Þarf ekki bíl til að sækja opinbera þjónustu
3.12.2019 | 16:24
Ég er þrjósk og þetta er réttlætismál
2.12.2019 | 09:49
Tillaga um fríar skólamáltíðir var felld í fyrra og þá sagði ég í þessari frétt á visi.is að ég ætla að halda áfram málinu og það mun ég gera á morgun á fundi borgarstjórnar þegar síðari umræða fer fram um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar og fimm ára áætlun. Ég er þrjósk og þetta er réttlætismál enda eina leiðin til að tryggja að börn eru ekki svöng í skólanum. Sjá nánar hér neðar um hvernig ég legg til að fjármagna tillöguna.
Fríar skólamáltíðir fyrir börn í leik- og grunnskólum (SFS)
Flokkur fólksins leggur til að borgarstjórn samþykki að öll börn í leik- og grunnskóla fái fríar skólamáltíðir. Tillagan felur í sér að fjárheimildir skóla- og frístundasviðs verði hækkaðar um 1.605 m.kr. vegna tekjulækkunar.
Lagt er til að tekjulækkun sviðsins sem áætlað er að nemi um 1.606 m.kr.á ári og þeim kostnaði sviðsins sem tillagan útheimtir verði fjármögnuð af handbæru fé þar sem ljóst þykir að liðurinn ófyrirséður ræður ekki við útgjaldaaukningu af þessar stærðargráðu. Jafnframt er lagt til að fjárfestingar ársins 2020 verði lækkaðar um sömu fjárhæð eða 1.605 m.kr. og sem felur í sér að sjóðsstaða borgarinnar helst í jafnvægi. Í þeirri áætlun sem nú er verið að leggja fram til síðari umræðu er áætlað að 19,5 milljarðar króna fari í fjárfestingar en nái tillagan fram að ganga lækki þær í 17,9 milljarða króna. Lagt er til að eignaskrifstofunni verði falið að forgangsraða fjárfestingum upp á nýtt í samvinnu við umhverfis- og skipulagssvið með þetta í huga.
Tíðar ferðir valdhafa borgarinnar erlendis tómt bruðl
29.11.2019 | 14:24
Tugum milljónum árlega er varið í ferðir borgarstjóra, aðstoðarmanns hans, borgarfulltrúa og miðlægrar stjórnsýslu til útlanda ýmist á fundi, ráðstefnur eða í skoðunarferðir. Á sama tíma er þessi meirihluti sífellt að tala um losun gróðurhúsalofttegunda og að draga verði úr mengun. Í þessu tali þeirra er sjónum venjulega beint að bílaumferð og bíleigendum en minna fer fyrir umræðu um mengun og losun eiturefna út í andrúmsloftið á stærri mælikvarða.
Í borgarráði líður varla sá fundur að meirihlutinn samþykki ekki ferð borgarstjóra með fríðu föruneyti. Slík ferð þriggja aðila var samþykkt á síðasta fundi og skulu þeir fara á loftlagsráðstefnu til Madrid. Ég gat ekki setið á mér að bóka um þetta og lýsa því yfir að þetta væri bruðl og tal um kolefnisspor væri hreinn tvískinnungsháttur.
Mér finnst þetta hin mesta sóun og þurfi að senda einstakling í eigin persónu nægir að senda einn. Mér finnst lítið að marka allt þetta tal þessa meirihluta um kolefnisspor á sama tíma og ekkert lát er á ferðum valdhafa borgarinnar erlendis.
Hvar er Skype? Hvar er fjarfundatæknin?
Hvað varðar skoðunarferðir fara oft margir af fagsviði eða úr fagráði. Ég spyr mig hverju þetta skilar?
Engu fyrir borgarbúa svo mikið er víst. Þetta er jú gaman fyrir þann sem fer því reynslan og jákvæðar minningar frá skemmtilegri skoðunarferð í boði borgarbúa eru jú hans og hans eins.
Biðlistar, fríar skólamáltíðir, styrkir til dagforeldra, opnun á göngugötum og ráðstöfun innri leigu
29.11.2019 | 08:06
Flokkur fólksins leggur til að styrkir til dagforeldra verði hækkaðir um 15%. Um er að ræða leigustyrk, styrk vegna ákveðins fjölda barna og aðstöðustyrk. Tillagan felur í sér að fjárheimildir skóla- og frístundasviðs verði hækkaðar um 61,4 m.kr. Viðbótarútgjöld verði fjármögnuð með lækkun á fjárheimildum til menningar- og ferðamálasviðs um sömu fjárhæð, nánar tiltekið verði fjárheimildir til annarrar menningarstarfsemi kostn.st. 03550 lækkaðar um 25 m.kr., til landnámssýningar kostn.st. 03710 lækkaðar um 25 m.kr. og fjárheimildir til listaverka á opnum svæðum kostn.st. 03350 lækkaðar um 12,1 m.kr.
Salernismál rædd í borgarstjórn
21.11.2019 | 10:17
Það er nú fátt sem ekki er rætt í borgarstjórn. Á fundi á þriðjudag voru salernismál í Borgartúni 12-14 rædd og skipst var á bókunum. Þennan sama dag var einmitt alþjóðlegi klósettdagurinn og lagði Flokkur fólksins fram bókun í tilefni dagsins við lið fundargerð mannréttindaráðs en þar var málið rætt í síðustu viku vegna framlagningar skoðunarskýrslu Vinnueftirlitsins á salernum í Borgartúni 12 -14. Lög og reglur gera nefnilega kröfu um að salerni sú annars vegar karlasalerni og hins vegar kvennasalerni en nú þegar er meirihlutinn búinn að gera salernin í Borgartúni ókyngreinanleg.
Bókun Flokks fólksins er eftirfarandi:
Flokkur fólksins telur það nauðsynlegt að áður en kyngreining salerna hjá Reykjavíkurborg sé framkvæmd verði lögum og reglum breytt hvað þetta varðar. Vænlegast er að fylgja fyrirmælum Vinnueftirlitsins þar til Alþingi hefur tekið á málinu. Kyngreining salerna hefur fengið mikla athygli meirihlutans í borginni sem lagt hefur sérstaka áherslu á málið. Í þessu sambandi má nefna í tilefni þess að klósettdagurinn er í dag að það eru minnst fjórir og hálfur milljarður manna í heiminum sem hafi ekki aðgang að salerni sem tengt er við öruggt fráveitukerfi.
