Einhverjir hyggjast borða kjörseðlana í stað þess að skila þeim
25.4.2009 | 09:38
Verði þeim að góðu.
Væri ekki bara mátulegt á þá ef þeir fengju smá í magann?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:51 | Slóð | Facebook
Af hverju skila sumir auðu?
24.4.2009 | 20:08
Það er alltaf einhverjir sem skila auðum kjörseðli. Með því að gera það telja þeir sig vera að tjá ákveðna afstöðu. En hvaða afstöðu eru þeir að lýsa með þessu?
Gaman væri ef við reyndum að orða það með einhverjum hætti. Með því að gera það gæti verið að í ljós komi að ástæður að baki því að skila auðu séu margvíslegar.
Átti eflaust að vera hræðsluáróður
24.4.2009 | 19:49
Allsherjarhrun íslensks efnahagslífs blasir við segir formaður Framsóknarflokksins sem ákvað að tjá sig um niðurstöður á mati sem birt er í skýrslu Endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte og matsfyrirtækisins Oliver Wyman en þessir aðilar hafa unnið að mati á verðmæti eigna sem fluttar verða úr gömlu bönkunum í þá nýju. Sjá nánar þessa frétt:
Skýrslan ekki birt en forsendur skýrðar.
Sennilega hefur þetta átt að vera einhvers konar kosningarhræðsluáróður hjá Framsókn til að byrja með sem nú hefur verið leystur upp í að vera í besta falli misskilningur formannsins.
Jæja, gott að vita að viðskiptaráðherra telji að allsherjarhrun íslensks efnahagslífs sé ekki handan við hornið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:52 | Slóð | Facebook
Sko Grím!
24.4.2009 | 11:36
Frambjóðandi í 6. sæti á lista VG í Norðausturkjördæmi talar tæpitungulaust og lætur sér standa slétt á sama þótt flokksfélagar hans kunni að rísa upp og gera að honum hróp og köll.
Í grein Gríms Atlasonar í Fréttablaðinu í dag hvetur hann til þátttöku í samfélagi Evrópuríkja með þeim hætti að gengið verðir til viðræðna við ESB. Eins og við vitum, hins vegar, er það einmitt ekki á stefnuskrá VG.
Þarna er frambjóðandi sem þorir að taka þjóðarhagsmuni og hagsmuni fólksins fram yfir flokkshagsmuni. Það er að mínu viti eitt af megineinkennum góðs stjórnmálamanns.
Margir kunna að spyrja hvort Grímur væri ekki betur settur í flokki sem hefur það á stefnuskrá sinni að þjóðin gangi til aðildarviðræðna?
Ekkert endilega segi ég. Þetta er alveg sambærilegt og það sem við höfum séð og heyrt af Benedikt Jóhannssyni. Hann er Sjálfstæðismaður í húð og hár en vill að þjóðin gangi til aðildarviðræðna þrátt fyrir að ekki hafi fengist meirihlutasamþykkt fyrir því á síðasta landsfundi Sjálfstæðismanna.
Það er ekkert heillagt lögmál til sem segir að allir þeir sem tilheyri sama stjórnmálaflokki þurfi að vera hundrað prósent sammála um öll mál.
Finni fólk almennt séð skoðunum sínum og sannfæringu stað í grunnstefnu stjórnmálaflokks, má segja að það sé þeirra flokkur.
Ofurtilboð auka ekki trúverðugleika
24.4.2009 | 09:09
Þetta er ekki skynsamlegt fyrir stjórnmálaflokka/frambjóðendur sem vilja gefa af sér traustvekjandi ímynd. Ef svo ólíklega vill til að þetta muni skila einhverjum árangri þá kemur þetta sennilegast í bakið þótt síðar verði.
Einmitt núna er mikilvægt að flokkar og frambjóðendur tali til fólksins með raunsæjum hætti og forðist umfram allt að lofa ekki einhverju sem ekki er nokkur leið að standa við. Ef kjósendur eiga eitthvað skilið eftir það sem á samfélagið hefur dunið, þá er það heiðarleg og einlæg framkoma.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:13 | Slóð | Facebook
Að stjórnmálamenn ákveði vexti sagði formaður Framsóknarflokksins
23.4.2009 | 12:18
Tímabært að stjórnmálamenn taki ákvörðun um vexti sagði formaður Framsóknarflokksins.
