Tvær spurningar
1.4.2009 | 19:42
Það er mikið talað og ekki ætla ég að vanmeta það sem gert hefur verið síðustu mánuði í þágu fjölskyldufólks þótt endalaust megi deila um hvort framkvæmt hafi verið nógu hratt og nógu mikið. Mér er jafnframt umhugað um að framkvæmdir séu samræmdar og vel sé farið með fé skattborgara. Með öðrum orðum velti ég því fyrir mér hvort það sé ekki alveg á hreinu að hægri höndin viti hvað sú vinstri er að gera og öfugt?
Ég sendi í dag starfsmanni félagsmálaráðuneytisins sem hefur að gera með þennan málaflokk skeyti þar sem ég spyr um tvennt:
1. Upplýsingar um starfshópa/nefndir (innan ráðuneytana) sem hafa verið settar á laggirnar til að fylgjast með hag barnafjölskyldna í kreppunni og sem t.d. er ætlað að komi með tillögur um hvernig bregðast skuli við vanda fjölskyldna vegna efnahagsástandsins.
2. Hvert á að vísa foreldrum sem hafa vegna fjárhagserfiðleika t.d. ekki lengur efni á að leyfa barni sínu (börnum) að stunda áfram tómstundir/íþróttir?
Einelti á vinnustöðum, þátturinn kominn á Netið
31.3.2009 | 21:22
Einelti á vinnustöðum, þátturinn kominn á Netið.
Bragi Skúlason þekkir þessi mál vel. Hann er sjúkrahúsprestur og formaður Fræðagarðs.
Í þættinum ræðum við um birtingarmyndir eineltis meðal fullorðinna t.d. á vinnustöðum, úrræði sem yfirmenn hafa komi slík mál upp á vinnustað og hvernig standa málin ef yfirmaður er hugsanlega gerandi.
-Hvaða úrræði hefur þolandi annað en að yfirgefa vinnustaðinn?
-Hlutverk stéttarfélagsins, Vinnueftirlitsins og fleira þessu tengt.
Einelti meðal fullorðinna
26.3.2009 | 19:15
Mánudaginn 30. mars er á dagskrá Í nærveru sálar á ÍNN umræða um einelti meðal fullorðinna. Bragi Skúlason, sjúkrahússprestur og formaður Fræðagarðs er gestur þáttarins.
Atriði sem verða m.a. rædd:
-Hvernig eru helstu birtingarmyndir eineltis þegar fullorðnir eiga í hlut?
-Einelti í tómstundar- og frístundarhópum fullorðinna.
-Þeir sem eru gerendur á fullorðinsárum, voru þeir kannski gerendur sem börn eða e.t.v. þolendur?
-Flestir eru sammála um að ef einelti kemur upp á vinnustað skipta viðbrögð og viðhorf stjórnanda/yfirmanns höfuðmáli ef takast á að leysa málið.
-Fordómar ríkja enn í samfélaginu sbr. blaðaskrif um að margir þolendur séu bara vælukjóar, það sé eitthvað að þeim...
-Hvaða úrræði er hægt að grípa til?
-Hvert er hlutverk stéttarfélaga?
-Hlutverk Vinnueftirlitsins?
-Möguleiki á að kaupa þjónustu ráðgjafa, sálfræðinga til að leiða mál til lausnar.
Þetta er það meðal þess helsta sem verður í þættinum á mánudaginn.
Barnið mitt leggur annað barn í einelti. Hvernig á ég að bregðast við?
23.3.2009 | 09:30
Haldið verður áfram að ræða um eineltismál á ÍNN í kvöld kl. 21:30 og er gestur Í nærveru sála að þessu sinni Valgeir Skagfjörð. Hann mun segja frá markmiðum Regnbogabarna sem eru fjöldasamtök áhugafólks um eineltismál.
Meðal þess sem við ræðum um er hvort eineltistilvik komi frekar upp hjá drengjum eða hjá stúlkum og hvort birtingarmyndir séu ólíkar eftir kynjum.
Hvernig líður foreldrum sem fá fregnir um að barnið þeirra sé að leggja annað barn í einelti?
Hvað hefur áunnist í þessum málum og á hvað þurfum við sem samfélag að leggja enn meiri áherslu á?
Í næstu viku er gestur Í nærveru sálar Bragi Skúlason, sjúkrahúsprestur og formaður Fræðagarðs. Hann mun ræða við mig um einelti á vinnustöðum.
12 spora hópur gegn einelti
21.3.2009 | 20:23
12 spora hópur gegn einelti kemur saman á miðvikudagskvöldum í Gula Húsinu, Tjarnargötu 20 kl. 20:45.
Meira um þessi mál á mánudagskvöldið í viðtali við Valgeir Skagfjörð sem er í forsvari fyrir Regnbogabörn.