Þá kom gagnbókun frá meirihlutanum:
Kyngreining salerna myndi þýða að setja aftur upp merkingar þar sem að salernin eru nú ókyngreind. Því er örlítið óljóst hvort borgarfulltrúinn vill setja aftur upp merkingar eða ekki því báðar hugmyndir koma fram í bókun fulltrúa Flokks fólksins. Mikilvægt er að það sé yfir allan vafa hafið hvernig aðhafast skuli í málinu til að koma í veg fyrir óþægindi fyrir viðkvæma hópa eins og transfólk og fólk sem skilgreinir sig ekki byggt á hinu hefðbundna tvíhyggjukynjakerfi. Okkur hefur bæði borist sú athugasemd frá Vinnueftirlitinu að það sé í lagi að hafa salernin ókyngreind og svo að okkur beri að hengja aftur upp merkingar. Mikilvægt er að fá úr því skorið hvort álitið skuli standa. Þess ber að merkja að reglurnar sem um ræðir eru frá árinu 1995 og því nærri 25 ára gamlar - og því er spurning hvort það væri ekki vænlegast að uppfæra þær byggt á nýjum lögum um kynrænt sjálfræði eins og ráðuneytið hefur sagt að það sé að skoða. Reykjavík er mannréttindaborg og leggur metnað sinn í að tryggja aðgengi allra að samfélaginu.
Borgarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi gagnbókun við gagnbókun meirihlutans undir 8. lið fundargerðar mannréttinda- nýsköpunar- og lýðræðisráðs:
Þessi kyngreiningarmál salerna er áherslumál meirihlutans í borginni sem sett hefur þetta mál á oddinn. Flokkur fólksins er flokkur sem styður jafnrétti í einu og öllu og leggur mikla áherslu á að öllum líði vel í samfélaginu. Varðandi salernismálin og kyngreiningu þeirra þá hafa heyrst raddir þeirra sem vilja gjarnan halda aðskildum klósettum, annars vegar fyrir þá sem setjast á klósettsetuna til að pissa og hins vegar fyrir þá sem pissa standandi. Skoðanir allra þarf að virða gagnvart þessu sem öðru og hlusta þarf á raddir allra hópa. Flokkur fólksins skilur að málið getur verið flókið og vonandi finnst viðundandi lausn sem flestir geta sætt sig við. En fyrst er að fá lögin á hreint.
Börn alkóhólista er hópur barna sem hvorki heyrist hátt í né mikið er rætt um. Ótal margar breytur skjóta upp kollinum þegar kemur að þessum hópi. Hvað er þetta stór hópur? Hvernig gengur að ná til hans og hver er þörfin? Hver eru helstu einkennin og hverjir sjá þessi einkenni helst?
Enda þótt mikið vatn hafi runnið til sjávar hvað varðar fræðslu og þekkingu um alkóhólisma er enn þöggun og fordómar í garð foreldra sem eru alkóhólistar og barna þeirra. Börnin reyna því oft að leyna vandanum eða afneita honum.
Hvað er alkóhólismi?
Áfengi er löglegur vímugjafi fyrir fullorðna einstaklinga sem aðskilur það frá ólöglegum vímugjöfum. Sjúkdómurinn alkóhólismi er þrískiptur sem hefur áhrif á vitsmuni, líkama og sál. Eitt af einkennum sjúkdómsins er stjórnlaus löngun í áfengi. Læknavísindin segja alkóhólisma vera sjúkdóm sem hægt er að halda í skefjum með bindindi en ekki lækna. Alkóhólismi er stigvaxandi sjúkdómur. Það bjóðast mörg meðferðarúrræði fyrir alkóhólista í dag. Alkóhólismi er ekki lengur vonlaust ástand ef sjúkdómurinn er viðurkenndur og meðhöndlaður.
Áhrif og afleiðingar
Börn foreldra sem eru ánetjuð vímuefnum af hvers lags tagi búa við viðvarandi óöryggi, ótta og álag og axla ábyrgð langt umfram aldur og þroska. Áhrif og afleiðingar eru bæði skammtíma og langtíma. Sködduð sjálfsmynd og meðvirkni eru meðal alvarlegustu afleiðinganna. Meðvirkni er sjúkdómur sem herjar á aðstandendur alkóhólista og eru börn þar engin undantekning.
Meðvirkni getur leitt til þess að barn á í erfiðleikum með að bregðast við áreiti samkvæmt innstu sannfæringu. Dæmi um meðvirkni í fjölskyldu alkóhólistans er þörfin að láta allt líta vel út á yfirborðinu og þegja yfir hinum raunverulega vanda. Barn sem elst upp við alkóhólisma foreldris/foreldra getur átt erfitt með að meta og lesa í samskipti og aðstæður og hefur færri bjargráð til að grípa í. Gott stuðningsnet barns, ráðgjöf og fræðsla getur skipt sköpum þegar kemur að neikvæðum áhrifum og afleiðingum þess að alast upp eða umgangast foreldri sem glímir við alkóhólisma.
Sérhæft stuðningsúrræði fyrir börn alkóhólista
Ég hef lagt fram tillögu í borgarstjórn þess efnis að borgarstjórn samþykki að setja á stofn stuðningsþjónustu eyrnamerkta börnum foreldra í neyslu. Mikilvægt er að öll börn í þessum aðstæðum hafi aðgang að stuðningsþjónustunni án tillits til hvort barnið sjálft sé metið í áhættuhópi, hvort það búi hjá foreldrinu sem glímir við áfengisvanda eða sé í umgengni við það. Ekki á að vera þörf á sérstakri tilvísun í úrræðið heldur sé látið nægja að forsjáraðili óski eftir stuðningi og meðferð fyrir barn sitt eins lengi og það þarf og vill þiggja. Stuðningurinn myndi vera í formi sálfræðiþjónustu, persónulegrar ráðgjafar, hópastarfs og fræðslu. Markmiðið væri m.a. að hjálpa börnum alkóhólista að hlúa að eigin sjálfsmynd, rækta félagslega færni og fræðast. Markmiðið væri einnig að hjálpa börnunum að greina á milli fíknisjúkdómsins og persónunnar sem glímir við hann. Stuðningsþjónustunni er ætlað að veita börnunum viðurkenningu á stöðu sinni og aðstæðum í fjölskyldum þar sem áfengi- og almennur neysluvandi er til staðar. Foreldrar ættu einnig að geta fengið ráðgjöf og fræðslu eftir atvikum.