Þessi tillaga er algerlega út í hött. Það er afar mikilvægt að treysta sjálfstæði Seðlabankans og fagaðila um stjórn peningamála og vaxtastefnu hér á landi. Það getur verið að allir séu ekki sammála eða ánægðir með ákveðnar aðgerðir eða vaxtastefnu, enda fer það oft eftir hagsmunum mismunandi aðila. En að ætla að fela þetta í hendur stjórnmálamanna væri glapræði og myndi rýra svo trúverðugleika Íslands að afleiðingarnar gætu orðið mjög alvarlegar. Að koma fram með svona fullyrðingu nokkrum dögum fyrir kosningar í von um að snapa atkvæði er að mínu mati vanhugsað.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:22 | Slóð | Facebook
Kosningarnar munu greinilega snúa um ESB viðræður.
22.4.2009 | 20:21
Eftir kosningar hlýtur það að vera algert forgangsverkefni þeirra flokka sem bera sigur úr býtum og mynda ríkisstjórn að þeir marki sem fyrst hér heildstæða peningastefnu.
Bókstaflega allt hangir á þessari spýtu. Þetta þýðir að horfast verður fyrir alvöru í augu við hluti eins og aðildarviðræður við ESB, myntbandalag og upptöku evru.
Allt tal um einhliða upptöku gjaldmiðils stenst engan raunveruleika.
Þessi mál þarfnast skjótrar afgreiðslu og engan tíma má missa ef ekki á illa að fara fyrir þjóðinni.
Ef marka má kannanir nú lítur svo út fyrir að Samfylking og Vinstri Græn nái öruggum meirihluta. Samfylkingin hefur ávallt haft skýr markmið á stefnuskrá sinni hvað viðkemur Íslandi og ESB. Því er ekki að leyna að það er þeirra helsti styrkleiki. Öðru máli gegnir um Vinstri Græn, sem virðast vera með tómt vesen í sinni afstöðu. Úr þeim herbúðum berast loðin svör, hvort, og með hvaða hætti eigi að takast á við þetta verkefni.
Þetta er áhyggjuefni ef ske kynni að VG verði áfram í ríkisstjórn. Í Sjálfstæðisflokknum eru skiptar skoðanir á hvort ganga eigi til viðræðna og er það Akkilesarhæll flokksins nú. Framsóknarflokkurinn, Borgarahreyfingin og Lýðræðishreyfingin vilja viðræður, en Frjálslyndir hins vegar ekki.
Það sem gerst gæti nú að loknum kosningum er að Samfylkingin fái það sem kannanir sýna en vegna vingulsháttar VG, leiti Samfylkingin frekar eftir samstarfi við Framsókn, nái Framsókn nógu mörgum mönnum inn. Kannanir sýna að þeir eru að bæta við sig.
Hvernig líst VG á það?
UPP Á BORÐ MEÐ FRAMTÍÐARSÝN Í FJÁRMÁLUM ÞJÓÐARINNAR eigi síðar en daginn eftir kosningar
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.4.2009 kl. 22:14 | Slóð | Facebook
www.sammala.is
20.4.2009 | 23:20
Ég vil að um þann samning verði rætt á opinn, upplýsandi og fordómalausan máta og hann síðan borinn undir þjóðina í atkvæðagreiðslu til samþykktar eða synjunar.
Þess vegna hef ég skráð mig á www.sammala.is
Telji ég að innihald aðildarsamningsins muni ekki þjóna heildarhagsmunum íslensku þjóðarinnar mun ég ekki hika við að greiða atkvæði gegn honum.
Internetið eins og stórborg án löggæslu.
20.4.2009 | 10:57

Netinu má líkja við stórborg sem er meira og minna án löggæslu.
Þúsundir barna á Íslandi hafa aðgang að Netinu. Fjölmörg hafa aldrei fengið neinar leiðbeiningar um hvernig umgangast skal þessa stórborg og hvernig þeim ber að sneiða hjá öngstrætum hennar. Fjölmörg börn vafra um götur Internetsins án nokkurs eftirlits.
-Einelti á Netinu er vaxandi vandamál. Sumar síður eru stútfullar af óhróðri og níði sem börn og unglingar skrifa um hvert annað.
-Dæmi eru um að ungar stúlkur sem ekki hafa fengið fræðslu og leiðbeiningar um Netið setji myndir af sjálfum sér inn á Netið þar sem þær eru jafnvel fáklæddar og í ögrandi stellingum með alvarlegum afleiðingum.
- Forvarnir, hlutverk foreldra og fleira verður tekið fyrir með Þóri Ingvarssyni, rannsóknarlögreglumanni í þættinum Í nærveru sálar í kvöld., að þessu sinni er hann sýndur kl. 20.30 og endursýndur kl. 22.30.
Þátturinn er annars að öllu jöfnu sýndur á mánudögum kl. 21.30.
Myndskreyttar líkkistur, af hverju ekki?