Þetta er úrræði fyrir þá sem eru að takast á við afleiðingar eineltis.
Lán og lánleysi
20.3.2009 | 09:07
Skoðun hagfræðingsins kom á óvart
18.3.2009 | 12:36
Það kom mér á óvart að Tryggvi Þór Herbertsson skyldi taka undir hugmynd Framsóknarmanna að fella niður 20 prósent skulda heimila.
Að fella niður skuldir hjá einum hópi þýðir að annar hópur þarf að taka að sér að greiða þær.
Ástæðan fyrir því að þessi leið er ekki vænleg hefur verið ágætlega útskýrð.
Ég ætla rétt að vona að fundin verði önnur raunhæfari, skilvirkari og sanngjarnari leið til að koma þeim sem verst eru staddir til hjálpar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:07 | Slóð | Facebook
Þátturinn um einelti í grunnskólum og umræða um forvarnaráætlanir í skólum er kominn á Netið.
Gestur minn í næsta þætti verður Valgeir Skagfjörð. Hann mun segja okkur frá Regnbogabörnum og hvaða þjónustu þau samtök bjóða börnum og foreldrum.
Vil jafnframt benda á Eineltisáætlun Hvaleyrarskóla,
Í henni segir: Ef við vitum að einhver er lagður í einelti, eigum við að láta umsjónarkennara vita
(eða aðra s.s. skólastjórnendur eða námsráðgjafa) og segja einnig frá því heima.
Þessi regla þýðir einnig: Ef ég er lagður í einelti á ég að segja frá því í skólanum
og láta vita um það heima.
Einelti er áreiti af því tagi að ofbeldi beinist að einni manneskju í lengri eða skemmri tíma.
Orðið einelti er yfirleitt notað um endurtekið atferli.
Einelti getur birst í mismunandi myndum.
Líkamlegar árásir, höfnun og stríðni eru þær algengustu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:14 | Slóð | Facebook
Eyðilegging til lífsstíðar
16.3.2009 | 10:04
Einelti meðal grunnskólabarna er umfjöllunarefni þáttarins
Í nærveru sálar í kvöld á ÍNN kl. 21.30.
Gestur er Ingibjörg Helga Baldursdóttir, grunnskólakennari og móðir Lárusar heitins Þráinssonar en hann lést árið 2008. Lárus hafði verið þolandi eineltis um þriggja ára skeið í grunnskóla.
Ingibjörg hefur unnið ásamt fleirum að gerð eineltisáætlunar í Hvaleyrarskóla. Áætlunin er liður í forvarnarstefnu skólans.
Ingibjörg er einn af stofnendum Landssamtaka foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda. Landssamtökin eru einnig þekkt undir nafninu Liðsmenn Jerico
Við ræðum þessi mál þar á meðal mikilvægi þess að fyrstu forvarnir gegn einelti byrji við upphaf skólagöngu.
Ég hef ekki grænan grun um hvar ég hafnaði í þessu prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík
15.3.2009 | 10:25
Ég hef ekki frekar en aðrir sem höfnuðu neðar en 12. sæti hugmynd um hvort ég hafnaði í 13. sæti eða 29. sæti. Þessi leynd er afar sérkennileg og alveg ástæðulaus. Allir frambjóðendur hafa lagt mikið á sig, mismikið eðlilega, en þessi tími hefur án efa tekið á hvern og einn frambjóðanda og fjölskyldu hans. Hægt hefði verið að tilkynna þeim það persónulega í gærkveldi eða í morgun sem dæmi.
Ljóst er hins vegar að kjörsókn var afleit eða rúmur þriðjungur af flokksbundnum Sjálfstæðismönnum í Reykjavík. Hvar eru allir hinir og hvað vilja þeir?
Engin endurnýjun er á listanum. Allir sitjandi þingmenn, tveir varaþingmenn og einn borgarfulltrúi. Þórlindur er reyndar nýr. Hann og Erla Ósk eru bæði fulltrúar ungliðahreyfingarinnar. Allir fyrir neðan 7. sæti eru ekki með bindandi kosningu.
Stétt með stétt eins og Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt áherslu á, virðist ekki beint eiga við nú. Af 12 efstu er einn hagfræðingur, einn hagfræðinemi, fjórir lögfræðingar, einn laganemi, einn stjórnmálafræðingur, einn stærðfræðingur, tveir hjúkrunarfræðingar. Stéttirnar sem þessir 12 eru fulltrúar fyrir eru því afar fáar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:25 | Slóð | Facebook
Fyrstu tölur komnar í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík
14.3.2009 | 18:32
Fyrstu tölur eru komnar. Búið var að telja um 1500 atkvæði nú kl. 18.00.
Allir sitjandi þingmenn voru inni auk Erlu, Þórlindar, Sigríðar Andersen, Jórunnar Frímannsdóttur og fyrrv. aðstoðarmanns Geirs Haarde, Grétu Ingþórsdóttur.