Sérhæft stuðningsúrræði fyrir börn alkóhólista skilar sér margfalt. Barn sem fær tækifæri við öruggar aðstæður til að tjá sig um neysluvandamál foreldris getur losað um djúpstæða vanlíðan og áhyggjur. Börn sem alast upp við þessar aðstæður trúa því stundum að þau beri ábyrgð á neyslu foreldris með einhverjum hætti. Fræðslan skiptir barn miklu máli og sú vitneskja að neysluvandi foreldrisins sé ekki á ábyrgð þess að neinu leyti. Samtal um áfengisvanda foreldrisins getur stuðlað að því að barn losni við tilfinningar á borð við skömm og sektarkenndar. Slík leiðrétting á íþyngjandi tilfinningum og hugsunum er börnum mikill léttir og markar jafnvel nýtt upphaf í lífi þeirra.
Sambærileg þjónusta sem hér er lögð til að Reykjavík stofnsetji er veitt af SÁÁ. SÁÁ hefur unnið gott starf með börnum alkóhólista í mörg ár en árangursmat liggur þó ekki fyrir. Vinna SÁÁ fríar ekki Reykjavíkurborg frá skyldum sínum gagnvart börnum alkóhólista. Vissulega hefur þessum börnum verið hjálpað í Reykjavík. Það hefur samt ekki komið fram hvað hefur verið gert nákvæmlega fyrir þennan hóp og hversu mikið. Reykjavíkurborg hefur alla burði til að stofna eigið úrræði fyrir börn alkóhólista og skipuleggja metnaðarfullt stuðningsúrræði þeim til hjálpar.
Grein birt í Morgunblaðinu 20.11.2019
Hér er bókun Flokks fólksins í málinu:
Lagt var til að borgin setji á laggirnar sértækt úrræði fyrir börn alkóhólista og auðvitað öll börn sem eiga foreldra sem glíma við neysluvanda. Eina sérhæfða úrræðið sambærilegt þessu sem lagt er til hér býðst hjá SÁÁ. Vissulega hefur þessum börnum verið hjálpað í Reykjavík þótt ekki sé vitað í hvað miklum mæli né hversu markviss vinnan er. Reykjavíkurborg hefur alla burði til að stofna sérhæft metnaðarfullt úrræði fyrir börn alkóhólista þeim til hjálpar. Tillögunni um sérhæft úrræði fyrir þennan hóp var ekki vel tekið sem slíkri af formanni velferðarráðs sem lagði til að henni yrði vísað frá.
Borgarfulltrúi Flokks fólksins vill í þessu sambandi nefna að í vikunni skrifaði barnamálaráðherra og framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, undir samning um stuðning félagsmálaráðuneytisins við innleiðingu á verkefninu Barnvæn sveitarfélög. Með samningnum er stefnt að því að íslensk stjórnvöld og öll sveitarfélög á Íslandi hafi á næsta áratug hafið markvissa innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og tileinki sér barnaréttindanálgun í verkefnum, stefnumótun og ákvörðunum. Þessi tillaga um að borgin setji á laggirnar sérstakt úrræði fyrir börn alkóhólista samrýmist vel verkefninu um Barnvæn sveitarfélög.
Hér er um að ræða eitt verkfæri í verkfærakistu innleiðingar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna inn í stjórnsýslu og starfsemi sveitarfélaga. Borgarmeirihlutinn þarf nauðsynlega að fara að setja börn og þarfir þeirra, þ.á.m. þessara barna í enn meiri forgang en gert hefur verið.
Bið barna eftir sálfræðiþjónustu
16.11.2019 | 19:34
Meira en ár er liðið síðan ég lagði fram tillögu í borgarstjórn um að sálfræðingum yrði fjölgað í skólum og að þeir hefðu aðsetur í skólunum sjálfum en ekki á þjónustumiðstöðvum eins og nú er. Þetta er jafnframt skýr ósk skólastjóra. Aðgengi að sálfræðingum inni í skólunum er eitt þeirra úrræða sem gæti komið skólunum best. Ef aðsetur skólasálfræðinga væri í skólunum væri aðgengi barna að þeim mun ríkulegra auk þess sem þeir gætu betur sinnt foreldrum og kennurum, handleiðslu og fræðslu eftir þörfum. Tillagan var felld í skóla- og frístundaráði. Gerð var önnur tilraun til að auka aðgengi barna að skólasálfræðingum og lögð fram tillaga um að börn skuli hafa biðlistalaust aðgengi að skólasálfræðingi sínum. Sú tillaga fór sömu leið.
Í lögum segir að skólasálfræðingur skuli vera í hverjum grunnskóla og að börn skuli hafa aðgang að sérfræðiþjónustu þar á meðal sálfræðiþjónustu. Skýrsla innri endurskoðunar um úthlutun fjárhagsramma til grunnskóla kom út í júlí s.l. Í skýrslunni kemur einnig fram að skólastjórnendur hafa ítrekað kallað eftir sálfræðingum inn í skólana. Aukin þjónusta sálfræðinga í skólum myndi styðja við börnin sem njóta hennar og styrkja þau í náminu. Auk þess myndi hún draga úr álagi á kennara sem er mikið, svo mikið að það leiðir jafnvel til veikinda eða kulnunar í starfi hjá sumum.