20.4.2009 | 09:18
Líkkistuverslunin Íslandskistur bjóða upp á myndskreyttar líkkistur. Engin lög gilda um útlit líkkistna en eftir er að sjá hvernig þessi nýjung leggst í fólk.
Af hverju ætti ekki hverjum sem er, hvort heldur sá sem bíður dauðans eða ástvinir hins látna, að velja útlit kistunnar?
Eðlilegast er að hinn látni skilji eftir sig ósk um myndskreytingu en stundum hefur viðkomanda ekki gefist tækifæri á slíku og þá kemur það í hlut ástvina og fjölskyldunnar að gera það.
Einu sinni voru allar líkkistur á Íslandi svartar, svo bættist hvíti liturinn við og nú er fjölbreyttnin mikil, sérstaklega í öðrum löndum.
Frumkvöðlarnir, Stefán og Sveinn hjá Íslandskistum, segja að það sé vissulega mikilvægt að skreytingarnar særi ekki blygðunarsemi þeirra sem eru við útförina.
Það er nefnilega hægt að fara með þetta, eins og allt annað, út í öfgar.
Gott fyrir stjórnmálamenn og kjósendur að vita
19.4.2009 | 13:45
Við tiltekt fann ég gamlar glósur frá Uppeldis- og kennslufræðináminu við HÍ árið 1992.
Hér koma nokkrir punktar eflaust úr æfingarnámsefni um Viðhorf og viðhorfabreytingar:
Þetta gæti gagnast kjósendum að vita.
Ef um er að ræða persónulegan smekk eða gildismat hefur sá sem líkist okkur mestu áhrifin.
Ef um er að ræða staðreyndir þá hefur sá sem er ólíkur okkur frekar áhrif á skoðanir okkar.
Gott fyrir stjórnmálamennina að vita þetta:
Betra er að kynna báðar hliðar málsins ef áheyrendur eru gagnrýnir og meðvitaðir.
Önnur hliðin nægir ef áheyrendur eru jákvæðir og lítið meðvitaðir.
Þurfa að koma til auknir ríkisstyrkir til þess að tryggja nauðsynlega matvælaframleiðslu hér á landi?
16.4.2009 | 13:58
Þurfa að koma til auknir ríkisstyrkir til þess að tryggja nauðsynlega matvælaframleiðslu hér á landi?,
spurði Gísli Einarsson, fréttamaður Harald Benediktsson, formann Bændasamtakanna í fréttum í gær, eins og honum þætti fátt jafn eðlilegt og að auka ríkisstyrki til landbúnaðarmála.
Vegna þess að nú ríkja breyttar aðstæður, liggur fyrir að styrkjaveitinga og ríkisstyrkir almennt séð í hvaða tilgangi sem þær kunna að vera hugsaðir, eru ekki lengur sjálfgefnir. Þess spurning Gísla hljómaði sérkennilega og var hreinlega úr takti við ríkjandi raunveruleika.
Kannski er þetta ekki rétt ályktun og að spurning Gísla hafi átt ágætlega við í þessu viðtalssamhengi.
Formaður Bændasamtakanna svaraði þessari spurningu reyndar ágætlega eða eitthvað á þá leið að það hefði nú dregið úr ríkisstyrkjum og sú hugmynd þeirra um að breyta búvörusamningum með það fyrir augum að auka stöðugleika og tryggja fæðuöryggi hér heima, þyrfti ekki að fela í sér aukna fjármuni. Sjá meira um þetta hér Landbúnaður skiptir máli.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.4.2009 kl. 16:45 | Slóð | Facebook
Allt upp á borð fyrir kosningar
14.4.2009 | 20:47
Alþingiskosningar eru eftir tæpar tvær vikur. Það er alveg bráðnauðsynlegt að öll mál komi nú upp á yfirborðið sem tengjast með einhverjum hætti fjármálum stjórnmálaflokka, einstaklinga vegna prófkjörs eða eignatengslum ráðamanna af því tagi sem vafasöm kunna að þykja.
Það er slæmt ef halda áfram, eftir kosningar, að berast með reglulegu millibili einhverjar sjokkupplýsingar hvort heldur þær tengjast fjármálum flokka eða prófkjörum þingmanna.
Fáum þetta bara allt upp á yfirborðið strax.
Nú þegar skóinn kreppir að í orðsins fyllstu merkingu þurfum við að geta einbeitt okkur að því að halda áfram
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.4.2009 kl. 08:28 | Slóð | Facebook
Hópurinn VINFÚS. Allt um hann í kvöld.
13.4.2009 | 16:59
Í kvöld fjöllum við um þá sem eru félagslega einangraði, eiga t.d. enga vini og hafa hugsanlega gert tölvuna að sínum nánasta vini.
