Fréttablaðið hefur staðið vaktina. Íslenska krónan - in memoriam, grein sem er þess virði að lesa
28.12.2008 | 18:18
Fréttablaðið hefur staðið vaktina síðustu tvo daga. Í blaðinu í dag er grein eftir Benedikt Jóhannesson, framkvæmdarstjóra ráðgjafarfyrirtækisins Talnakönnunar og Útgáfufélagsins Heims.
Greinin ber heitið Íslenska krónan - in memoriam.
Eins og menn vita eflaust þá er Benedikt tengdur Sjálfstæðisflokknum og hefur verið lengi.
En fyrst og fremst er hann hugsandi maður sem auk þess, vegna sérfræðiþekkingar sinnar á þessu sviði, er vert að hlusta á.
Hér er um að ræða minningargrein um krónuna þar sem viðfangsefnið er enn á líknardeild eins og Benedikt orðar það sjálfur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:21 | Slóð | Facebook
Ár Óvissunnar rennur brátt upp
27.12.2008 | 11:25
Maður heyrir gjarnan þessa dagana fólk ræða um hvað framundan kann að vera og hvað næsta ár beri í skauti sér.
Í umræðu af þessum toga má heyra að í hugum fólks er framundan mikil óvissa.
Dæmi um spurningar sem heyrast eru:
Hvernig verður þetta allt? Ætli þetta verði mjög erfitt? Munu mörg fyrirtæki verða gjaldþrota? Mun atvinnuleysi aukast? Heldur ríkisstjórnin velli? Verður ákveðið að fara í ESB aðildarviðræður? Hvernig mun krónunni reiða af?
Þetta er aðeins brotabrot af þeim vangaveltum og spurningum sem bærast meðal manna nú þegar stutt er þangað til árið 2009 gengur i garð. Svo mikil óvissa ríkir um svo margt og á svo mörgum sviðum að maður man ekki annað eins.
Það hlýtur þó að vera eitthvað sem hægt er að vera viss um, kannski ekki alveg fullviss um en samt nokkuð viss.
Gleðileg jól bloggarar og aðrir innlitsgestir.
24.12.2008 | 13:31
Ég vil óska ykkur öllum nær og fjær gleðilegra jóla.
Ég óska þess jafnframt að þið eigið framundan rólega og ánægjulega jóladaga með ykkar nánustu svo þið getið hvílst og safnað þreki til að takast á við öll þau mörgu verkefni sem kunna að bíða ykkar á komandi ári.
Með jólakveðju,
Kolbrún Baldursdóttir
Birna skammar Kolbrúnu Bergþórsdóttur í Mogganum í dag
23.12.2008 | 10:51
Í Morgunblaðinu í dag lætur Birna Þórðardóttir vaða og ljóst er af efni greinar hennar
Af oflæti Morgunblaðspistlahöfundar að ákveðin pistlaskrif Kolbrúnar Bergþórsdóttur hafa farið fyrir brjóstið á henni. Birnu finnst Kolbrún skrifa af hroka um mótmælendur og mótmælin.
Ég hef stundum lesið pistla nöfnu minnar en las ekki þennan sem hér um ræðir.
Pistlar blaðamanna eru afar misjafnir og sýnist sjálfsagt sitt hverjum um efnisval og efnistök hverju sinni.
Fastráðnir pistlahöfundar fá laun fyrir að skrifa um skoðanir sínar og viðhorf á ýmsum málum. Ef þeir koma engu á blað fá þeir ekki greitt.
Skyldi hvatinn sem liggur að baki skrifunum ekki skipta einhverju máli?
Ég er hins vegar sammála Birnu í þessari grein hennar í Mogganum í dag þar sem hún segir að góður blaðamaður á að kynna sér mál enda hlýtur það að vera meginhlutverk blaðamannsins, að kynna sér mál frá ólíkum sjónarhornum og koma upplýsingunum á sem óbrenglaðastan hátt til lesenda.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:09 | Slóð | Facebook
Jólasiðir Ásatrúarmanna og tónsmíðin á ÍNN í kvöld.