Nauðsynleg þjónusta háð efnahag foreldra
Biðlistar eftir þjónustu eru orðnir eins og eitthvað lögmál í borginni, rótgróið mein sem hvorki síðasti meirihluti né þessi virðist ætla að vinna á. Biðlistar eftir þjónustu sálfræðinga eru mjög langir í Reykjavík og í fjölmörgum tilfellum hafa börn sem nauðsynlega hafa þurft sálfræðiþjónustu, eða greiningu sem aðeins sálfræðingar mega framkvæma, ekki fengið slíka þjónustu á grunnskólaárum sínum. Margir foreldrar hafa gefist upp á biðinni og þeir sem hafa efni á því fara á einkastofur til að fá svokallaða frumgreiningu fyrir börn sín. Fyrir börn sem þurfa nánari greiningu sem aðeins stofnanir ríkisins veita þarf frumgreining að liggja fyrir. Öðruvísi kemst barn ekki að, t.d. á Þroska og hegðunarmiðstöð eða Barna- og unglingageðdeild. Verra er með þá foreldra sem ekki hafa efni á að kaupa greiningu hjá sálfræðingi á einkastofu. Eins og skilja má eiga ekki allir foreldrar þess kost að fjármagna slíkt og því sitja börnin ekki við sama borð þegar kemur að þjónustu sem þau þarfnast hjá skólasálfræðingi. Börn efnaminni foreldra þurfa að bíða eftir að röðin kemur að þeim. Sú bið getur verið mánuðir eða jafnvel ár. Sálfræðiþjónusta, þar með taldar nauðsynlegar greiningar barna, eiga auðvitað aldrei að vera háð efnahagi foreldra.
Kvíði barna hefur farið vaxandi og sama á við um sjálfsskaði og þunglyndi. Orsakir fyrir vaxandi vanlíðan geta verið margar og flóknar sem segir enn frekar til um hversu mikilvægt það er að börn og foreldrar hafi greiðan aðgang að sálfræðingum og fái almennt séð alla þá þjónustu sem þeim vanhagar um án þess að þurfa að bíða mánuðum saman. Nærtækast er að fara til skólasálfræðinga en heilsugæslustöðvar bjóða líka upp á sálfræðiþjónustu. Til heilsugæslusálfræðinga eru einnig biðlistar en þó mislangir.
Eins og fyrirkomulagið er núna með skólasálfræðingana er kerfið flókið. Þjónustumiðstöðvar eru millistykki sem auka fjarlægðina milli barnanna og skólasálfræðinganna. Skólasálfræðingar eiga að vera raunverulegur hluta af starfsliði skólanna og hafa aðsetur aðeins í skólunum. Áfram geta þeir engu að síður tekið þátt í þverfaglegu samstarfi við aðra fagaðila eftir atvikum m.a. þeirra sem eru á þjónustumiðstöðvunum.
Birt á visi.is 16.11.19.
Ég get ekki sætt mig við alla þessa biðlista
14.11.2019 | 18:26
Skólahald aflagt. Spurt er um ávinninginn?
13.11.2019 | 10:40
Þetta er hið ömurlegasta mál. Óskir íbúa, foreldra og barna fótum troðnar. Samráðsleysi meirihlutans við borgarbúa er orðið pínlegt. Að loka þessum skóla er greinilega löngu ákveðið. Taktíkin er að vísa umdeildum málum í stýrihópa sem fá ákveðna forsendur til að vinna út frá, forsendur sem yfirvaldið setur. Síðan koma niðurstöður byggðar á þeim forsendum og þá geta valdhafa vísað í stýrihópinn og eru þannig búnir að fjarlægja sig frá niðurstöðu sem fólk er ósátt við. Að skoða öll gögnin í þessu máli er sjokkerandi. 200 síðna bunki af gögnum verður lagður fyrir borgarráð á fimmtudaginn. Eitthvað hefur allt þetta ferli kostað. Hver verður eiginlega sparnaðurinn, og hver verður ávinningurinn?
Krafa um alvöru samráð
11.11.2019 | 16:18
Skortur á samráði borgarmeirihlutans við borgarbúa er orðinn pínlegur.
18. júlí lagði Flokkur Fólksins fram tillögur um að skipulagsráð héldi umsvifalaust fund með Miðbæjarfélaginu, Öryrkjabandalaginu og Sjálfsbjörg þar sem þessum hagsmunasamtökunum yrði boðið upp á alvöru samráð um fyrirkomulag miðbæjarins þar með talið Laugaveginn og Skólavörðustíginn.
Nú hefur umboðsmaður borgarbúa einnig sent skipulags- og samgönguráði tilmæli um samráð.
Það er kallað eftir samráði úr öllum áttum og þá er átt við að hagsmunaaðilar fái að koma að ákvörðunum en séu ekki upplýstir eftir á um hvað á að gera.
31. október bókaði Flokkur Fólksins vegna skorts á samráði við rekstraraðila á Hverfisgötu og skorts á samráði við íbúa Staðarhverfis vegna fyrirhugaðrar lokunar Kelduskóla:
"Þessar framkvæmdir við Hverfisgötu eru harmsaga. Þarna hafa rekstraraðilar borið skaða af. Gagnvart þessum hópi hefur svo gróflega verið brotið þegar kemur að loforði um samráð. Meirihlutinn í borgarstjórn hefur sínar eigin skilgreiningar sem hafa ekkert að gera við samráð í þeim skilningi. Framkvæmdir á Hverfisgötu hafa aldrei verið unnar með rekstraraðilum þar. Þeir fá ekki einu sinni almennilegar upplýsingar. Þessu fólki hefur aldrei verið boðið að sjálfu ákvörðunarborðinu. Það er ekki að undra að fólk sé svekkt þegar á því er traðkað og yfir það valtað með þessum hætti. Þetta er þeirra upplifun."
"Ekki hefur verið haft samráð við íbúa í Staðarhverfi. Foreldrar hafa lagt fram tillögur sem fela í sér að halda skólanum opnum enda býr góður hópur barna í hverfinu en ekki er hlustað. Þessi meirihluti hefur haft nokkur ár til að komast að því hvaða samgöngubætur á að bjóða fólki upp á þarna. Ljóst er að ef keyra á þetta í gegn í svo mikilli óþökk og óánægju mun það draga dilk á eftir sér. Hér er enginn sparnaður heldur mun óánægja yfirskyggja allt. Flokkur fólksins hvetur meirihlutann til að endurskoða málið frá grunni. Þarna verður aldrei sátt. Fólki finnst þetta valdníðsla og kúgun."
Ég er ekki vofa
8.11.2019 | 10:16
Í morgun eins og aðra morgna gekk fólk til vinnu sinnar, sumir léttir í spori, fullir orku og tilhlökkunar á meðan skref annarra voru þyngri, jafnvel blýþung. Þungu skrefin voru skref þeirra sem lagðir eru í einelti á vinnustað sínum.