Fyrstu tölur segja oft mikið enda þótt það eigi eftir að telja mörg þúsund atkvæði.
Ég mun leggja mig alla fram fái ég umboð Reykvíkinga
14.3.2009 | 09:16

Prófkjör Sjálfstæðismanna í Reykjavík er hafið. Kjörstaðir opna kl. 10.00 í dag. Kosið er Það er von mín að þátttaka í þessu prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík verði með allra mesta móti.
Kjörstaðir opuðu kl. 10.00. Kosið er á sjö stöðum í átta kjörhverfum. Kjörstöðum lokar kl. 18.00.
Nú er komið að kjósendum í Reykjavík að velja á lista Sjálfstæðisflokksins það fólk sem það treystir til góðra verka sem eru sannarlega bæði krefjandi og ærinn.
Við blasir sá kaldi raunveruleiki að um 40 prósenta heimila rísa vart undir skuldum og vandi 5.000 heimila er metinn alvarlegur. Þetta kom fram í nýlegri athugun Seðlabankans.
Meðal þeirra verkefna sem nú eru í forgangi er að gera breytingar á greiðslutilhögun, létta á greiðslubyrði og lengja í lánum. Það eru ekki einungis fasteignalán sem sliga heimilin heldur bílalán, yfirdráttarskuldir og skammtímaskuldir sem urðu til í góðærinu.
Samhliða þessari stöðu fer atvinnuleysi vaxandi. Atvinnuleysi til langs tíma getum við ekki búið við og munum ekki sætta okkur við. Fátt er eins mannskemmandi og að hafa ekki vinnu, hafa ekki verkefni sem bíða þín og upplifa að þín sé hvergi þörf.
Kæru Sjálfstæðismenn í Reykjavík. Ég vil af öllu hjarta vera hluti af þeim hópi sem af afli og ábyrgð leitar lausnar á þessum krefjandi verkefnum.
Fái ég stuðning ykkar mun ég leggja mitt af mörkum af heilindum og elju og vinna með þjóðinni í átt til farsællar framtíðar.
Ég vil þakka enn og aftur þeim sem hafa sent mér baráttukveðjur og óskir um gott gengi. Hlýhugur og hvatning við þessar aðstæður er ómetanlegt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:02 | Slóð | Facebook
Verkefni næstu viku. Umræða um einelti meðal barna og fullorðinna á ÍNN
13.3.2009 | 15:06
Í dag föstudag er komið að því að huga að næstu viku og gera drög að áætlunum og verkum sem þá bíða mín. Nú á eftir er upptaka á Í nærveru sálar sem sýndur verður á mánudaginn.
Umfjöllunarefni næstu tveggja þátta er eineltismál, einelti í grunnskólum og meðal grunnskólabarna, einelti meðal fullorðinna t.d. á vinnustöðum og einelti á Netinu.
Í þættinum sem nú fer í upptöku kemur Ingibjörg Baldursdóttir, grunnskólakennari í Hvaleyrarskóla. Ingibjörg er móðir Lárusar heitins. Lárus hafði um árabil verið þolandi eineltis. Til minningu um son sinn lagði Ingibjörg grunn að stofnun samtaka Foreldra eineltisbarna. Samtökin hafa lagt sig í líma við að finna betri úrræði þegar eineltismál koma upp og barist fyrir auknum forvörnum. Um þetta brýna og svo afar mikilvæga málefni ætlum við Ingibjörg að ræða og vona ég innilega að
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.3.2009 kl. 09:18 | Slóð | Facebook
Af afli og ábyrgð ...gegnsæ vinnubrögð og heiðarleiki
12.3.2009 | 18:51
Ég vil leggja lóð á vogarskálina við endurreisn og uppbyggingu íslensku þjóðarinnar.
Ég vil nýta menntun mína, reynslu og þroska til að tryggja hagsmuni fólksins
Ég vil vera hluti af þeim hópi sem af afli og ábyrgð leitar leiða til að almenningur geti búið við stöðugleika og öryggi í framtíðinni.
Með réttsýni og innsæi að leiðarljósi vil ég vinna með þjóðinni.
Sjá stefnumál á www.kolbrun.ws og www.profkjor.is
Þátturinn kominn á Netið. Hvað er hægt að gera strax til að bæta efnahagsástand þjóðarinnar?
11.3.2009 | 20:11
Þátturinn með Vilhjálmi Egilssyni framkvæmdarstjóri Samtaka Atvinnulífsins kominn á Netið.
Hvað er það fyrsta sem Vilhjálmur Egilsson myndi gera væri hann Seðlabankastjóri?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:13 | Slóð | Facebook
Um reiðina í samfélaginu og líðan barnanna
11.3.2009 | 10:40
Mig langar að birta hér glefsu úr hugvekju sem ég hélt um síðustu jól í Kópavogskirkju. Hugvekjan fjallaði um reiðina í samfélaginu og líðan barnanna í kjölfar efnahagshrunsins.