22.12.2008 | 08:38
Hilmar Örn er gestur Í nærveru sálar í kvöld á ÍNN.
Hilmar er alsherjargoði og tónskáld.
Ásatrúarfélagið hefur verið við lýði í ein 35 ár hér á landi og hefur það að markmiði að hefja til vegs forna siði og menningarverðmæti.
Hilmar segir frá jólasiðum Ásatrúarmanna, fjölskyldu sinni, áhugamálum og tónsmíðinni.
Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 14:26 | Slóð | Facebook
Börnin sem kvíða jólunum, prófum að setja okkur í þeirra spor
21.12.2008 | 10:13
Margir fullorðnir muna vel eftir þeirri notalegu tilfinningu þegar þeir voru börn að hlakka til jólana.
Ákveðinn hópur barna hlakkar hins vegar ekki til jólanna heldur kvíðir þeim. Jólin eru samt sem áður fyrst og fremst þeirra hátíð.
Þau sem kvíða jólunum eru börn þeirra foreldra sem eiga við alvarleg vandamál að stríða.
Vandamálin geta verið af ýmsum toga og langar mig sérstaklega að tala hér um börn foreldra sem hafa litla eða enga stjórn á áfengisneyslu sinni.
Um jól drekka þeir foreldrar sem hafa misst tök á drykkju sinni jafnvel meira en ella þar sem ýmsar uppákomur tengdar áfengi eru tíðari.
Sjúkdómurinn alkóhólismi í sinni verstu mynd spyr ekki hvaða dagur er, hvort það eru jól eða páskar.
Ástand foreldris sem á við drykkjuvanda að stríða og aðstæður sem það skapar veldur því að dýrðarljómi hátíðarinnar fær á sig gráan blæ og tilhlökkunin verður kvíðablandin.
Börnin sem kvíða nú jólunum vegna drykkjuvanda foreldris eru farin að hugsa um hvernig ástandið verði heima um þessi jól. Sum þeirra hafa lifað mörg jól þar sem drykkja foreldris hefur sett svartan blett á hátíðina og nú óttast þau að ástandið verði eins um þessi jól.
Þau biðja og vona innra með sér að allt verði í lagi enda þótt reynslan hafi e.t.v. kennt þeim að varast ber að hafa nokkrar væntingar þegar áfengi er annars vegar.
Þau velta einnig vöngum yfir því hvort það sé eitthvað sem þau geti gert til að mamma eða pabbi drekki ekki ótæpilega á aðfangadagskvöld eða á öðrum dögum jólahátíðarinnar.
Tímabært að draga úr jólakortasendingum frá opinberum aðilum, ráðuneytum og ríkisfyrirtækjum
19.12.2008 | 10:10
Á hverju ári senda opinberir aðilar sem dæmi ráðuneytin jólakort til tugi ef ekki hundruða aðila þar á meðal flokksfélaga ráherranna og fyrirtækja sem ráðuneytin hafa átt viðskipti við á árinu.
Það þarf ekki ríkt ímyndunarafl til að gera sér grein fyrir þeim óhemju kostnaði sem þessu fylgir, kostnaður sem kemur að sjálfsögðu beint úr vasa skattgreiðenda.
Vissulega fylgir þessum jólakortasendingum frá ráðamönnum hlýhugur og fallegar óskir. En nú þegar efnahagur þjóðarinnar er í molum er tilvalið að hreinlega leggja þessar jólakortasendingar af og nýta peningana sem þetta kostar í eitthvað þarflegra.
rettlaeti.is
17.12.2008 | 12:13
Réttlæti er hreyfing fólks sem vill virkja samtakamátt sinn til að endurheimta tap sem hlaust af uppgjöri peningamarkaðssjóðs Landsbanka eftir bankahrunið í október síðastliðnum, segir á vef hreyfingarinnar.
Þetta er fjölmennur hópur sem nú hefur tekið sig saman og myndað hreyfingu. Hópurinn gerir þá kröfu að eigendur í peningamarkaðssjóðnum sitji við sama borð og aðrir sparifjáreigendur í landinu.