Í dag 8. nóvember er hinn árlegi Dagur gegn einelti og kynferðisofbeldi í öllum aldurshópum. Í tilefni dagsins verður í þessari grein fjallað um einelti á vinnustað.
Birtingarmyndir eineltis á vinnustað eru margar og mismunandi, allt eftir eðli og aðstæðum á vinnustaðnum og fólkinu sem þar starfar. Stjórnun og stjórnunarstíll hefur mikil áhrif á vinnustaðamenninguna en einnig fjölmargir aðrir þættir. Þar sem einelti hefur náð fótfestu geta þolendur og gerendur verið úr röðum stjórnenda/millistjórnenda eða almennra starfsmanna.
Dæmi um eineltishegðun í garð samstarfsaðila er:
Sýna dónalega, ruddalega eða hrokafulla framkomu
Gera grín að, lítilsvirða eða hæðast að, baktala
Sniðganga, hunsa, einangra og hafna
Leyna upplýsingum til að skaða frammistöðu
Kaffæra í verkefnum
Gagnrýna, finna viðkomandi allt til foráttu, bera röngum sökum
Sú birtingarmynd sem margir þolendur segja að hafi farið hvað verst með sig er hunsun, að vera sniðgenginn, einangraður, látið sem viðkomandi sé ósýnilegur, sé einfaldlega ekki á staðnum.
Fyrirgefið þið, en ég er ekki vofa, varð þolanda eineltis að orði þegar honum ofbauð hversu langt starfsfélagarnir gengu í að láta sem hann væri ósýnilegur. Það var ekki aðeins gengið fram hjá honum og hann sniðgenginn heldur var einnig horft í gegnum hann.
Sekur en veist ekki um hvað
Eineltismálin hafa verið helstu sérfræðimál mín sem sálfræðingur í þrjátíu ár. Með hverju máli sem ég tók að mér lærði ég sjálf eitthvað nýtt sem ég gat nýtt mér í næsta máli. Ekkert mál er þó nokkurn tímann eins. Engu að síður eru ákveðin grunnatriði í vinnsluferlinu sem mikilvægt er að fylgja og vinnan þarf að einkennast af heiðarleika, hreinskilni og alúð gagnvart öllum þeim sem að málinu koma.
Við vinnslu eineltismáls þarf að gæta að rétti beggja aðila, þolanda og meints geranda. Aðili sem er ásakaður um einelti eða kynferðisofbeldi á rétt á að vita hvert sakarefnið er sem hann þarf að taka afleiðingum af.
Bauðst tækifæri hjá valdhöfunum
Í nýju starfi sem borgarfulltrúi er ég í öðru hlutverki. Það var mín fyrsta hugsun þegar ég var kosin hvort ég myndi geta nýtt mér reynslu mína sem fagaðili m.a. í eineltismálum í þágu starfsmanna borgarinnar. Það tækifæri bauðst. Á fundi borgarráðs þann 19. júlí 2018 var tillaga mín um að fá að leiða þverpólitískan stýrihóp í þeim tilgangi að endurskoða stefnu Reykjavíkurborgar um einelti, áreitni og ofbeldi samþykkt. Afrakstur stýrihópsins var lagður fyrir borgarstjórn til samþykktar 19. mars 2019. Nokkrar mikilvægar breytingar voru gerðar á stefnu og verklagi borgarinnar í ofbeldismálum í meðförum stýrihópsins.
Helstu efnislegar breytingar í stefnu og verklagi borgarinnar
Aukið gegnsæi er ein mikilvægasta breyting sem gerð var við endurskoðunina. Málsaðilar, þolandi og meintur gerandi, hafa nú aðgang að öllum upplýsingum og gögnum sem tengjast málinu að teknu tilliti til laga um persónuvernd og vinnslu persónu- og upplýsingalaga nr. 140/2012. Þau sem rætt er við (vitni) fá að vita það fyrirfram að ferlið er opið og gegnsætt gagnvart aðilum máls sem munu sjá skráningar allra viðtala. Aðilar sem rætt er við fá tækifæri til að lesa yfir það sem hafa á eftir þeim í álitsgerð um málið og þeim gefin kostur á að lagfæra framburð sinn óski þeir þess.
Ákvörðun var tekin um að breyta skilgreiningu eineltis lítillega. Stýrihópurinn var sammála um að nota ekki hugtakið síendurtekin en í reglugerð ráðuneytisins nr. 1009/2015 er það ófrávíkjanlegt skilyrði að hegðunin þurfi að vera síendurtekin. Við þetta gat stýrihópurinn ekki unað enda hefur reynslan sýnt að þessi þrenging hefur fælingarmátt. Sumir þolendur segja að ekki þýði að leggja inn kvörtun þar sem skilgreiningin sé allt of þröng. Einstaka rannsakendur hafa nefnilega gengið svo langt að fullyrða að síendurtekin hegðun merki að háttsemin þurfi að vera viðhöfð vikulega yfir það tímabil sem kvörtunin nær til ef hún eigi að flokkast undir skilgreiningu um einelti.
Að lokum má nefna aðra mikilvæga breytingu og snýr hún að óhæði rannsakenda. Ef leita þarf til fagaðila utan borgarinnar skal leita samþykkis þess sem tilkynnti málið (þolanda). Tilkynnandi verður að fá tækifæri til að hafa hönd í bagga með hverjir rannsaka mál hans. Hann þarf að geta treyst því að sá sem fenginn er til að rannsaka málið sé sannarlega óháður.
Endurskoðuð stefna og verklag 2019 er að finna á vef Reykjavíkurborgar.
Sú gullna regla sem stýrihópurinn fylgdi við endurskoðun stefnunnar og verklags var sanngirni, meðalhóf og gegnsæi. Það tókst að ég tel með ágætum.