Hugvekjuna má sjá í heild sinni bæði á www.profkjor.is og www.kolbrun.ws
...Vissulega langar okkur til að létta lund þeirra sem tapað hafa sparifé sínu og til þess reynum við að benda þeim á að horfa nú raunsætt á málið. Þetta voru jú bara peningar, pappírssneplar. En gleymum ekki mitt í allri umhyggjunni að í hinum tapaða aur voru e.t.v. fólgnir draumar og væntingar. Draumar um eitthvað gott, eitthvað nýtt og öðruvísi. Nýjar aðstæður, nýjar upplifanir sem aðeins var hægt að öðlast með því að hafa fjárhagslegt svigrúm. Fyrir þessum væntingum ber okkur að sjálfsögðu að bera virðingu.
Síðustu vikur höfum við orðið vitni af mikilli reiði í samfélaginu. Sjálf finnum við mörg fyrir þessari sammannlegu tilfinningu. Reiðin er ekki síður mikilvæg en gleðin. Þetta eru meðal grunntilfinninga sem hverjum manni er nauðsynlegt að geta upplifað ef lifa á að fullu. Reiðin er sérstaklega mikilvæg sem liður í persónulegu varnarkerfi sérhvers einstaklings gagnvart ytri áreitum. Einstaklingur sem ekki getur fundið til reiði í einhverjum mæli getur síður varist þeim sem geta eða vilja skaða hann.
En eins mikilvæg og reiðin er sem hluti af tilfinningarsviði manneskjunnar líður hinum reiða einstaklingi sjaldnast vel. Flestir vita hvernig það er þegar reiðin kraumar innra með manni, vöðvar herpast, blóðþrýstingur hækkar og taugar eru spenntar. Fæstir óska sér slíks ástands, alla vega ekki til lengri tíma. Óbeisluð reiði sem tekur völdin getur auk þess valdið miklum usla, gert skaða og skilið eftir sig sviðna jörð. Öll vitum hversu sárt það er að horfa upp á þá sem okkur þykir vænt um líða illa, vera svekktir og reiðir. Þá kemur þessi ríka þörf og löngun að vilja laga, reyna að bæta, hjálpa og benda á leiðir til betri líðan.
En áður en við byrjum að sá hvatningu og uppbyggjandi tali er vert að kanna hvort í jarðveginum séu nauðsynleg skilyrði fyrir hin góðu fræ að spíra. Séu skilyrðin ekki fyrir hendi er eins og hvatning og jákvæðni nái ekki í gegn. Reiðin bara situr sem fastast. Fyrir svo öflugar tilfinningar eins og reiði og sorg, dugar lítið að ætla að reka á eftir þeim, að ætla að henda þeim út í einu vettvangi eða strika yfir þær með einu pennastriki. Þessi tilfinning eins og önnur þarf sitt svigrúm, hún þarf að fá að renna sitt skeið....
meira á profkjor.is
29 símtöl
10.3.2009 | 20:16
Í Reykjavík eru 29 frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem fram fer 13. og 14. mars næstkomandi.
Hvernig væri það fyrir alla þá þúsundir skráðra einstaklinga í Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík ef 29 frambjóðendur myndu hringja í hvern og einn einasta þeirra til þess að minna á sig og biðja um stuðning?
Það er ekki ósennilegt að sumum fyndist nóg um. En hver og einn verður auðvitað að velja þær aðferðir sem þeim hann eða hún finnst að komi sér hvað best að gagni til að kynna sig.
Meðal annars vegna þess hversu mörg við erum í framboði nú ákvað ég að hringja ekki út eins og það er kallað. Hvort það er vont eða gott fyrir hugsanlegan stuðning veit ég ekki.
Hitt veit ég að margir sem fá mörg slík símtöl af þessu tagi upplifa af þeim ákveðið ónæði.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:48 | Slóð | Facebook
Hvað þarf að gera strax í efnahagsmálum þjóðarinnar?
8.3.2009 | 19:27
Það vefst ekki fyrir framkvæmdarstjóra SA en hann er gestur Í nærveru sálar, í kvöld kl. 21.30 á ÍNN.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.3.2009 kl. 20:56 | Slóð | Facebook
Þátturinn með Ragnhildi Helgadóttur endursýndur í dag og er einnig kominn á vefinn.
8.3.2009 | 17:10
Þátturinn Í nærveru sálar með Ragnhildi Helgadóttur, fyrrv. alþingismann og ráðherra er endursýndur á ÍNN í dag, sunnudag kl. 17.30
Einnig má sjá hann á vef ÍNN með því að smella hér.