Gestir eru Hervör Alma Árnadóttir, félagsráðgjafi og forstöðumaður Unglingasmiðjunnar Stígs og Jón Heiðar Gunnarsson, verkefnastjóri hjá Hinu Húsinu.
Hvaða úrræði eru í boði fyrir ungmenni sem eru af einhverjum orsökum einangraðir, einmana og upplifa jafnvel mikið vonleysi og kannski einnig tilgangsleysi?
Í nærveru sálar á ÍNN kl. 21.30.
Eðalgóð stjórnsýsla. Hrósa ber þeim sem hrós eiga skilið
10.4.2009 | 17:04
Þeir eru án efa margir sem standa sig vel í starfi, stjórnendur, millistjórnendur og almennir starfsmenn. Minna fer e.t.v. fyrir því að minnst sé á embætti og aðila sem skila verkefnum sínum vel og heiðarlega. Þeim sem það gera ber að hrósa.
Ég vil í þessu sambandi nefna embætti Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu (LRH). Ég hef nokkrum sinnum haft samband við embættið og þá beint við lögreglustjórann m.a. í tengslum við stjórnarsetu mína í Íbúasamtökunum Betra Breiðholt og einnig í tengslum við öflun upplýsinga vegna undirbúnings sjónvarpsþátta og ávallt hef ég fengið skjót og góð svör.
Skýrsla Capacent-Gallup: ÍNN áhorf, mæling á vikudekkun
25,7% landsmanna horfa á ÍNN samkvæmt Capacent-Gallup.
Samkvæmt nýjust áhorfskönnun (mars) Capacent-Gallup horfa 25,7% landsmanna á ÍNN. Þetta er töluverð aukning frá því í desember en þá mældist áhorf 18,6%.
Þátturinn Kynferðislegt áreiti á vinnustað sem sýndur var í gærkvöldi er kominn á visir.is
Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 12:13 | Slóð | Facebook
Er þöggun ennþá hinn ískaldi veruleiki?
6.4.2009 | 16:01
Kynferðislegt áreiti á vinnustöðum Í nærveru sálar í kvöld á ÍNN
Brynhildur G. Flóvez, lögfræðingur er gestur þáttarins.
Meðal umfjöllunarefnis:
-Algengar birtingarmyndir kynferðislegs áreitis
-Hver ákveður viðmiðið?
-Hvernig eru lögin og er þeim almennt séð framfylgt?
-Skylda stjórnenda er að tryggja öryggi og velsæmi á vinnustað. Hvernig geta þeir gert það svo vel sé?
-Fyrirbyggjandi aðgerðir, forvarnir.
-Hver hefur þróunin verið og hversu hratt miðar?
-Hvað getur sá gert sem telur sig hafa orðið fyrir kynferðislegu áreiti á vinnustað?
-Hvað ef yfirmaður er gerandi?
-Hlutverk stéttarfélaga og Vinnueftirlitsins.
-Hvað vantar til að hægt sé að tryggja að mál sem upp koma verði fullunnin?
-Afleiðingar ...., eitt tilvik nægir til að kollvarpa tilverunni.
-Eru einhverjar rannsóknarniðurstöður?
Kynferðisleg áreitni á vinnustöðum
5.4.2009 | 10:24
Kynferðisleg áreitni á vinnustöðum Í nærveru sálar annað kvöld.
Brynhildur G. Flovez, lögfræðingur stefnir að því að koma í viðtal og ræða m.a. um hvar við sem samfélag stöndum í þessum málum.
Lögin eru skýr en er verið að vinna samkvæmt þeim?
Þarf kannski að kynna þau betur?
Svör við þessari spurningu og mörgum öðrum þessu tengdu fáum við vonandi að heyra á ÍNN annað kvöld kl. 21:30
Svar við spurningu 2 komið. Hvert á að vísa foreldrum...
3.4.2009 | 11:03
Svar hefur borist frá Félags- og tryggingarmálaráðuneytinu er varðar spurninguna hvert eigi að vísa foreldrum sem hafa ekki vegna fjárhagserfiðleika ráð á að leyfa barni sínu (börnum) að stunda áfram íþróttir/tómstundir.
Svarið er: Vísa verður þeim til félagsþjónustu í því sveitarfélagi þar sem fjölskyldan á lögheimili.
Það er gott fyrir okkur fagaðila og aðra sem vinna með börnum og foreldrum að vita þetta. Gera má ráð fyrir að viðkomandi félagsþjónusta taki vel á móti þessum foreldrum, skoði mál þeirra og finni leið með þeim til að barnið (börnin) geti áfram lagt stund á íþróttir og aðrar tómstundir.