Kolbrún Baldursdóttir, sálfræðingur og borgarfulltrúi Flokks fólksins
Greinin er birt í Morgunblaðinu í dag 8. nóvember
Sýni æðruleysi þegar kemur að fjölmiðlum
7.11.2019 | 21:14
Biðlisti hér og biðlisti þar
5.11.2019 | 13:58
Hverfisgatan og Staðarhverfið
30.10.2019 | 23:22
Framkvæmdir við Hverfisgötu er harmsaga. Þarna hafa rekstraraðilar borið skaða af. Gagnvart þessum hópi hefur svo gróflega verið brotið þegar kemur að loforði um samráð. Meirihlutinn í borgarstjórn hefur sínar eigin skilgreiningar sem hafa ekkert að gera við samráð í þeim skilningi. Framkvæmdir á Hverfisgötu hafa aldrei verið unnar með rekstraraðilum þar. Þeir fá ekki einu sinni almennilegar upplýsingar. Þessu fólki hefur aldrei verið boðið að sjálfu ákvörðunarborðinu. Það er ekki að undra að fólk sé svekkt þegar á því er traðkað og yfir það valtað með þessum hætti. Þetta er þeirra upplifun og er hún vel skiljanleg.
Ekki hefur neitt frekar verið haft samráð við íbúa í Staðarhverfi. Foreldrar hafa lagt fram tillögur sem fela í sér að halda skólanum opnum en ekki er hlustað. Þessi meirihluti hefur haft nokkur ár til að komast að því hvaða samgöngubætur á að bjóða fólki upp á þarna. Ljóst er að ef keyra á þetta í gegn í svo mikilli óþökk og óánægju mun það draga dilk á eftir sér. Hér er enginn sparnaður heldur mun óánægja yfirskyggja allt. Flokkur fólksins hvetur meirihlutann til að endurskoða málið frá grunni. Þarna verður aldrei sátt. Fólki finnst þetta valdníðsla og kúgun.
Kaldar kveðjur frá borginni
27.10.2019 | 13:30
Dagforeldrar er stétt sem meirihlutinn er að verða búinn að ganga endanlega frá löngu áður en nægt framboð er af plássum á ungbarnaleikskólum. Úr stéttinni er stórflótti. Enn er talsverður tími þangað til ungbarnaleikskólar verða nógu margir til að geta annað eftirspurn. Skynsamlegt hefði því verið ef skóla- og frístundarráð hefði fundið leiðir í samvinnu við dagforeldra til að styrkja dagforeldrastéttina í það minnsta þangað til að ungbarnaleikskólar eru orðnir raunhæfur valkostur fyrir foreldra í Reykjavík. Dagforeldrastéttin má ekki deyja út þar sem það munu alltaf verða einhverjir foreldrar sem velja dagforeldra umfram ungbarnaleikskóla.
Staðan í dag er slæm. Foreldrar geta ekki verið öruggir með að fá pláss fyrir barn sitt hjá dagforeldri óháð því hvenær á árinu barnið fæðist. Ýmist vantar börn eða vöntun er á dagforeldrum. Foreldrar eru í sífelldri spennu og starfsöryggi dagforeldra er alvarlega ógnað.
Dagforeldrum hefur verið lofað hinu og þessu í gegnum tíðina sem ekki hefur verið efnt.
Flokkur fólksins lagði fram tillögu í borgarráði 10. október 2019 um að farið yrði í sérstakt átak til að tryggja starfsöryggi dagforeldra og að beitt yrði til þess öllum tiltækum aðferðum og leiðum. Dagforeldrar hafa sjálfir verið duglegir að benda á lausnir en á þær hefur ekki verið hlustað.
Bilið óbrúað
Bilið sem átti að brúa milli dagforeldra og ungbarnaleikskóla hefur ekki verið brúað. Á meðan verið er að brúa þetta margumrædda bil þarf að styðja við bakið á dagforeldrum ef stéttin á ekki að þurrkast út. Dagforeldrar sjálfir hafa nefnt leigustyrk til þeirra sem að leigja dýra gæsluvelli á vegum borgarinnar. Einnig að bjóða dagforeldrum sem að ekki eru með 4-5 börn viðbótarniðurgreiðslu til áramóta. Fleiri hugmyndir hafa verið lagðar á borðið s.s. að dagforeldrar fái aðstöðustyrkinn sem var samþykktur en síðan ákveðið að yrði ekki greiddur í bráð. Þessi styrkur myndi hjálpa þeim dagforeldrum sem ekki hafa náð að fylla í plássin sín.
Haustið sem nú hefur kvatt hefur verið einstaklega erfitt fyrir dagforeldra. Þeir vita ekki endilega hversu mörg börn eru hjá þeim í næsta mánuði. Stundum bjóða leikskólarnir pláss með stuttum fyrirvara. Dagforeldrar geta því staðið uppi um mánaðamót með einungis hluta af laununum sem þeir gerðu ráð fyrir að hafa. Þeir dagforeldrar sem eru ekki með laus pláss geta síðan ekki tekið við nýjum börnum fyrr en eldri börnin komast inn á leikskóla. Leikskólar Reykjavíkurborgar innrita börn yfirleitt einungis að hausti og því er mjög erfitt að fá laust pláss hjá dagforeldri eða á ungbarnaleikskóla á öðrum tíma ársins en á haustin.
Kaldar kveðjur frá borginni
Það hefur verið farið illa með dagforeldrastéttina og það bitnað á foreldrum og börnum. Framkoma valdhafa borgarinn í garð dagforeldra eru til skammar. Margir dagforeldrar hafa áratuga starfsreynslu hjá borginni. Sveitarfélagið Reykjavík hefur brugðist þessum hópi, stéttinni, foreldrum og börnum sem reiða sig á þjónustuna. Nágrannasveitarfélögin, flest hver, hafa staðið sig miklu betur þegar kemur að því að hlúa að dagforeldrum. Haustið hefur verið sérlega slæmt fyrir dagforeldrana og verður vorið slæmt fyrir foreldrana. Í vor munu margir foreldrar spyrja hver á að passa barnið mitt svo ég komist út að vinna"?
Já hver á að passa börnin svo foreldrar komist til að vinna fyrir húsnæðislánum/leigu, fæði og klæði? Hvernig ætlar borgin, skóla- og frístundarráð að bregðast við þegar stór hópur af börnum fær ekki vistun og foreldrar komast ekki til vinnu? Stórt er spurt en fátt er um svör.
Vil að þau pakki saman
23.10.2019 | 19:59
Engin grenndarkynning í stórum né smáum verkefnum.
