og tryggingarráðuneytinu fjölda skýrslna með tillögum til úrbóta. Þetta eru m.a. tillögur sem ganga út á að auka stjórn á vettvangi og að ábyrgðar- og valdsvið haldist í hendur svo aðeins ein af fjölmörgum tillögum séu nefndar. Margar af þessum tillögum virðast skynsamar og þaulhugsaðar. Þeir sem starfa á þessum stöðum hljóta að vita hvernig best er að skipuleggja og hagræða í kerfinu. En hafa heilbrigðisráðherrar í gegnum tíðina hlustað eða tekið mið af ráðleggingum þeirra?
Sjálf er ég þeirrar skoðunar að við eigum að horfa til nágrannaþjóða okkar og reyna að læra af þeim hvernig reka á skilvirkt heilbrigðiskerfi. Margir eru t.d. sammála um að hin Norðurlöndin séu langt á undan Íslandi í geðheilbrigðismálum hvort sem um er að ræða börn eða fullorðna. Fíkniefnaneytendur mynda annan hóp sem okkar kerfi hefur ekki náð að umvefja nægjanlega vel.
Við verðum að finna leið út úr þessu. Við sem störfum í þessum geira erum máttlaus og manni finnst maður stöðugt vera að tuða en ekkert okkar vill búa við endalausa biðlista. Ég vil að við og auðvitað stjórnmálamennirnir hverju sinni hlusti á raddir notenda, aðstandenda og þeirra fjölmörgu sérfræðinga sem hafa lagt fram vel ígrundaðar tillögur til úrbóta. Kostnað við úrbætur þarf ávallt að meta í ljósi þess ávinnings sem úrbæturnar færa. Til að móta heildstæða stefnu þurfa allir aðilar borðsins að koma að málum. Vinna sem unnin er úr glerhýsi skilar engu. Stefna og leiðir til úrbóta er ekki einkamál stjórnmálamanna.
Framsóknarflokkurinn hefur fengið að spreyta sig á þessu verkefni árum saman án þess að hafa náð viðunandi árangri. Ég vil sjá þetta ráðuneyti komist í hendurnar á sjálfstæðismönnum frá og með næstu kosningum.
14 mánaða biðlisti á Bugl
26.2.2007 | 09:34
Sálfræðilegur prófíll höfundar nafnlausa bréfsins.
25.2.2007 | 19:46
Nú er málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins, Aðalsteinn held ég að hann heiti að reyna að greina sálfræðilegan prófíl höfundar nafnlausa bréfsins. Áhugavert. Sem sálfræðingur freistast maður til að taka þátt í þessu. Ég held að fleiri en einn og fleiri en tveir séu höfundar af þessu bréfi. Klárlega hafa einhverjir lesið það yfir áður en það var sent. Nema hvað, nafnlaus bréf eru óþolandi. Þau sýna einmitt að viðkomandi er huglaus eins og bréfsendarinn segir sjálfur. Hvort sem það er einhver einn eða tveir sem eru ábyrgir fyrir skrifunum þá skora ég á hann eða þá að gefa sig fram.
Varðandi þennan málfarsráðunaut Ríkisútvarpsins, þá hvíslaði einhver að mér að hann hefði sagt til um það hvernig Breiðavík ætti að beygjast. Samkvæmt því sem hann segir er nafnið Breiðavík ekki dregið af því að víkin sé breið heldur dregið af orðinu breiða og ætti því að beygjast Breiðavík um Breiðavík í stað Breiðavík um Breiðuvík.
Ég er persónulega enn í miklum vafa þótt ég sé engin sérfræðingur á þessu sviði. Finnst sem Breiðavík hljóti að draga nafnið að víkinni breiðu.
Karate er frábær íþrótt fyrir unga sem aldna. Mæli með henni.
25.2.2007 | 10:26
Hvað er Karate og hvaða ávinningur fæst með því að stunda Karate?
Orðið karate merkir tóm hönd og vísar til japanskrar bardagalistar. Tækni í karate skiptast aðallega í fernt: högg, stöður, spörk og varnir. Hefð er fyrir því í flestum löndum að tækniheiti og stöður beri japönsk heiti. Það gerir það að verkum að engu máli skiptir frá hvaða landi þjálfarar koma eða hvaðan iðkendur koma; allir geta skilið hvað um er að ræða.
Karate tekur til margra ólíkra þátta í tilveru þess sem íþróttina stunda. Iðkun karate reynir til að mynda á marga ólíka vöðva líkamans suma hverja sem í daglegu lífi eru ekki mjög virkir. Karate reynir sér í lagi á vöðva í fótleggjum og lærvöðva. Næst skal nefna þjálfun andardráttar en með réttri öndun eykst úthald og almenn vellíðan að sama skapi. Sá sem leggur stund á Karate öðlast aukna sjálfsstjórn og aukinn viljastyrk. Aukinn viðbragðsflýtir er enn eitt sem fæst með því að stunda Karate. Þeir sem hafa einna mest áhuga á almennri líkamlegri hreyfingu eru sem sagt ekki sviknir af því að æfa þessa íþrótt.