Fjölmargar lýsingar eru til frá fólki sem fullyrðir að bankarnir hafi ítrekað sannfært það um að fé þeirra væri öruggt á þessum reikningum.
Það reyndist alls ekki svo vera eins og nú er vitað.
Hinar mörgu myndir mótmæla á ÍNN 15. des. kl. 9
14.12.2008 | 21:54
Hinar mörgu myndir mótmæla verður umræðuefnið
Í nærveru sálar,
mánudaginn 15. desember.
Gunnar Sigurðsson, leikstjóri og forsvarsmaður borgarafundanna verður gestur þáttarins.
Að mótmæla eru sjálfsögð réttindi í lýðræðisríki.
Þetta er ein öflugasta aðferðin fyrir þá sem upplifa sig hafa engin völd og sem raunverulega hafa engin völd til að láta óánægju sína í ljós hvort heldur með aðgerðir/ákvarðanir, aðgerðar,- og/eða andvaraleysi ráðamanna allt eftir því hvaða skoðanir og viðhorf hver og einn hefur.
Þegar margir koma saman sem finna til reiði og vonbrigða er alltaf einhver hætta á að það brjótist út ofbeldi.
Um þetta og fleira þessu tengt verður fjallað á ÍNN, mánudaginn 15. des. kl. 9.
Myndirnar hér á síðunni eru fengnar úr myndasafni Morgunblaðsins.
Ofurlaunum forstjóra lífeyrissjóðanna fylgir engin persónuleg ábyrgð
10.12.2008 | 21:30
Það svíður að lesa um laun lífeyrissjóðaforstjóranna og vita að enginn þeirra hefur nokkurn tíman þurft að axla persónulega ábyrgð á þeim ákvörðunum sem þeir hafa tekið á ferli sínum sem forstjórar.
Tap sjóðanna nemur tugum milljóna og sjóðirnir þurfa að skerða réttindi félaga sinna á næstu ári.
Það er auðvitað stór spurning hvort allir þeir sem þiggja slík laun ættu ekki að axla einhverja ábyrgð?
Kannski verður það eitt af þeim breytingum sem út úr þessu öllu kemur að tenging verði á milli launaupphæðar og ábyrgðar í starfi eins og tíðkast víða í nágrannalöndum okkar.
En lífeyrissjóðir eru nú að lækka laun stjórnenda og stjórnarmanna sbr. fréttir dagsins.
Launin hans Þorgeirs Eyjólfssonar mættu lækka verulega og hinna lífeyrissjóðaforstjóranna líka sem allir hafa haft um og yfir 20 milljónir í árslaun.
Peningamál | Breytt s.d. kl. 21:31 | Slóð | Facebook
Flatkökur úr byggi
9.12.2008 | 13:02
Hér kemur uppskrift af flatkökum með byggi.
Malað bygg ca. 60 prósent
Haframjöl ca. 30 prósent
Hveiti ca. 10 prósent
Salt
Út í þetta er hrært sjóandi vatni og öllu blandað saman, flatt út með hveiti við hönd.
Bygg er sennilega hægt að fá í öllum heilsubúðum t.d. er ein slík á Skólavörustíg.
Nýtt upphaf hjá Bjarna Harðarsyni? Á ÍNN í kvöld.
7.12.2008 | 22:15

Hvað er Bjarni að bralla þessa dagana?
Allt um það Í nærveru sálar á ÍNN mánudaginn
8. desember kl. 9.
Fjölmiðlar | Breytt 8.12.2008 kl. 10:31 | Slóð | Facebook
Ókeypis ráðgjöf vegna efnahagsástandsins
5.12.2008 | 16:36
Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna í Reykjavík stendur fyrir ókeypis ráðgjafarstofu á morgun, laugardag, að Skúlagötu 51.
Félagið hefur safnað saman fagaðilum og sérfræðingum úr sínum röðum sem eru tilbúnir til að leggja sitt af mörkum til að leiðbeina fólki vegna ástandsins sem skapast hefur. Sérfræðingar á sviði, velferðamála, almannatrygginga, skattamála, fjármála heimila og félagsmála verða á staðnum og taka á móti fólki sem vill nýta sér þessa þjónustu.