Þetta má lesa á mbl.is:
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt er úr gildi ákvörðun skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar frá 22. ágúst um að veita framkvæmdaleyfi til að lengja frárein og breikka rampinn við Bústaðaveg sem liggur niður að Kringlumýrarbraut. Úr fréttum:
Nefndin komst að niðurstöðu í gær.
Gögn málsins bárust útskurðarnefndinni frá Reykjavíkurborg 7. október en eigendur Birkihlíðar 42, 44, og 48 kærðu ákvörðun um veitingu framkvæmdaleyfis. Þess var krafist að ákvörðun yrði felld úr gildi og framkvæmdir stöðvaðar.
Engin grenndarkynning og það er bara oft þannig bæði í smáum og stórum verkefnum. Og hvað gerist þá? Það koma mótmæli og kærur og framkvæmdir eru stöðvaðar með tilheyrandi vandræðum og kostnaði. Ég hef nýlega sagt frá leikjagrind/klifurgrind sem rokið var í að setja upp í Öskjuhlíð án grenndarkynningar. Þar var tæpum 2 milljónum kastað út um gluggann því það komu mótmæli sem leiddi til þess að rifa þurfti allt niður.
Eitthvað mun þetta kosta meira sem hér er sagt frá í fréttum. Þessi meirihluti í borgarstjórn, kjarni hans hefur setið of lengi. Hann er bara farinn að gera það sem honum sýnist án þess að spyrja kóng eða prest og þetta er að kosta okkur borgarbúa mikið fé. Ég vil að þessi meirihluti pakki saman og fari frá, hvíli sig bara eins og gott þykir þegar maður hefur verið lengi á sama stað.
Það líður varla sú vika að ekki er kvartað yfir skort á samráði sbr. lokun Kelduskóla. Hver hefur ekki heyrt af óánægju rekstararaðila við Laugaveg og nágrenni. Ekkert samráð þar og svona mætti áfram telja
Áherslan á umhverfisskreytingar frekar en á fólk og þarfir þess
19.10.2019 | 10:51
Tillögur Flokks fólksins sem borgarráð hefur synjað snúa flestar að bættari grunnþjónustu við fólkið í borginni, börn, eldri borgara og öryrkja. Meðal tillagna sem hafa verið hafnað er t.d. tillaga um gjaldfrjálsar skólamáltíðir og frístundaheimili og útrýmingu biðlista barna til sálfræðinga og talmeinafræðinga
___________________________________________________
Í borgarráði í vikunni var lagt fram yfirlit frá borginni sem sýnir að framlögð mál eru nú 543 talsins, sem er 372% aukning miðað við fjölda mála á sama tímabil á síðasta kjörtímabili. Mér finnst mjög ánægjulegt að sjá þessa miklu aukningu á framlagningu mála á þessu kjörtímabili og sýnir það einfaldlega hve mikið þarf að laga og breyta í borginni. Af nógu er að taka á flestum sviðum borgarinnar. Fólkið sjálft hefur ekki verið í forgangi hjá valdhöfum í mörg ár heldur mætt afgangi.
Að beiðni borgarfulltrúa Flokks fólksins var einnig lagt fram yfirlit yfir fjölda mála Flokks fólksins í borginni á þessu rúma ári sem liðið er af kjörtímabilinu. Flokkur fólksins hefur lagt fram eða verið aðili að 145 tillögum fyrir borgarstjórn, borgarráð eða önnur ráð frá síðustu kosningum. Af þessum 145 tillögum hafa aðeins 6 tillögur verið samþykktar. Það eru rétt rúm 4%.
Það er hending og afar sjaldgæft að mál minnihlutans nái fram að ganga og ítrekað er góðum hugmyndum hent í ruslið, sérstaklega ef meirihlutinn óttast að þær geti skyggt á sig sem ráðamenn borgarinnar. Viðbrögð þeirra við höfnun mála eru gjarnan á þá leið að þetta sé nú þegar í vinnslu. En síðan er það oft alls ekki reyndin. Það skiptir engu máli hvaða minnihlutaflokk er um að ræða þegar kemur að afgreiðslu mála þeirra, þær fara að megninu til sömu leið, í ruslið.
Tillögur Flokks fólksins sem borgarráð hefur synjað snúa flestar að bættari grunnþjónustu við fólkið í borginni. Meðal tillagna sem hafa verið hafnað er t.d. tillaga um gjaldfrjálsar skólamáltíðir og frístundaheimili, útrýmingu biðlista barna til sálfræðinga og talmeinafræðinga, tillaga um íbúakosningu vegna borgarlínu-verkefnisins, tillaga um að borgin bæti upplýsingagjöf til borgarbúa og tillaga um að bæta lýsingu við gangbrautir sem og fjölmargt fleira.
Dæmi eru einnig um að tillögum minnihlutans sé vísað frá eða hafnað en síðar teknar upp og lagðar fram af meirihlutanum og þá samþykktar.
Ef litið er á tillögur sem meirihlutinn leggur sjálfur fram eru þær oft samþykktar með 12 atkvæðum gegn 11 í borgarstjórn. Mér hefur þótt tillögur þessa meirihluta oft ansi rýrar og jafnvel meira til skreytinga. Meirihlutaflokkunum í borgarstjórn þykir gott að berja sér á brjóst. Það er mitt mat, sem oddviti eins af minnihlutaflokkunum að þessi meirihluti sem nú situr í borgarstjórn kýs eftir flokkslínum en ekki málefnum.
Bylting á skólastarfi
15.10.2019 | 09:03
Í dag á fundi borgarstjórnar mun ég leggja fram tillögu um að seinka skólabyrjun og hefja skóladaginn kl. 9:00
Tillaga Flokks fólksins að Skóla- og frístundarsvið eigi samtal við skólasamfélagið í Reykjavík með það að markmiði að leita að fleiri skólum sem eru tilbúnir að seinka skólabyrjun og hefja kennslu kl. 9:00
Flokkur fólksins leggur til að borgarstjórn samþykki að fela SFS (skóla- og frístundarsviði) að eiga samtal við skólasamfélagið í Reykjavík með það að markmiði að kanna hvort fleiri skólar eru tilbúnir til að seinka skólabyrjun og hefja kennslu kl. 9:00 í stað 8:00. Borgarfulltrúi gerir sér grein fyrir ákveðnum vanda sem gæti skapast hjá einhverjum foreldrum yngri barna sem þurfa sjálfir að mæta í vinnu kl. 8:00. Hann væri þó hægt að leysa með því að bjóða upp á morgungæslu milli kl. 8:00 og 9:00 fyrir þau börn sem þess þurfa. Einhverjir skólar hafa nú þegar seinkað skólabyrjun t.d. um 30 mínútur. Sumir skólar hafa einnig breytt lengd kennslustunda frá 40 mínútum yfir í 60 mínútur.