En víkjum nú að öðrum þáttum í Karate. Virðing og prúðmennska er samofin í uppruna karate. Í karate er þess vegna gerð krafa um að iðkendur komi fram af kurteisi og yfirvegun jafnt gegn andstæðingi sínum sem öðru fólki. Eitt helsta merki í karate er að sýna ávallt kurteisi og virðingu og það gera hneigingarnar. Þeir sem iðka karate ber að hneigja sig fyrir kennara sínum fyrir og eftir æfingar og fyrir andstæðingi sínum bæði fyrir og eftir hverja tækni. Allir hneigja sig þegar þeir koma inn í æfingasalinn og einnig þegar þeir yfirgefa salinn. Þessi íþrótt er því einstaklega góð fyrir unga krakka sem þurfa að auka sjálfsaga sinn og fylgja fyrirmælum
Sjálf hef ég stundað Karate í 3 ár, (hef reyndar verið löt upp á síðkastið) og hafði það af að ná mér í brúnt belti en beltaröðunin er eftirfarandi:
hvítt = byrjendur,- gult,- appelsínugult,- rautt,- grænt,- blátt,- fjólublátt, því næst 3 brún belti (3. kYU, 2. KYU og 1. KYU). Eftir það kemur svarta beltið sem skiptist einnig í 3 stig: fyrsta, annað og þriðja DAN.
Óþolandi mismunun
25.2.2007 | 10:12
Ég vil benda ykkur á greinina hans Harðar Þorgilssonar, sálfræðings sem birt var í Mbl. 23. febrúar s.l. en hún fjallar um það að sálfræðiþjónusta utan stofnana er ekki niðurgreidd af hinu opinbera tryggingarkerfi eins og t.d. þjónustu geðlækna enda þótt um sambærilega þjónustu er að ræða hvað varðar greiningu og meðferð. Vel rökstudd mótmæli sálfræðinga hafa heyrst árum saman sem heilbrigðisráðherrar framsóknarflokksins hefur alla tíð hundsað. Auk þess halda sálfræðingar því fram að verið sé að brjóta samkeppnislög. Hið opinbera er að mismuna starfsstéttum sem eru að starfa á sambærilegum starfsvettgangi
Góð grein hjá Herði.
Valfrelsi eldri borgara til að ákveða hvort þeir vilji vera lengur á vinnumarkaði.
23.2.2007 | 20:22
Alla tíð hefur íslenskt samfélag sent eldri borgara heim af vinnumarkaði þegar þeir hafa náð ákveðnum aldri hvort sem það er 67 ára eða 70 ára. Nú er öldin önnur og við höfum vitkast og lært. Þess vegna er komin tími til að breyta þessu. Það er engin ástæða til að senda eldhresst fólk af vinnumarkaði þótt það hafi náð einhverjum ákveðnum aldri. Þessi hópur er eins misleitur og allir aðrir hópar. Sumir fagna því að hætta að vinna og vilja fara að gera eitthvað annað. Aðrir hætta að vinna af heilsufarsástæðum og enn aðrir vilja ekkert frekar en að halda áfram að vinna enda fullir af starfsorku og elju. Ég vil endilega að við lyftum þessu þaki með þeim hætti að fólk fái að ráða því meira sjálft hvort og hvenær það vill láta af störfum. Það býr í eldri borgurum gífuleg reynsla og uppsöfnuð þekking á ótrúlegustu og ólíklegustu sviðum, sviðum sem yngri kynslóðin mun aldrei kynnast nema í kynnum sínum við eldri borgara. Við skulum ekki taka þennan dýrmæta fjársjóð frá þeim sem nú eru að alast upp og slíta barnsskónum. Engin kynslóð kemur aftur og því ber okkur að hlúa að hverri og einni eftir þvi sem árin líða. Öll verðum við einn góðan veðurdag eldri borgarar. Þess vegna er svo mikilvægt að skapa kringumstæður/umhverfi þar sem ungir, miðaldra og eldri geta unnið sem mest saman. Þannig miðla eldri til þeirra yngri og allir græða.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóð | Facebook
Höft landbúnaðarstefnunnar eins og hún er í núverandi mynd.
23.2.2007 | 19:57
Þeir ríghalda í gamla kerfið enda kannski ekki skrýtið þar sem engum smá fjármunum er varið til að halda þeim gangandi í þessu gamla, ósveiganlega kerfi. Ég vil benda á góða grein um þessi mál sem var í Mbl. um daginn eftir Margréti Jónsdóttur.
Annað þessu tengt eru vandkvæði íslenskra bænda að selja afurðir sínar beint. Breyta þyrfti lögum og reglugerðum þannig að íslenskir bændur geti unnið og selt afurðir sínar beint til kaupenda, enda séu þeir ábyrgir fyrir framleiðslu sinni. Hér kemur ýmisleg framleiðsla til greina t.d. á minjagripum, sultum, pönnukökum, kökum, brauði og öðrum matvælum. Það ferli sem framleiðandi þarf að ganga í gegnum áður en hann getur selt vöru sína er, eins og sakir standa, óþarflega flókið og viðamikið. Staðan í dag er með þeim hætti að til þess að mega framleiða og selja matvæli þarf að taka framleiðslustaðinn út. Framleiðslunni fylgir síðan ámóta eftirlit, líkt og væri um verksmiðjuframleiðslu að ræða. Skilvirkasta eftirlitið felst í þvi að bændur og aðrir þeir sem eru með heimilisframleiðslu séu einfaldlega ábyrgir fyrir sinni vöru. Það eina sem skiptir máli í þessu sambandi er að ef upp koma vandkvæði með vöruna eða í tengslum við hana, verður að vera hægt að rekja hana til seljandans. Víða liggja möguleikar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:03 | Slóð | Facebook