Pólskumælandi og enskumælandi einstaklingar verða á svæðinu. Aðgengi fyrir fatlaða.
Ráðgjafastofan verður opin frá kl. 10-17 að Skúlagötu 51 föstudaginn laugardaginn 6. desember og eru allir velkomnir.
Það er mikil þörf fyrir ráðgjöf sem þessa og sem dæmi er bið fram í janúar hjá Ráðgjafarstofu heimilanna.
Spilling eða hyglanir
3.12.2008 | 23:18
Eitt af því góða sem gæti mögulega komið út úr þessu fjármálahruni er ef tækist að draga úr spillingu eða hyglunum eins og Bragi Kristjónsson kýs að kalla það.
Flestir eru sammála um að finna megi spillingu víða hér á landi. Í þessu sambandi má nefna allt frá óeðlilegum viðskiptaháttum stjórnenda, ráðandi hluthafa sem greiða sér of há laun og alls kyns viðskipti tengdra aðila.
Á pólitíska sviðinu má nefna fyrirgreiðslupólitík eða þegar ráðamenn ráða vini og/eða ættingja eða vini og ættingja vina sinna í valdamikil embætti.
Nú eða þegar einstaklingar geta stöðu sinnar vegna beitt áhrifum til að koma vinum/vandamönnum ofarlega á lista stjórnmálaflokkanna án þess að þeir hafi tekið þátt í því ferli sem til þess hefur verið mótað.
Orri og Alkasamfélagið á ÍNN í kvöld
1.12.2008 | 09:55
Í nærveru sálar á ÍNN kl. 9 í kvöld.
Orri Harðarson ræðir um skoðun sína á hugmyndafræði AA samtakana.
Hann lýsir reynslu sinni af ótal áfengismeðferðum hjá SÁÁ og af hverju þær skiluðu ekki þeim árangri sem hann vænti.
Við ræðum um mikilvægi þess að hafa val.
Að samfélagið bjóði upp á fjölbreytt úrræði fyrir þá sem eiga við áfengisvandamál að stríða og vilja ná bata.
Hjá útgáfufyrirtækinu Skruddu er þetta sagt um bókina:
Haustið 1994 var Orri Harðarson staddur í sinni fyrstu áfengismeðferð hjá SÁÁ, þá handhafi Íslensku tónlistarverðlaunanna sem bjartasta vonin. Framtíðin virtist þó ekki björt og næstu þrettán árin háði Orri langa og stranga baráttu við Bakkus, þar sem ótal áfengismeðferðir og bindindistilraunir innan AA-samtakanna virtust engan endi ætla að taka.
Hinn trúlausi existensíalisti fann til vaxandi andúðar í garð meintrar mannræktarstefnu AA-samtakanna, sem reyndist við nánari skoðun vera taumlaus trúarinnræting. Í stað þess að hlýða tillögum í boðhætti um að krjúpa á kné og gefast upp fyrir Guði, kaus Orri að nýta gagnrýna hugsun sína og sjálfsþekkingu til að byggja upp nýtt líf án áfengis. Alkasamfélagið er opinská og afhjúpandi frásögn af þeim samfélagskima sem blasir við íslenskum alkóhólista sem vill hætta neyslu sinni.
Fjölmiðlar | Breytt 30.4.2017 kl. 20:18 | Slóð | Facebook
Nýju gjaldeyrisbremsulögunum ber að fagna eða hvað?
29.11.2008 | 10:07
Þessi lög taldi ég vita á gott og væru þau sett sem fyrirbyggjandi aðgerð til að fyrirbyggja að enn verr fari fyrir okkur íslendingum hvað varðar gjaldeyrismálin.
Í ljós ummæla sem Vilhjálmur Egilsson og Pétur Blöndal hafa látið frá sér fara veit maður einfaldlega ekki hvað er best og rétt í þessum efnum
Mér fannst það lógískt að á meðan verið er að sjá hvort og hvernig krónan flýtur þarf að tryggja gjaldeyrir inn í landið og að hann haldist þar en á sama tíma að sporna við að hann fari úr landi.