Borgarfulltrúi Flokks fólksins hefur rætt við skólastjórnendur um reynslu þeirra á seinkun skólabyrjunar og segja þeir hana góða. Börnin komi hressari í skólann og séu virkari. Það sé rólegra yfirbragð á nemendum og minna álag á kennurum. Breytingin er talin hafa verið til góðs fyrir alla.
Með því að hefja skólastarf kl. 9:00 gefst kennurum tækifæri áður en kennsla hefst til að sinna t.d. undirbúningsvinnu eða foreldrasamskiptum sem þeir ella þyrftu að sinna í lok dags. Seinkun/breyting á upphafi vinnutíma kennara gæti einnig dregið úr umferðarálagi í borginni á háannatíma.
Greinargerð
Mikilvægt er að skoða heildarmyndina ef seinka á byrjun skóladags. Hvað varðar börnin þá eiga mörg börn erfitt með að vakna snemma sérstaklega þegar myrkur er úti. Alkunna er að flestum unglingum þykir gott að sofa á morgnana. Rannsóknir hafa hins vegar sýnt að unglingar á Íslandi fara seinna að sofa en unglingar þjóða sem við berum okkur saman við. Þeir unglingar sem fara mjög seint að sofa finnst eðli málsins samkvæmt erfitt að vakna á morgnana. Svefntími barna og sérstaklega unglinga er efni í aðra umræðu og sú umræða þyrfti að snúast um hvernig hægt er að styrkja foreldra í að taka á svefnmálum barna sinna. Það er umræða sem tengist ekki hvað síst snjalltækjanotkun barna og unglinga. Vitað er að snjalltækjanotkun barna að kvöldlagi og fram á nótt er að koma í veg fyrir að þau fari tímalega að sofa. Það er mikilvægt að skólarnir bjóði þeim foreldrum sem telja sig þurfa upp á leiðsögn um snjallsíma/samfélagsmiðlanotkun barna sinna að kvöldlagi.
Ávinningur af seinkun á upphafi skóladags er minni ef barn fer of seint að sofa og fær þar að leiðandi ekki nægjan svefn. Í þeim skólum sem kennsla hefst kl. 8.30 er nokkuð um það að börn komi engu að síður of seint sem gæti verið merki þess að betra er að byrja síðar eða kl. 9:00.
Hvað sem þessu líður er æskilegt að svefn unglinga í tengslum við byrjun skóladags verði rannsakaður nánar. Áhugavert væri að skoða hvaða áhrif, ef einhver, seinkun upphafs skóladags hefur á lífsstíl barnanna og þar með talið svefnvenjur þeirra.
Það var mat eins skólastjórnanda sem borgarfulltrúi ræddi við sem hefur góða reynslu af seinkun skólabyrjunar að miklu máli skiptir hvernig heimilislíf og almenn rútína fjölskyldunnar er. Svefn er einn stærsti þáttur í lýðheilsu nemenda. Einhver kynni að óttast að ef skólabyrjun er seinkað að þá munu börnin fara seinna að sofa sem því nemur. Í samtali við skólastjórnendur töldu flestir að það yrði ekki raunin. Dæmi, ef barn fer að sofa kl. 2:00 fari það ekki endilega að sofa kl. 3:00 af því að það á að mæta klukkutíma seinna í skólann. Börn eins og fullorðnir hafa ákveðin norm bæði sem börn, unglingar og síðar sem fullorðnir einstaklingar. Útivistartíminn er enn ein breytan sem áhugavert væri að skoða í tengslum við svefn unglinga.
Niðurstaða samtal við þá sem hafa reynslu af því að hefja skóladaginn seinna er sú að almennt muni það lengja svefntíma barnanna.
Ef hefja á kennslu kl. 9:00 í stað 8:00 eða 8.30 þarf að finna lausnir á ýmsu öðru. Áður hefur verið talað um að bjóða þarf upp á gæslu milli 8:00 og 9:00. Skoða þarf einnig hvort hægt væri að þjappa skóladagskránni meira saman til þess að nemendur séu ekki búnir seinna að degi til og komist þá seinna á íþróttaæfingar eða í annað tómstundanám. Einnig þarf að finna leiðir til að stytta vinnutíma kennara að lokinni kennslu. Mikilvægt er að kanna afstöðu og viðhorf foreldra til seinkunar skólabyrjunar t.d. hvort það myndi henta þeim verr að vita af barninu/unglingum heima eftir að foreldrar eru farnir til vinnu?
Mikilvægt er að heyra raddir kennara og hvernig þeir sjá þennan tíma að morgni til? Ef hann á ekki að vera vinnutími (t.d. vegna sveigjanleika í starfi og mögulega styttri vinnuviku sem nú er til umræðu), hvernig eiga þá kennarar að ná að ljúka vinnu sinni fyrir hefðbundinn fjölskyldutíma?
Eins og hér hefur verið rakið er að mörgu að huga í sambandi við að seinka byrjun skóladags. Nú þegar eru fordæmi fyrir að hefja kennslu ýmist kl. 8:30 eða 9:00 með góðum árangri. Sú tillaga sem hér er lögð fram er að skólabyrjun hefjist kl. 9:00. Það er mat flestra þeirra sem starfa í skólum sem hefja kennslu seinna að seinkunin hafi leitt til byltingar á skólastarfinu. Það er því full ástæða til að skóla og frístundarsvið kanni með markvissum hætti hvort fleiri skólar sýna áhuga á að hefja skóladaginn kl. 9:00
Burt með frauðbakka í mötuneytum borgarinnar
12.10.2019 | 16:15