Margir hafa beðið eftir að opnað verði fyrir gjaldeyrisviðskipti og mjög sennilega hefði sá gjaldeyrir sem íslenska ríkið hefur haft svo mikið fyrir að skrapa saman erlendis frá þurrkast upp eldsnöggt ef einhverjar bremsur verða ekki settar þar á.
Þá gæti sú staða komið upp að íslenska þjóðin sæti eftir í sömu og jafnvel verri súpu, með skuldir sem aldrei fyrr en engan gjaldeyrir.
En eins og áður segir, nú veit ég bara ekki hvað skal halda um þetta. Er þetta gott eða vont??
Svörin eru afar mótsagnakennd og er það vægt til orða tekið.
Peningamál | Breytt 1.12.2008 kl. 19:51 | Slóð | Facebook
Tvær hliðar á krónunni líka þeirri verðtryggðu
29.11.2008 | 09:57
Það er áhugaverð grein í Fréttablaðinu í gær:
Lausn undan verðtryggingu,
og er eftir Skúla Helgason.
Þeir sem tala um að nú skuli afnema verðtrygginguna si svona ættu að lesa þessa grein.
Hún er sú fyrsta sem ég hef séð í langan tíma sem skýrir með einföldum hætti þetta verðtryggingarfyrirbæri og af hverju hún hefur ekki einfaldlega verið afnumin.
Afnám verðtryggingar hljómar vel í eyrum skuldara en myndi þýða tekjutap fyrir ríkissjóð og niðurskurð á framlögum til almannaþjónustu.
Tap lánveitenda þar á meðal lífeyrissjóða sem geyma eignir almennings myndu verða ófyrirsjáanlegar. Slík aðgerð myndi fela í sér nauðsyn þess að ríkið tæki enn frekari lán og auka þurfi skattheimtu, eins og Skúli bendir á.
Talað er um lausnir og ein þeirra felst í því að Ísland verði aðili að ESB og tæki upp evru. Með því móti myndu skapast forsendur fyrir því að færa íbúðalán úr krónum í evrur og í framhaldinu myndi verðtryggingin lognast út af segir höfundurinn.
En að afnema verðtrygginguna í því þjóðfélagsástandi sem nú ríkir er bara ekki í boði. Að strika hana út nú með einu pennastriki hér og nú er fullkomlega óraunhæft.
Peningamál | Slóð | Facebook
Á gelgjunni á Flónni
27.11.2008 | 17:29
Ég er nú komin yfir gelgjuskeiðið og rúmlega það og ætla í kvöld að gera aðra tilraun með Fló á skinni að þessu sinni í Borgarleikhúsinu.
Þá mun koma í ljós hvort gelgjunni var um að kenna eða hvort ég sé kannski bara sneydd allri kímnigáfu?
Gerist það aftur að mér stökkvi ekki bros á Fló á skinni sem mér skilst að sé með því fyndnara, þá er þetta reyndar spurning um hvort breytingarskeiðinu geti ekki verið um að kenna?

Seint mun ég vilja viðurkenna að ég hafi engan húmor en þessi skeið geta haft hin undarlegustu áhrif á geðið

Klára þetta fyrir jól - heilkennið
25.11.2008 | 21:40
Það þarf að klára þetta fyrir jól!
Hvað er eiginlega með þetta FYRIR JÓL dæmi.
Fyrir hver jól reyni ég að sporna við þessari tilfinningu og hugleiði í góðum tíma með sjálfri mér að vera nú bara róleg þótt eitthvað þurfi að klára, þá þarf ekki að klára það fyrir 24. desember.
En svo... finn ég hvernig hægt og bítandi þetta kapp, þetta óþol byrjar að heltaka mig og ég missi út úr mér:
Við verðum að klára þetta fyrir jól og helst vel fyrir jól svo það verði ekkert stress síðustu dagana fyrir jól!!
Þetta er náttúrulega bara bull og vitleysa.
Það kemur dagur og dagar eftir þessi jól og sumt má vel bíða þar til eftir jól, eða hvað?
